Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 104
Áramótablað 28. desember 2018
50. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 999 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
En Ragnheiður,
er hún ekki
trúlofuð?
FAGLEG
ÞJÓNUSTA OG
RÁÐGJÖF!
ÖLL ÞJÓNUSTA Á SAMA STAÐ
· SMÍÐAVINNA
· MÚRVINNA
· MÁLNINGARVINNA
HÚSAVIÐGERÐIR
ENDURBÆTUR OG NÝSMÍÐI LÓÐAFRAMKVÆMDIR
HELLULAGNIR
· JARÐVINNA
· DRENLAGNIR
· HELLULAGNIR
· ÞÖKULAGNIR
788 8870 eind@eind.is
Lítt þekkt
ættartengsl
Leikarinn og
knattspyrnukempan
E
inn ástsælasti leikari
þjóðarinnar, Stefán Karl
Stefánsson, lést þann 21.
ágúst síðastliðinn og var
þjóðin harmi slegin við fráfall
hans. Stefán Karl hafði glímt
við ólæknandi krabbamein um
langt skeið og háð baráttuna af
slíku hugrekki og æðruleysi að
eftir var tekið.
Stefán Karl var náskyldur
öðrum leikara, Magnúsi Ólafs
syni, sem er frægastur fyr
ir túlkun sína á Bjössa bollu.
Magnús er móðurbróðir Stef
áns Karls. Sonur Magnúsar, og
þannig frændi Stefáns Karls,
er einnig þekktur fyrir leik
ræna tilburði, ekki á sviði held
ur í sjónvarpslýsingum. Það er
knattspyrnu kappinn fyrrver
andi, Hörður Magnússon.
Barnastjarna keppir við bróður sinn í flugeldasölu
E
nn á ný takast bræðurnir
Einar S. Ólafsson og Rún
ar Laufar Ólafsson á á
flugeldamarkaðinum.
Einar rekur Alvöru flugelda í
Akralind og Rúnar Stóra flug
eldamarkaðinn við Smiðshöfða.
Athygli vekur að Rúnar notar
skilti merkt Alvöru flugeldum
til að auglýsa sinn markað. Til
að byrja með ráku bræðurnir
saman flugeldasölu en það
samstarf varði aðeins í eitt ár.
Brugðust illa við
DV hefur áður fjallað um
samkeppni bræðranna og
tóku þeir þá báðir illa í spurn
ingar blaðamanns. „Finnst
þér þetta upphefjandi fyrir þig
sem persónu?“ sagði Einar og
„Hættu að búa til þvælu,“ sagði
Rúnar.
Einar kom Íslendingum fyrst
fyrir sjónir sem barn með hinu
geysivinsæla lagi „Ég vil ganga
minn veg.“ Hann átti þó ekki eft
ir að ílengjast í tónlistinni held
ur gerðist síðar bifvélavirki.
Einar komst aftur í deigluna
þegar hann gekk í það heilaga
í Krossinum með annarri
barnastjörnu, Hönnu Valdísi
Guðmundsdóttur, sem söng
svo ljúflega um Línu langsokk í
eina tíð. Minna hefur farið fyrir
Rúnari á opinberum vettvangi.
Umdeildur bransi
Barátta bræðranna er langt því
frá að vera eini barningurinn
þegar kemur að flugeldamark
aðinum. Lengi vel hefur stað
ið styr milli björgunarsveitanna
annars vegar og einkarekinna
flugeldasala hins vegar. Vilja
sumir meina að það séu hrein
drottinsvik að kaupa ekki flug
elda af björgunarsveitunum.
Hafa þó íþróttafélög og önnur
félagasamtök sem selja flugelda
sloppið að mestu við gagnrýni.
Einnig eru fleiri og fleiri að
komast á þá skoðun að flugelda
eigi að banna alfarið. Þeir sem
beita sér fyrir banninu gera það
á grundvelli umhverfissjónar
miða, dýraverndar og lýðheilsu
sjónarmiða. Enn virðist þó sem
flestir Íslendingar vilji halda
í þennan sið og benda á að
fjöldi útlendinga komi til lands
ins gagngert til að fylgjast með
brjálæðinu.
Ólafur trúlofaður
Ó
lafur Stephensen, fram
kvæmdastjóri Félags at
vinnurekenda, og Ragnheið
ur Agnarsdóttir settu upp
hringana um jólin en þau hafa verið
saman síðan árið 2017.
Ólafur var áður ritstjóri hjá
Morgunblaðinu og Fréttablað
inu. Hann var kvæntur Halldóru
Traustadóttur í tuttugu ár og um
tíma var hann með Hildi Sverris
dóttur, varaþingmanni Sjálfstæðis
flokksins.
Ragnheiður er stofnandi Heilsu
félagsins og starfaði áður
sem framkvæmdastjóri
Tryggingamiðstöðvar
innar. Hún var áður gift
Þórði Friðjónssyni, for
stjóra Kauphallar Íslands,
sem féll frá langt fyrir
aldur fram árið 2011.