Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 57
Sérblað völvunnar 28. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Fyrirtækið Sölutraust hefur verið starfrækt í 15 ár og sérhæfir sig í sölu á ýmsum öryggisvörum, til
dæmis sjúkrakössum og skyldum vörum,
mengunarvarnarbúnaði og öryggis-
merkingum. En þessar mikilvægu vörur
eru bara einn þáttur í starfseminni.
Þjónustan við viðskiptavini er ekki síður
mikilvægur þáttur og kemur meðal
annars fram í stöðugu viðhaldi á ör-
yggisbúnaðinum og aðlögun að hverjum
og einum viðskiptavini eftir aðstæðum
hans.
„Það hefur orðið hugarfarsbreyting í
öryggismálum hér á landi og kæruleysi
hefur minnkað og nánast undantekn-
ing að starfsmenn noti ekki viðeigandi
öryggisbúnað eins og öryggishjálma.
Starfsfólk er í auknum mæli farið að
gera kröfur til sinna vinnuveitenda um
að öryggismál séu í lagi,“ segir Vignir
Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sölu-
trausts.
Lítið gagn af óáfylltum sjúkrakassa
Einn mikilvægur liður í öryggismálum
er að sjúkrakassi sé ekki bara til staðar
heldur að hann sé ávallt uppfærður og
sé með öllu því innihaldi sem fólk reiðir
sig á. „Sjúkrakassinn er sambærilegur
við slökkvitæki að því leyti að ef tekið
er af án þess að fylla á aftur þá verða
þessi tæki gagnslaus og skapa falskt
öryggi. Hluti af okkar þjónustu er að fylla
reglulega á sjúkrakassa og fylgjast með
að allt sé í þeim sem þar á að vera. Til að
minnka rót í sjúkrakössum út af skrám-
um og smáskeinum þá eru plástra-
skammtarar góð lausn og eru mjög
margir af okkar viðskiptavinum búnir að
koma sér upp slíkum búnaði. Einnig eru
hafðir augnskols- og eða brunagels-
plattar hjá sjúkrakössum sem hægt er
að nýta sér eftir þörfum,“ segir Vignir.
Augnskol og brunagel eru líka mikil-
vægur sjúkra- og öryggisbúnaður sem
Sölutraust tryggir að ávallt sé til reiðu
þar sem þess er þörf. „Augnskol gegn
ætandi efnum er bráðnauðsynlegt
á stöðum þar sem menn geta fengið
hættuleg efni í augu. Ég þekki dæmi
um atvik þar sem rafgeymir sprakk og
starfsmaður fékk rafgeymasýru í augun.
Vinnustaðurinn var nýbúinn að fjárfesta
í augnskolsbúnaði og það tókst að skola
augu og andlit í tæka tíð. Maðurinn kom
til vinnu eftir fjóra daga með heil augu,“
segir Vignir.
Olíuþerriklútar og flotgirðingar
Mengunarvarnarbúnaður er annar mik-
ilvægur þáttur í starfsemi Sölutrausts.
Ber þar hæst olíuþerriklúta sem nýtast
til að halda vinnusvæðum hreinum sem
eykur í senn öryggi og ánægju á vinnu-
stað, og hins vegar flotgirðingar sem
lágmarka skaða af mengunarslysum. „Ef
olía fer í sjó er flotgirðingu kastað út og
hún hreinsar upp mengunina á stutt-
um tíma. Þetta eru uppsogspulsur sem
fljóta á vatni og draga eingöngu í sig
olíukennda vökva – en ekki vatn,“ segir
Vignir.
Fyrir utan þetta eru ónefndar vörur
á borð við öryggis- og aðvörunarskilti,
sápur og hreinsiefni, fellistiga, hringstiga
og flóttastiga. Nánari upplýsingar eru á
vefsíðunni solutraust.is. n
SÖLUTRAUST:
Uppfærður öryggisbúnaður