Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 46
46 28. desember 2018Völvuspáin 2017
Handboltinn á
allra vörum
Að sögn völvunnar sér hún fyr-
ir sér að handbolti muni eiga
hug þjóðarinnar allrar í byrjun
árs. Íslendingar muni eiga góðu
gengi að fagna á heimsmeist-
aramótinu í handknattleik sem
fram fer í Þýskalandi og Dan-
mörku í janúar. „Væntingar
þjóðarinnar eru miklar fyrir
mótið en liðið á eftir að koma
verulega á óvart og fanga hug
og hjörtu þjóðarinnar. Eins og
vanalega verður Guðjón Val-
ur Sigurðsson í fararbroddi,
en ungir leikmenn munu slá í
gegn. Guðmundur Þ. Guð-
mundsson verður enn á ný
uppáhald allra Íslendinga,“ segir
völvan.
Erfitt ár
hjá karla-
lands-
liðinu
Hún segir að íslenska
karlalandsliðið í fót-
bolta muni eiga í erfiðleikum
á árinu. Liðið mun freista þess
að komast á Evrópumótið 2020
en riðillinn sem liðið lenti í
sé snúinn. Frakkar eru þar
langsterkastir en auk Íslands
eru í honum Tyrkir, Albanir og
Moldóvar. Ljósir punktar munu
sjást inni á milli en liðið mun
verða í erfiðleikum með að
tryggja sér sæti á Evrópumeist-
aramótinu 2020. „Frakkar munu
valta yfir riðilinn og ég sé fyrir
mér neyðarlegt tap gegn þeim.
Við munum áfram hafa ágæt
tak á Tyrkjum en Albanir munu
koma á óvart og reynast okkur
skæðir. Það verður mjög tæpt
hvort við komumst beint áfram
í öðru sæti riðilsins eða þurfum
að sætta okkur við þriðja sætið
og umspil. En ég sé okkar menn
fagna að lokum,“ segir völvan.
Kvennalands-
liðið flýgur
inn á EM
Hún sér þó bara gleði
framundan hjá íslenska
kvennalandsliðinu í
knattspyrnu. „Liðið
lendir í viðráð-
anlegum riðli í
undankeppni EM
og mun fara þar
á kostum. Þær
munu fljúga inn á
EM,“ segir völvan.
Frábært ár
framundan hjá
Gylfa
Gengi íslensku landsliðs-
mannanna hjá félagsliðum
sínum verður líka brokkgengt.
„Árið 2019 verður gott ár hjá
Gylfa Sigurðssyni. Hann verð-
ur potturinn og pannan í leik
Everton og mun skora tals-
vert af mörkum og leggja enn
fleiri upp. Þá sé ég að eitt marka
hans á eftir að vekja gríðarlega
athygli á árinu. Mögulega eitt af
mörkum ársins,“ segir völvan.
Hún bætir við að hún sjái líka
fyrir góðar fréttir úr einkalífi
Gylfa.
Jóhann Berg
seldur –
Aron Ein-
ar breytir
til
Félagar Gylfa í
Englandi verða þó
í erfiðleikum. „Aron
Einar Gunnarsson og Jó-
hann Berg Guðmundsson
verða í bullandi fallbaráttu með
liðum sínum á þessari leiktíð.
Að öllum líkindum munu bæði
liðin falla og í framhaldinu
sé ég breytingar hjá lands-
liðsmönnunum. Jóhann Berg
mun ganga til liðs við stærra
lið í enska boltanum, líklega
Leicester eða West Ham. Hann
hefur sýnt og sannað að
hann á heima á
stærsta sviðinu.
Skrokkurinn
hjá Aroni
Einari er
aðeins
farinn að
gefa eftir
og hann
er ekki
spenntur
fyrir öðru
tímabili í
hinni afar erfiðu
Championship-
-deild. Það er í kortunum að
hann skipti yfir í lið í veik-
ari deild og á framandi slóð-
um. Mig dreymdi draum um að
hann ætti erfitt með að troða
veskinu í rassvasann þannig að
líklega er drjúg launahækkun
framundan,“ segir völvan.
