Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Page 70
70 MATUR 14. desember 2018
L
eikkonan og uppistandar-
inn Þuríður Elín, eða Ebba
Sig eins og hún er oftast köll-
uð, er mjög vanaföst þegar
kemur að jólum og hlakkar ávallt
til jólamatar móður sinnar yfir há-
tíðarnar.
„Jólin eru yfirleitt þannig að
ég, mamma, systir mín og frænka
mín erum heima hjá mömmu.
Við borðum alltaf klukkan sex og
erum alltaf með kalkún. Við
höfum ætlað að færa okkur
yfir til systur minnar þar
sem hún er með meira
pláss, en þar sem hvorki
ég né systir mín þorir að
taka við eldamennskunni
erum við heima hjá múttu
því hún treystir ekki öðrum
ofnum,“ segir Ebba og brosir við
tilhugsunina um kalkúninn á að-
fangadag.
„Kalkúnninn er svo sannarlega
ómissandi. Við erum svo með þetta
klassíska jólameðlæti sem mér
finnst reyndar allt vont. Ég er ein af
fáum manneskjum sem ég þekki
sem finnst brúnaðar kartöflur
vondar, þess vegna gerir mamma
alltaf svona „crispy“, saltaðar og
smjörsteiktar kartöflur handa mér.
Svo er fyllingin sem hún gerir al-
veg sjálf algjör snilld. Ég var einu
sinni á þakkargjörðarhátíðinni
í Bandaríkjunum og var boðið í
þrjár veislur en engin kalkúna-
fylling jafnaðist á við mömmu. En
aðalmálið á aðfangadag er sósan
hennar mömmu. Ég get drukkið
hana og stend oft yfir pottinum
og dýfi kartöflunum sem mamma
séreldar fyrir mig ofan í. Get verið
þar endalaust. Enda gerir hún
soldið mikið af sósu þrátt fyrir að
við séum bara fjórar í mat. Helm-
ingurinn af sósunni er handa mér.“
Skeiðar á augun vegna bólgu
Ein jólin vildi mamman breyta til
og það rann alls ekki ljúflega ofan
í Ebbu og
systur henn-
ar.
„Mömmu lang-
aði til þess að prufa að hafa ham-
borgarhrygg. Systur minni leist
alls ekki á þetta og mótmælti harð-
lega. Ég var svo sem alveg til í það,
þar sem ég er sjúk í allt saltað. En
jólin voru alls ekki eins. Það vant-
aði eitthvað svakalega,“ segir Ebba
alvarleg og heldur áfram. „Það var
allt sama meðlætið, nema fyll-
ingin og sósan var engan veginn
eins. Ég og systir mín horfum til
baka á þessi jól með fyrirlitningu.
Við höfum heitið því að það verði
aldrei aftur prufað eitthvað nýtt á
aðfangadag. Ég vaknaði líka með
svo bólgin augu daginn eftir að
ég þurfti að setja skeiðar í ísskáp-
inn til að láta bólguna af saltinu
hjaðna.“
Hnetusteikin var vond
Ebba lærði ekki af reynslunni og
nokkrum árum síðar gerðist hún
grænmetisæta og var því landslag-
ið talsvert annað á jólum.
„Ég á það til að prufa ýmis-
legt í mataræði, ekki sem megr-
unarúrræði heldur frekar bara til
að ögra mér. Ég var búin að vera
grænmetisæta í nokkurn tíma en
þegar jólin voru að nálgast spurði
mamma hvað mig langaði í og ég
sagðist bara borða meðlæti eða
eitthvað. Síðan endaði hún á að
kaupa hnetusteik fyrir mig sem er
eitt af því versta sem ég hef smakk-
að. Það eru reyndar orðin soldið
mörg ár síðan og hefur matargerð
fyrir grænmetisætur orðið töluvert
betri,“ segir Ebba, sem útilokar þó
ekki að prófa grænmetisfæðið aft-
ur. „Ég gæti vel hugsað mér að vera
grænmetisæta aftur með öllu því
nýja sem er í boði. Ætla meira að
segja að taka þátt í Veganúar eftir
áramót.“
Kvíðin, einhleyp kona á Íslandi
Það er nóg að gera hjá Ebbu í að-
draganda jóla. Ekki bara þetta
týpíska jólastress því hún heldur
uppistand á Hard Rock Café föstu-
daginn 15. desember klukkan 21.
