Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 44
44 28. desember 2018Völvuspáin 2019
Sundrung innan
verkalýðshreyf-
ingarinnar
Völvan sér fyrir miklar hamfar-
ir í viðskiptalífinu á næsta ári,
sérstaklega varðandi kjaramál-
in auk þess sem mikill titring-
ur verður á fasteignamarkaði.
„Kjaramálin verða mál málanna
á næsta ári og ef fólk er orðið
þreytt á fréttum af Ragnari
Þór Ingólfssyni þá munu
þær eflaust tvöfaldast
á næsta ári. Annars
skynja ég að Ragn-
ar Þór muni
lenda í vand-
ræðum á næsta
ári. Hann ber sér
fast á brjóst og
hótar öllu illu. All-
ur málflutningur
hans hefur gert það
að verkum að hann
mun eiga erfitt með að
gera málamiðlanir og það
gæti leitt hann út í ógöngur. Sól-
veig Anna Jónsdóttir, formaður
Eflingar, og Vilhjálmur Birgis-
son, formaður Verkalýðsfélags
Akraness, munu feta veg-
inn með Ragnari af hörku
og óbilgirni. Þegar verk-
föll blasa við þá er ekki
víst að sá stuðningur sem
þau töldu vísan verði fyrir
hendi. Það verður sundrung
innan verkalýðshreyfingar-
innar,“ segir völvan. Hún segir
að baráttan muni skaða báða að-
ila, launafólk og atvinnurekendur,
en að endingu muni nást lending
sem enginn verður sáttur við.
Krónan veikist
fram að sumri
Völvan segir að krónan muni
halda áfram að veikjast í byrj-
un næsta árs og það muni hafa
góð áhrif á ferðamannastraum-
inn. „Útlendingar hafa enn mik-
inn áhuga á að heimsækja Ís-
land og munu flykkjast hingað
á nýju ári. Almennt eru að-
ilar í ferðaþjónustu að
standa sig afar vel en ég
skynja að stórt frétta-
mál muni koma upp
varðandi óprúttna
starfshætti hjá stóru
bókunarfyrirtæki,“
segir völvan. Í sum-
ar mun síðan krónan
byrja að styrkjast aft-
ur í þann mund sem Ís-
lendingar byrja að ferðast
til útlanda í sumarfrí.
Áfangi í afnámi
verðtryggingar
Völvan segist einnig sjá stór tíðindi
varðandi afnám verðtryggingar.
„Fjármagnseigendur berjast hat-
rammlega gegn því en að endingu
munu launþegar bera sigur úr
býtum. Það verða stór skref stigin
í afnámi verðtryggingar á árinu
og það verður
gæfu-
spor.“
Lífeyrissjóðir
fá leigufélag í
fangið
Völvan segir að tvö leigufélög
muni glíma við mikla erfiðleika á
næsta ári, sérstaklega þau stærstu.
„Rekstur leigufélaga hefur ver-
ið afar þungur og eitthvað mun
undan láta á næsta ári. Í sum-
um tilvikum duga leigugreiðslur
ekki fyrir vöxtum og afborgun-
um. Ég skynja að að minnsta kosti
eitt stórt leigufélag verði úrskurð-
að gjaldþrota á næsta ári. Eignir
þess félags munu lenda í hönd-
um kröfuhafa, sem eru að stærst-
um hluta íslenskir lífeyrissjóðir.
Umræddir lífeyrissjóðir verða því
skyndilega orðnir með stærstu
leigusölum landsins,“ segir völv-
an og dæsir.
Þá sér hún fyrir sér gjaldþrot
verktaka, sérstaklega þeirra sem
hafa veðjað á dýrar íbúðir í mið-
bæ Reykjavíkur. „Þessar íbúðir
eru ekki að seljast á þessu verði og
það mun skapa talsverðan usla.
Framundan eru mörg stór verk-
efni, til dæmis Valssvæðið og auk
þess rándýrar íbúðir í grennd við
Hörpuna. Fjárfestar í þessum
verk efnum eru byrjaðir að bryðja
kvíðalyf.“
Fyrsti bankinn
seldur
Þá sér völvan, sem greinilega
fylgist ágætlega með viðskiptalíf-
inu, fyrir sér að ríkisbanki verði
seldur á næsta ári. „Flestir hafa
talið að Íslandsbanki yrði fyrsti
bankinn sem hyrfi úr ríkiseigu en
þegar á reynir verður Landsbank-
inn seldur fyrstur. Ástæðan er fyrst
og fremst sú að bankinn er mun
betur rekinn en hinir bankarnir og
nýtur meira trausts. Þó mun ríkið
halda eftir 20–30% eignarhlut í
bankanum,“ segir völvan ákveðin.
Þá sér hún fyrir sér ýmiss konar
sameiningu hjá fyrirtækjum á
fjármálamarkaði. „Þau fyrirtæki
sem ætla að vera samkeppnishæf
verða að hafa aðhald í rekstri.
Menn verða að kaupa freyðivín í
stað kampavíns,“ segir völvan.
Málaferli gegn
GAMMA
Hún segist sjá óvenjulegt mál
blossa upp í tengslum við GAMMA
á næsta ári. „Ég sé mikla reiði varð-
andi brotthvarf stofnandans, Gísla
Haukssonar. Hann á erfitt með
að sætta sig við orðinn hlut og á
næsta ári munu berast fréttir af
málaferlum hans gegn fyrirtæki
sínu.“
LÍFRÆNT
OFURFÆÐI
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Lífrænt rauðrófuduft í hylkjum
Rauðrófur innihalda mikið af næringar- og plöntuefnum, meðal annars
járn, A-, B6- og C-vítamín, fólínsýru, magnesíum og kalíum. Að auki
innihalda þær góð, flókin kolvetni, trefjar og öflug andoxunarefni.
Ingveldur Erlingsdóttir, maraþonhlaupari
„Áhrifin fóru ekki á milli mála, um það
bil tveimur vikum eftir að ég fór að taka
rauðrófuhylkin þá batnaði úthaldið og
þrekið á hlaupum og ég fann bara
almennt fyrir meiri orku.“