Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 72
72 FÓLK 28. desember 2018
Nýtt öflugt
bókhaldskerfi í skýinu
frá manninum sem færði
okkur Dynamics Ax
Prófaðu
frítt í
30 daga
www.uniconta.is
Lagast að þínum þörfum
Erik Damgaard
Stofnandi Uniconta
Greinar Fókus sem
vöktu athygli á árinuVinsælustu greinar ársins á Fókus
Ari var tíu ára gamall þegar hann myrti tvo drengi með árs millibili
með því að fleygja þeim út í Glerá á Akureyri. Drengirnir voru sjö ára
gamlir og drukknuðu báðir í ánni. Í umfjöllun Tímavélarinnar var
farið ítarlega yfir málið, þar á meðal bréf sem Ari skrifaði til mæðra
drengjanna, sem hófst með orðunum: „Kæra Sólveig og Bjarnheiður.
Það sem mig hefur langað að segja er að, já það er rétt að ég átti mjög
erfitt sem krakki og já, það hefði átti að grípa inn í mörgum árum
fyrr, en það breytir ekki því að ég er ábyrgur fyrir dauða barnanna
ykkar.“
Hafþór Júlíus Björnsson kvæntist Kelsey Henson, en þau
hafa verið saman í rúmt ár og meðal annars leikið í auglýs-
ingum saman. Einnig fór Fjallið í milljóna hárígræðslu sem
heppnaðist að líkindum ekki jafnvel og hnappheldan.
Á Fókus er að finna umfjöllun um fólk, bæði í frétta-
molum og styttri og lengri viðtölum, Tímavélina,
umfjöllun um menningu: bækur, kvikmyndir og
sjónvarp, leiklist, tónlist og tónleika, viðburði, próf,
gjafaleiki og fleira.
Þessar greinar voru vinsælastar á
Fókus á árinu.
Söngkonan Svala er skilin og flutt heim og
er að gera frábæra hluti í tónlistinni, bæði
sjálf og með öðrum, ekki síst með föður
sínum á hinum sívinsælu Jólagestum.
Stuttu eftir heimkomu var Svala kominn
með nýjan herra upp á arminn, Guðmund
Gauta Sigurðarson, sem er 18 árum yngri
en hún.
Birgitta Líf samfélags-
miðlastjarna keypti sína fyrstu
íbúð í einu dýrasta fjölbýlis-
húsi landsins, við Vatnsstíg í
Skuggahverfinu. Birgitta Líf
staðgreiddi tæpar 63 milljónir
fyrir íbúðina.
Sólrún Diego þrif- og Snapchatdrottning festi kaup á einbýlishúsi ásamt
kærasta sínum. Í húsinu er gert ráð fyrir vetrargarði og tjörn. Parið réðst
í umfangsmiklar endurbætur og mun húsið að öllum líkindum verða
stórglæsilegt og snyrtilegt að hætti Sólrúnar þegar þeim lýkur.
Brynjar Berg Guðmundsson
féll fyrir eigin hendi, langt
fyrir aldur fram, 31 árs. Söfn-
un var hrundið af stað fyrir
konu hans og tvö ung börn.
„ Brynjar var vinur allra og
vildi alltaf hafa gaman. Hann
á marga vini, það er ótrúlegt
hvað það er margt fólk sem
saknar hans,“ sagði Kristín Sif,
kona hans, í samtali við DV.
Þorbjörn Haukur Liljarsson féll frá
í gistiskýlinu við Lindargötu. And-
lát hans og tilfinningaþrungið við-
tal móður hans, Guðrúnar Hauks-
dóttur Schmidt, við DV viku fyrir
andlát Þorbjarnar, vakti athygli
á aðstæðum útigangsmanna í
Reykjavík.
Brynjar Berg féll fyrir
eigin hendi – Söfnun
fyrir fjölskylduna
Þorbjörn Haukur féll frá
– Athygli vakin á mál-
efnum útigangsmanna
Sólrún Diego kaupir höll í Mosfellsbæ
Ari myrti tvö sjö ára börn
Fjallið nýgiftur
með hárígræðslu
Birgitta Líf staðgreiddi
rándýra fyrstu íbúð
Svala Björgvins
opinberar nýja
kærastann
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is