Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 46
46 28. desember 2018Völvuspáin 2017 Handboltinn á allra vörum Að sögn völvunnar sér hún fyr- ir sér að handbolti muni eiga hug þjóðarinnar allrar í byrjun árs. Íslendingar muni eiga góðu gengi að fagna á heimsmeist- aramótinu í handknattleik sem fram fer í Þýskalandi og Dan- mörku í janúar. „Væntingar þjóðarinnar eru miklar fyrir mótið en liðið á eftir að koma verulega á óvart og fanga hug og hjörtu þjóðarinnar. Eins og vanalega verður Guðjón Val- ur Sigurðsson í fararbroddi, en ungir leikmenn munu slá í gegn. Guðmundur Þ. Guð- mundsson verður enn á ný uppáhald allra Íslendinga,“ segir völvan. Erfitt ár hjá karla- lands- liðinu Hún segir að íslenska karlalandsliðið í fót- bolta muni eiga í erfiðleikum á árinu. Liðið mun freista þess að komast á Evrópumótið 2020 en riðillinn sem liðið lenti í sé snúinn. Frakkar eru þar langsterkastir en auk Íslands eru í honum Tyrkir, Albanir og Moldóvar. Ljósir punktar munu sjást inni á milli en liðið mun verða í erfiðleikum með að tryggja sér sæti á Evrópumeist- aramótinu 2020. „Frakkar munu valta yfir riðilinn og ég sé fyrir mér neyðarlegt tap gegn þeim. Við munum áfram hafa ágæt tak á Tyrkjum en Albanir munu koma á óvart og reynast okkur skæðir. Það verður mjög tæpt hvort við komumst beint áfram í öðru sæti riðilsins eða þurfum að sætta okkur við þriðja sætið og umspil. En ég sé okkar menn fagna að lokum,“ segir völvan. Kvennalands- liðið flýgur inn á EM Hún sér þó bara gleði framundan hjá íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu. „Liðið lendir í viðráð- anlegum riðli í undankeppni EM og mun fara þar á kostum. Þær munu fljúga inn á EM,“ segir völvan. Frábært ár framundan hjá Gylfa Gengi íslensku landsliðs- mannanna hjá félagsliðum sínum verður líka brokkgengt. „Árið 2019 verður gott ár hjá Gylfa Sigurðssyni. Hann verð- ur potturinn og pannan í leik Everton og mun skora tals- vert af mörkum og leggja enn fleiri upp. Þá sé ég að eitt marka hans á eftir að vekja gríðarlega athygli á árinu. Mögulega eitt af mörkum ársins,“ segir völvan. Hún bætir við að hún sjái líka fyrir góðar fréttir úr einkalífi Gylfa. Jóhann Berg seldur – Aron Ein- ar breytir til Félagar Gylfa í Englandi verða þó í erfiðleikum. „Aron Einar Gunnarsson og Jó- hann Berg Guðmundsson verða í bullandi fallbaráttu með liðum sínum á þessari leiktíð. Að öllum líkindum munu bæði liðin falla og í framhaldinu sé ég breytingar hjá lands- liðsmönnunum. Jóhann Berg mun ganga til liðs við stærra lið í enska boltanum, líklega Leicester eða West Ham. Hann hefur sýnt og sannað að hann á heima á stærsta sviðinu. Skrokkurinn hjá Aroni Einari er aðeins farinn að gefa eftir og hann er ekki spenntur fyrir öðru tímabili í hinni afar erfiðu Championship- -deild. Það er í kortunum að hann skipti yfir í lið í veik- ari deild og á framandi slóð- um. Mig dreymdi draum um að hann ætti erfitt með að troða veskinu í rassvasann þannig að líklega er drjúg launahækkun framundan,“ segir völvan. Birkir nærri úrvals- deildinni Í staðinn gæti annar lands- liðsmaður komist upp í úrvals- deildina. „Aston Villa mun eiga góðu gengi að fagna í Champ- ionship-deildinni og Birkir Bjarnason mun fá veigameira hlutverk undir lokin. Liðið kemst í umspil um sæti í úrvals- deildina. Ég sé Birki Bjarnason fagna innilega í búningi Villa, liðið kemst því að minnsta kosti í verðmætasta knattspyrnuleik hvers árs. Úrslitaleikinn um sæti í úrvalds- deildinni.“ Arnór fer til megin- lands Evrópu Stjarna Arnórs Sigurðssonar mun áfram skína skært á ár- inu og breytingar gætu verið í farvatninu. „Arnór mun stimpla sig inn sem lykilmaður í liðinu og það úti á kanti. Gylfi held- ur honum enn um sinn frá sinni eftirlætisstöðu. Þá er hann orðinn lyk- ilmaður hjá CSKA Mosvku og hann mun vekja athygli athygli annarra liða. Hann mun brátt verða seld- ur frá Moskvu til liðs á meginlandi Evrópu.“ Kolbeinn losnar – Alfreð á faraldsfæti Völvan segist skynja að það muni rofa til hjá Kolbeini Sig- þórsson í byrjun næsta árs. „Þessari martröð hans í Nantes mun senn ljúka. Kolbeinn mun komast í annað lið og mun loks- ins byrja að spila fótbolta aft- ur,“ segir völvan. Völvan segist skynja að Alfreð Finnbogason muni færa sig um set á næsta ári. Sara Björk land- ar stórum titli Þá sér hún mikla sigra framund- an hjá Söru Björk Gunnars- dóttur, landsliðsfyrirliða Ís- lands. „Sara Björk og félagar hennar eiga eftir að fagna stór- um titli á næsta tímabili. Þar kemur ekkert annað til greina en meistaradeildin. Íslenska landsliðskonan verður í algjöru lykilhlutverki sem endranær. Það kæmi mér ekki á óvart ef Sara Björk yrði kosin íþrótta- maður ársins fyrir árið 2019 enda mun hún brillera á öllum vígstöðvum,“ segir völvan. Þrjú heimsmet – Hægur uppgangur Gunnars Þá segir hún að íslenskir íþróttamenn muni setja þrjú heimsmet á næsta ári. Eitt þeirra mun Júlían J.K. Jó- hannesson kraftlyft- ingamaður setja. Aðspurð um Gunnar Nelson segist hún vera tvístíg- andi. „Það kem- ur kannski ekki á óvart en ég sé hann alblóðugan fyrir mér í bardaga á næsta ári. Hann mun að öllum líkindum hafa sigur með naumindum. Hann mun þó bara berjast einu sinni á næsta ári og ég skynja reiði í herbúðum hans. Það geng- ur hægar að að klífa metorða- stigann en hann hefði viljað.“ BILASALA REYKJAVIKUR BILASALA REYKJAVIKUR SÍMI: 587 8888 / BÍLDSHÖFÐI 10 / WWW.BR.IS LEXUS CT200H. Árgerð 2013, ekinn 73 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur. Verð 2.390.000. Rnr.436005. JAGUAR F-PACE R-SPORT Árgerð 2018, NÝR BÍLL , dísel, sjálfskiptur 8 gírar. Verð 9.390.000. Rnr.435826. LAND ROVER RANGE ROVER SE DYNAMIC Árgerð 2017, ekinn 19 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 9 gírar. Verð 6.900.000. Rnr.435077.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.