Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 70
70 28. desember 2018FRÉTTIR E ins og árið á undan var DV og dv.is í mikilli sókn á ár- inu. DV opnaði nýjan og glæsilegan vef sem lesendur tóku fagnandi. Í nóvember- mánuði féll aðsóknarmet DV í tvígang þegar tæplega 450 þúsund stakir notendur heimsóttu vefinn yfir viku tíma. Að meðaltali voru rúmlega 120 þúsund gestir á dag sem heimsóttu vef DV. Hvers konar miðill er DV í dag? DV er eins og áður, frjáls og óháð- ur og tekur á spillingu. DV hefur hins vegar stækkað og er nú eins og hlaðborð þar sem allir geta fundið bita við sitt hæfi. Miðill- inn birtir í kringum 120 fréttir á dag. Lítill hluti af þeim er svokall- aðar gular fréttir eða æsifréttir. Þær fréttir verða hins vegar oft áberandi vegna vinsælda. Blaða- menn DV hafa haldið áfram að sinna hlutverki sínu þegar kemur að rannsóknarblaðamennsku og má þar nefna ástandið í Krýsuvík, Biskupsmálið eða að vera leið- andi í umfjöllun um Braggamál- ið þar sem bruðlað var með al- mannafé. Þá birti DV fyrstu frétt upp úr Klaustursupptökunum en DV hafði aðgang að upptökunum ásamt Stundinni og Kvennablað- inu. En skoðum hvaða fréttir voru vinsælastar á árinu. Björn Bragi káfaði á stúlku undir aldri Frétt DV um að Björn Bragi Arnarsson, skemmtikraftur og uppistandari, hefði káfað á stúlku undir lögaldri fór í mikla dreifingu á sam- félagsmiðlum. Átti atvikið sér stað eftir skemmtun hjá KPMG á Akureyri, en Björn var veislustjóri þar. Stúlkan sem Björn Bragi áreitti kynferðislega var aðeins 17 ára. Loguðu samfélagsmiðlar í kjölfarið. Björn Bragi baðst af- sökunar opinberlega og í kjölfarið birtu foreldrar stúlkunnar bréf fyrir hennar hönd þar sem hún fyrirgaf Birni Braga. SS stöðvar aug- lýsingar um Árna pylsusala Sláturfélag Suðurlands ákvað að stöðva auglýsingar um Árna pylsusala eftir að eldri dómur vegna kynferðisbrots leikarans Kjartans Guðjónssonar fór á flakk um samskiptamiðla. Dómurinn var frá árinu 1989. Auglýsingarnar um Árna slógu í gegn fyrir löngu en Steinþór Skúlason, forstjóri SS, ákvað eftir að hafa heyrt af dómnum að stöðva allar birtingar á auglýsingunum. Umdeild Hafdís Hafdís Kristjánsdóttir, einkaþjálf- ari og margfaldur Íslandsmeistari í fitness, skrifaði pistil um sjálfsvíg karlmanna. Þar sagði hún að einn og sama daginn hefðu fjórir karl- menn svipt sig lífi. Hún spurði sig hvort sjálfsvígin tengdust femín- isma en tók fram að um vangaveltur væri að ræða. Fréttin varð ein sú um- deildasta á árinu og hart tekist á í athugasemdakerfinu. Guðný í tjaldi með langveikan so Í júlí birtist frétt sem varpaði ljósi á að samfélagið bregst okkar minnstu bræðrum og systrum. Guðný Guðnadóttir er einstæð móðir fjögurra barna, og er yngsta barn hennar langveikt. Íbúðin sem Guðný leigði var seld ofan af þeim og þrátt fyrir stanslausa leit fann hún enga íbúð fyrir fjölskylduna til að flytja í. Lesendur sem og áhrifafólk í samfélaginu var afar ósátt við að svona lagað ætti sér stað í velferðarsamfélagi. Kynlíf í Breiðholtslaug Myndband af pari í ástaratlot- um í Breiðholtslaug fór sem eldur í sinu um samfélagsmiðla í október. Myndbandið var tekið upp af skjá öryggismyndavélar af starfsmanni laugarinnar sem sendi það út til fylgjenda sinna á Snapchat. Aðrir notendur tóku síðan skjáskot af myndbandinu og fóru myndirnar víða. Að sögn forstöðumanns laugarinnar var málið litið alvarlegum augum enda starfsmaður laugarinnar sem stóð fyrir því að dreifa mynd- um af gestum. Íslensk klámstjarna í London Klámstjarnan Tindra Frost á mörg þúsund fylgjendur á sam- félagsmiðlum og hefur unnið til verðlauna fyrir leik í klám- FRÉTTIRNAR SEM VÖKTU ATHYGLI Á ÁRINU Vinsælustu fréttir ársins á DV.IS Ástaratlot gestanna voru tekin upp á öryggismyndavél sundlaugarinnar. Starfs- maður laugarinnar birti síðan myndir af atlotunum á Snapchat. Björn Bragi Guðný þurfti að hírast í tjaldi með langveikan son sinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.