Birkir
nærri
úrvals-
deildinni
Í staðinn gæti annar lands-
liðsmaður komist upp í úrvals-
deildina. „Aston Villa mun eiga
góðu gengi að fagna í Champ-
ionship-deildinni og Birkir
Bjarnason mun fá veigameira
hlutverk undir lokin. Liðið
kemst í umspil um sæti í úrvals-
deildina. Ég sé Birki Bjarnason
fagna innilega í búningi Villa,
liðið kemst því að minnsta kosti
í verðmætasta knattspyrnuleik
hvers árs. Úrslitaleikinn um
sæti í úrvalds-
deildinni.“
Arnór
fer til megin-
lands Evrópu
Stjarna Arnórs Sigurðssonar
mun áfram skína skært á ár-
inu og breytingar gætu verið í
farvatninu. „Arnór mun stimpla
sig inn sem lykilmaður í liðinu
og það úti á kanti. Gylfi held-
ur honum enn um sinn frá
sinni eftirlætisstöðu. Þá
er hann orðinn lyk-
ilmaður hjá CSKA
Mosvku og hann
mun vekja athygli
athygli annarra
liða. Hann mun
brátt verða seld-
ur frá Moskvu til
liðs á meginlandi
Evrópu.“
Kolbeinn
losnar – Alfreð
á faraldsfæti
Völvan segist skynja að það
muni rofa til hjá Kolbeini Sig-
þórsson í byrjun næsta árs.
„Þessari martröð hans í Nantes
mun senn ljúka. Kolbeinn mun
komast í annað lið og mun loks-
ins byrja að spila fótbolta aft-
ur,“ segir völvan. Völvan segist
skynja að Alfreð Finnbogason
muni færa sig um set á næsta
ári.
Sara Björk land-
ar stórum titli
Þá sér hún mikla sigra framund-
an hjá Söru Björk Gunnars-
dóttur, landsliðsfyrirliða Ís-
lands. „Sara Björk og félagar
hennar eiga eftir að fagna stór-
um titli á næsta tímabili. Þar
kemur ekkert annað til greina
en meistaradeildin. Íslenska
landsliðskonan verður í algjöru
lykilhlutverki sem endranær.
Það kæmi mér ekki á óvart ef
Sara Björk yrði kosin íþrótta-
maður ársins fyrir árið 2019
enda mun hún brillera á öllum
vígstöðvum,“ segir völvan.
Þrjú heimsmet –
Hægur uppgangur
Gunnars
Þá segir hún að íslenskir
íþróttamenn muni setja þrjú
heimsmet á næsta ári. Eitt
þeirra mun Júlían J.K. Jó-
hannesson kraftlyft-
ingamaður setja.
Aðspurð um
Gunnar Nelson
segist hún
vera tvístíg-
andi. „Það kem-
ur kannski ekki
á óvart en ég sé
hann alblóðugan
fyrir mér í bardaga
á næsta ári. Hann mun
að öllum líkindum hafa sigur
með naumindum. Hann mun
þó bara berjast einu sinni á
næsta ári og ég skynja reiði í
herbúðum hans. Það geng-
ur hægar að að klífa metorða-
stigann en hann hefði viljað.“
BILASALA
REYKJAVIKUR
BILASALA
REYKJAVIKUR
SÍMI: 587 8888 / BÍLDSHÖFÐI 10 / WWW.BR.IS
LEXUS CT200H. Árgerð 2013, ekinn 73
Þ.KM, bensín, sjálfskiptur. Verð 2.390.000.
Rnr.436005.
JAGUAR F-PACE R-SPORT Árgerð 2018,
NÝR BÍLL , dísel, sjálfskiptur 8 gírar. Verð
9.390.000. Rnr.435826.
LAND ROVER RANGE ROVER SE
DYNAMIC Árgerð 2017, ekinn 19 Þ.KM,
dísel, sjálfskiptur 9 gírar. Verð 6.900.000.
Rnr.435077.