Ebba hefur vakið talsverða athygli
síðustu misseri fyrir uppistöndin
sín og má segja að jólauppistandið
sé brot af því besta.
„Seinni helmingurinn er al-
veg splunkunýtt efni, þannig að
þau sem hafa séð efnið mitt áður
munu líka sjá alveg glænýtt efni
sem ég er mjög spennt að sýna.
Þetta uppistand er mjög mikið
byggt á mínum veruleika. Hvort
sem það er að vera einhleyp á Ís-
landi eða kvíðann minn, en einnig
ætla ég að ræða um ýmislegt sem
er í gangi í samfélaginu. Svo fæ
ég hina frábæru Kimi Tayler, sem
er bresk stelpa sem ég kynntist á
Kaffi Laugalæk, til að hita upp,“
segir Ebba. Í framhaldinu hlakk-
ar hún til að njóta þess sem jólin
þýða fyrir hana.
„Fyrir mér þýða jólin að eyða
tíma með famelíunni og vinum.
Mér finnst dásamlegt að vakna
eftir hádegi, eyða deginum á
náttfötunum og „tjilla“ allan
daginn. En svo er líka alltaf gam-
an að fara og hitta fólk, spila og
hafa gaman.“ n
Þegar mamma
n Ebba Sig á hryllilega jólaminningu n Mamman skipti kalkúni út fyrir hamborgarhrygg
„Ég og systir mín
horfum til baka á
þessi jól með fyrirlitningu.
n Gott er að setja kalkún í salt-
pækil í heilan sólarhring fyr-
ir eldun. Sagt er að þá verði
hann safaríkari.
n Bringan á fuglinum skal snúa
upp þegar hann er steiktur.
n Best er að elda kalkúninn í
lokuðum ofnpotti eða á grind
í ofnskúffu og breiða þá yfir
hann álpappír.
n Steikja á ófylltan kalkún við
150°C í 30 mínútur fyrir hvert
kíló, eða þar til kjarnhiti í
bringu er 71°C.
n Á heilum fylltum kalkúni er
steikingartími miðaður við um
það bil 40 til 45 mínútur fyrir
hvert kíló við 160°C.
n Einhverjir segja að gott sé að
gegnbleyta viskastykki með
smjöri og hafa ofan á kalkún-
inum allan eldunartímann.
Margir ausa einnig smjöri yfir
kalkúninn.
n Mikilvægt er að leyfa kalkúni
að hvíla í þrjátíu mínútur utan
ofns áður en hann er borinn
fram.
n Nauðsynlegt er að ausa
fuglinn nokkrum sinnum í lok
steikingartíma. Ef fuglinn er
fullsteiktur fyrir áætlaðan tíma
skal taka hann úr ofninum
og vefja viskastykki utan um
steikingarílátið.
Einföld sósa með kalkúni
Hráefni:
n safinn af kalkúninum í pottin-
um
n 2–3 bollar kjúklinga- eða
kalkúnasoð
n 3 msk. smjör
n ¼ bolli hveiti
Aðferð:
Hellið safanum úr pottinum í
stórt glas eða skál og leyfið hon-
um að hvíla þar til fitan flýtur
upp á yfirborðið. Takið mest af
fitunni og hendið. Bætið nægu
soði í skálina eða glasið þannig
að það jafngildi fjórum bollum
af vökva. Bræðið smjör á pönnu
yfir meðalhita. Bætið hveitinu
saman við og þeytið vel til að
búa til smjörbollu. Haldið áfram
að þeyta þar til smjörbollan er
orðin brún og ilmandi. Bætið
soðinu saman við og þeytið vel.
Hækkið hitann og látið koma
upp suðu á meðan þið þeytið.
Lækkið hitann við suðu og hrær-
ið reglulega í sósunni þar til hún
er orðin eins þykk og þið viljið.
Smakkið til og berið strax fram.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
eyðilagði jólin
Svona
eldarðu
kalkún
Ebba ásamt systur sinni, Stefaníu.
Stefanía og
Ebba á góðri
stundu um jól.