Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 57

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 57
Sérblað völvunnar 28. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ Fyrirtækið Sölutraust hefur verið starfrækt í 15 ár og sérhæfir sig í sölu á ýmsum öryggisvörum, til dæmis sjúkrakössum og skyldum vörum, mengunarvarnarbúnaði og öryggis- merkingum. En þessar mikilvægu vörur eru bara einn þáttur í starfseminni. Þjónustan við viðskiptavini er ekki síður mikilvægur þáttur og kemur meðal annars fram í stöðugu viðhaldi á ör- yggisbúnaðinum og aðlögun að hverjum og einum viðskiptavini eftir aðstæðum hans. „Það hefur orðið hugarfarsbreyting í öryggismálum hér á landi og kæruleysi hefur minnkað og nánast undantekn- ing að starfsmenn noti ekki viðeigandi öryggisbúnað eins og öryggishjálma. Starfsfólk er í auknum mæli farið að gera kröfur til sinna vinnuveitenda um að öryggismál séu í lagi,“ segir Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sölu- trausts. Lítið gagn af óáfylltum sjúkrakassa Einn mikilvægur liður í öryggismálum er að sjúkrakassi sé ekki bara til staðar heldur að hann sé ávallt uppfærður og sé með öllu því innihaldi sem fólk reiðir sig á. „Sjúkrakassinn er sambærilegur við slökkvitæki að því leyti að ef tekið er af án þess að fylla á aftur þá verða þessi tæki gagnslaus og skapa falskt öryggi. Hluti af okkar þjónustu er að fylla reglulega á sjúkrakassa og fylgjast með að allt sé í þeim sem þar á að vera. Til að minnka rót í sjúkrakössum út af skrám- um og smáskeinum þá eru plástra- skammtarar góð lausn og eru mjög margir af okkar viðskiptavinum búnir að koma sér upp slíkum búnaði. Einnig eru hafðir augnskols- og eða brunagels- plattar hjá sjúkrakössum sem hægt er að nýta sér eftir þörfum,“ segir Vignir. Augnskol og brunagel eru líka mikil- vægur sjúkra- og öryggisbúnaður sem Sölutraust tryggir að ávallt sé til reiðu þar sem þess er þörf. „Augnskol gegn ætandi efnum er bráðnauðsynlegt á stöðum þar sem menn geta fengið hættuleg efni í augu. Ég þekki dæmi um atvik þar sem rafgeymir sprakk og starfsmaður fékk rafgeymasýru í augun. Vinnustaðurinn var nýbúinn að fjárfesta í augnskolsbúnaði og það tókst að skola augu og andlit í tæka tíð. Maðurinn kom til vinnu eftir fjóra daga með heil augu,“ segir Vignir. Olíuþerriklútar og flotgirðingar Mengunarvarnarbúnaður er annar mik- ilvægur þáttur í starfsemi Sölutrausts. Ber þar hæst olíuþerriklúta sem nýtast til að halda vinnusvæðum hreinum sem eykur í senn öryggi og ánægju á vinnu- stað, og hins vegar flotgirðingar sem lágmarka skaða af mengunarslysum. „Ef olía fer í sjó er flotgirðingu kastað út og hún hreinsar upp mengunina á stutt- um tíma. Þetta eru uppsogspulsur sem fljóta á vatni og draga eingöngu í sig olíukennda vökva – en ekki vatn,“ segir Vignir. Fyrir utan þetta eru ónefndar vörur á borð við öryggis- og aðvörunarskilti, sápur og hreinsiefni, fellistiga, hringstiga og flóttastiga. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni solutraust.is. n SÖLUTRAUST: Uppfærður öryggisbúnaður
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.