Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 50
Sérblað völvunnar 28. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
Sendibílastöðin hf. var stofn-uð 29. júní árið 1949. Hún var upphaflega staðsett að
Ingólfsstræti 11 en flutti svo í Borg-
artún 21 árið 1956. Í dag er stöðin
að Klettagörðum 1 og hefur verið
síðan 1999. Sólveig Þóra Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Sendibílastöðv-
arinnar hf., segir að á staðnum sé
einkarekið mötuneyti fyrir bílstjórana
og einnig er í boði kaffi og meðlæti
allan daginn. „Andrúmsloftið er gott
og menn hittast hér og rabba, spila
bridds og tefla þegar tími gefst til.
Það er reyndar ekki oft því yfirleitt er
mikið að gera.“
Allt annar rekstrargrundvöllur í dag
„Rekstur sendibílastöðva er með allt
annan grundvöll í dag en áður var.
Árið 2002 komu ný lög/reglugerð-
ir varðandi það að ekki var lengur
skylda fyrir sendibílstjóra að vera á
viðurkenndri sendibílastöð – eins og
alltaf hafði verið. Auk þess var sendi-
bílastöðvum bannað að gefa út há-
marksgjaldskrá. Við fengum undan-
þágu frá Samkeppniseftirlitinu. Því
hámarksgjaldskrá er til verndar
viðskiptavininum,“ segir hún.
Bílar hafa stækkað í gegnum
tíðina og hafa þeir meiri burðargetu
enda kallar markaðurinn á það. Ný
tæki hafa komið til sögunnar sem
létta bílstjóranum vinnuna, t.d. raf-
magnsbrettatjakkar og rafmagns-
tröpputrillur.
Að sögn Sólveigar flytur Sendi-
bílastöðin allt frá umslögum upp í
stórflutninga.
„Við erum með bíla allt frá fimm
rúmmetrum upp í tæplega 50
rúmmetra, burðargetu allt að 17
tonnum. Sumir eru með vagna
aukalega sem eru um 50 rúmmetrar
þar sem burður er allt að 13 tonnum.
Einnig höfum við aðgang að krana
og búslóðalyftum sem ná allt að 50
metrum og bera 350 kíló í hverri
ferð.“
Þjóna bæði fyrirtækjum og einstak-
lingum
„Trúin flytur fjöll við flytjum allt ann-
að,“ segir Sólveig brosandi. „Þjón-
usta okkar er víðtæk. Við þjónum
bæði einstaklingum og fyrirtækjum.
Á Sendibílastöðinni starfa tveir
starfsmenn en á stöðinni eru alls 70
bílstjórar.
Sendibílstjórarnir eru allir sjálf-
stæðir verktakar með sameiginlega
símaþjónustu varðandi úthlutun túra
og innheimtu reikninga þeirra fyrir-
tækja sem eru í reikningi á Sendibíla-
stöðinni.“
Ísbjarnarflutningur
Aðspurð segir Sólveig að það skrýtn-
asta sem fyrirtækið hefur flutt til
þessa sé líklega ísbjörn. „Hann var
uppstoppaður, sem betur fer,“ segir
hún hlæjandi.
„Annars er ekkert sem við neit-
um að flytja svo framarlega sem
farmurinn kemst í bílana og allt sé
löglegt. Við höfum hingað til ekki lent
í því að þurfa að neita viðskiptavini
um flutning.“
Sendibílastöðin hf. Klettagörðum 1,
104 Reykjavík.
Símar: 553-5050 og 533-1000.
www.sendibilastodin.is. n
SENDIBÍLASTÖÐIN EHF. FAGNAR 70 AFMÆLI Á NÆSTA ÁRI:
„Trúin flytur fjöll en
við flytjum allt annað“