Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 18
18 28. desember 2018ANNÁLL - MAÍ
Frost í kortunum?
Ekki láta kuldann koma þér í vandræði
Komdu við og láttu mæla rafgeyminn þinn!
TUDOR
Alltaf öruggt start
eftir kaldar nætur
MIKIÐ ÚRVAL, TRAUST
OG FAGLEG ÞJÓNUSTA
Bíldshöfða 12 / S. 577 1515 / skorri.is
Við mælum
rafgeyma og
skiptum um
Hr
að
þjónusta
Níðingur fær þungan dóm,
tíkin Gloría og bóndinn
sem vill heita Sigríður
Greint er frá því að
líkamsleifar sem
fundust í Faxaflóa
fyrr á árinu hafi verið
af Arturi Jarmoszko.
Hann hvarf þann
1. mars 2017 og var
gerð umfangsmik-
il leit að honum auk
þess sem helstu fjöl-
miðlar fjölluðu ítar-
lega um hvarfið.
Athafnamaðurinn Sigmar Vil-
hjálmsson tilkynnir að hann
hafi selt öll hlutabréf sín í Ham-
borgarafabrikkunni og Keiluhöll-
inni Egilshöll.
Dyggur hlustandi Útvarps Sögu, Guð-
finna Karlsdóttir, höfðar mál gegn
Arnþúðui Karlsdóttur, útvarpsstjóra
stöðvarinnar, vegna fjármuna sem
Guðfinna lagði inn á persónulegan
reikning stöðvarinnar. Deildu aðil-
ar málsins um hvort að um hafi verið
að ræða styrk eða lán. Pétur Gunn-
laugsson, samherji Arnþrúðar í blíðu og
stríðu, varði útvarpstjórann. DV fylgdist
með réttarhöldunum sem voru skraut-
leg og þurfti dómari að krefjast þess að
Arnþrúður róaði sig. Arnþrúður var
að lokum dæmd til að greiða Guð-
finnu 3,3 milljónir auk dráttar-
vaxta og málskostnað upp á 620
þúsund krónur að auki.
DV greinir frá því að Matthías Imsland
hafi fjárfest í tíu íbúðum í Vestmannaeyj-
um. Til að fjármagna kaupin fékk hann
lán frá Íbúðalánasjóði sem aðeins
eru ætluð óhagnaðardrifnum leigu-
félögum. Í stofnskrá einkahlutafélags
Matthíasar kemur fram að félag hans
sé rekið í þeim tilgangi.
Þingeyski bóndinn Sigurður Hlyn-
ur Snæbjörnsson óskar eftir því
við Þjóðskrá að hann fái að heita
Sigríður í höfuðið á ömmu sinni.
Að hans sögn vonuðu foreldrar
hans að þeir eignuðust stúlku og
ætluðu að láta skíra stúlkuna í höf-
uðið á ömmunni. Erindi Sigurðar
var vísað til mannanafnanefndar,
sem synjaði beiðninni. Sigurður
áfrýjaði og íhugar að leita til dóm-
stóla ef krafa hans nær ekki fram
að ganga.
Ingvar Árni Ingvarsson er ákærður af lög-
reglu fyrir grófar hótanir í garð starfsfólks
Dýralæknamiðstöðvarinnar í Grafarholti sem
annaðist smáhundinn Gloríu. Ingvar var afar
ósáttur við þjónustuna á umræddri stöð og
tilkynnti fyrirfram á Facebook-síðu sinni að
hann væri á leið í fangelsi. Ingvar Árni hefur
ítrekað komist í kast við lögin á undanförn-
um árum.
Þorsteinn Halldórsson er dæmdur í sjö
ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ung-
um pilti. Drengurinn var fimmtán ára
gamall þegar brot Þorsteins hófust.
Gaf hann piltinum peninga, tóbak
og farsíma og nýtti sér yfirburði sína
gagnvart honum til að hafa við hann
samræði og önnur kynferðismök. Þá
tók hann klámmyndir af piltinum og
geymdi í læstri möppu í farsíma sínum.
Rafal Kiedowski er ákærður fyrir
kynferðisbrot og brot gegn barna-
verndarlögum. Var honum gefið
að sök að hafa fróað sér opinber-
lega víðs vegar á höfuðborgar-
svæðinu á árunum 2013 til 2017.
Að lokum náðist hann eftir að
hafa stundað ósiðsamlegt athæfi
við dvalarheimilið Hrafnistu. Að
auki var Rafal ákærður fyrir fjölda
annarra brota, öll vegna þjófnað-
ar eða umferðarlagabrota.