Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 2
2 28. desember 2018FRÉTTIR
hlutir sem gerðust ekki 2018 en hefðu átt að gerast
Það gerðist ótrúlega margt á árinu
sem er að líða. Það eru hins vegar
ótal hlutir sem hefðu átt að gerast,
DV tók saman nokkra hluti.
Ísland hefði átt að
ná lengra á HM í
knattspyrnu karla í
Rússlandi. Þetta var
okkar fyrsta HM og
miðað við hvernig
EM þjappaði þjóðinni
saman þá hefðum við
átt að ná upp í 16 liða
úrslit.
Frans páfi hefði átt að
koma til Íslands. Það
er langt síðan páfi kom
síðast.
Verð á hlutum sem
okkur langar í hefði
mátt lækka á sama
degi og heimsmark-
aðsverð. Það hækkar
yfirleitt samdægurs
þegar heimsmarkaðs-
verð hækkar, það ætti
að lækka einu sinni
þegar það lækkar.
Stjórnmálamaður
hefði mátt segja af
sér. Skiptir ekki máli
í hvaða flokki eða
fyrir hvað, má líka vera
embættismaður. Bara
einhver að segja af sér
einu sinni.
Það hefði mátt gerast
eitthvað yfirnáttúru-
legt sem hægt væri að
sanna að hefði átt sér
stað. Til dæmis ef ein
geimvera hefði lent,
vampíra stigið fram
(ekki í dagsljósið samt)
eða alvöru draugur
náðst á myndband.
Það hefði sett mikinn
svip á árið.
Á þessum degi,
28. desember
1308 – Valdaskeið Hanazono keisara
hefst í Japan.
1836 – Spánn viðurkennir sjálfstæði
Mexíkó og undirritar Santa-María-
Calatrava-samninginn.
1895 – Wilhelm Röntgen gefur út
ritgerð þar sem upplýst er um uppgötv-
un hans á nýrri tegund geislunar, sem
seinna fær nafnið X-ray, og við þekkjum
sem röntgengeisla.
1879 – Miðhluti Tay járnbrautarbrúar-
innar í Dundee í Skotlandi hrynur þegar
lest fer þar um og 75 manns missa lífið.
1989 – Um 5,6 stiga jarðskjálfti ríður
yfir Newcastle í Nýju-Suður-Wales í
Ástralíu. Þrettán manns farast.
Síðustu orðin
„Svona, svona, minn kæri,
nú er ekki rétti tíminn til að
afla sér óvina.“
– heimspekingurinn Voltaire
(1694-1778) þegar prestur hvatti
hann á dánarbeðinum til að
afneita tilvist djöfulsins.
Úti er ástarævintýri
„Ástin dugir að eilífu,“ sungu Páll Óskar og Unun, en
sú er ekki raunin. Samböndum manna er stundum
ætlaður aðeins afmarkaður tími og tíma þessara
para lauk á árinu.
Greint var frá skilnaði Svölu
Björgvins og Einars Egilssonar í
september en þau höfðu geng-
ið saman í gegnum súrt og sætt
í rúmlega tuttugu ár. Í lok sept-
ember opinberaði Svala að hún
væri komin með nýjan ástmann.
Sá heppni er hinn 23 ára gamli
Guðmundur Gauti Sigurðarson.
Samfélagsmiðlastjarnan Lína Birgitta Camilla Stefánsdóttir og
söngvarinn Sverrir Bergmann hættu saman í byrjun árs. Orðróm-
ur hafði gengið manna milli um sambandsslitin um tíma uns Lína
staðfesti þau á samfélagsmiðlum. „Það hvarflaði ekki að mér að það
væri hægt að eiga gott og fallegt „breiköpp“ við neina manneskju. Ég
verð að segja að það er svo mikil virðing og svo mikill kærleikur og
við erum svo góð við hvort annað,“ sagði Lína og bætti svo við að hún
og Sverrir væru þrátt fyrir allt bestu vinir. Margt getur breyst á einu
ári og í dag er Sverrir í sambúð með Kristínu Evu Geirsdóttur, sér-
fræðingi í flugöryggis- og flugverndarmálum.
Sigríður Elva
og Teitur
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir,
fréttakona á K100, og fyrrver-
andi fréttamaðurinn Teitur
Þorkelsson tilkynntu um skiln-
að í október eftir 18 ára sam-
band. Þau eiga eitt barn saman.
Friðrika Hjördís Geirsdóttir, fjölmiðlakona og matgæðingur, og Har-
aldur Örn Ólafsson, pólfari og ævintýramaður, slitu sambandi sínu
í haust eftir þriggja ára samband. Sem par lögðu þau stund á mikla
útivist saman, klifu fjöll og klæddust úlpum, ætli þau skilin hangi þá
inni á hlýrabolum?
Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akur-
eyrarkirkju, og Heimir Haraldsson eru
skilin. Hildur tilkynnti það í færslu á
Facebook í nóvember. „Við Heimir erum
skilin eftir 20 ára samfylgd og 18 ára
hjónaband sem gat af sér tvo undur-
samlega drengi og óendanlega dýrmæta
vináttu sem við hjónaleysin ætlum svo
sannarlega að rækta um ókomna tíð,“ sagði Hildur svo fallega um
skilnaðinn. Hildur tók líka fram að gefnu tilefni að hún væri ekki
samkynhneigð og ekki kominn á Tinder. En það var þá. Nú er kom-
inn mánuður frá opinberuninni og raunin gæti verið önnur í dag.
Sunna Elvíra
og Sigurður
Sunna Elvíra vann hug og
hjörtu Íslendinga eftir að hafa
lamast í hörmulegu slysi á
Spáni í janúar. Hún skildi í maí
við eiginmann sinn, Sigurð
Kristinsson, en hann er einn
sakborninga í umfangsmiklu
smyglmáli sem kennt er við
Skáksamband Íslands. Málið
varðaði sex kíló af amfetamíni
sem smyglað var til landsins í
skákgripum og sent á Skáksam-
band Íslands til að vekja ekki
grunsemdir. Rétt er að taka það
fram að Skáksamband Íslands
hafði ekkert með málið að gera.
Svala Björgvinsdóttir
og Einar Egilsson
Rikka og Haraldur
Lína Birgitta og Sverrir Bergmann
Hildur Eir og Heimir