Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 60
Sérblað völvunnar 28. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
Byggingafyrirtækið Svalir sér um að hanna svalir fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki. Allar teikn-
ingar sem þarf til byggingarsamþykktar
eru útvegaðar, meðal annars skrán-
ingartöflur og eigendaskiptasamningar.
Fyrirtækið er í eigu Benedikts Sveins-
sonar byggingastjóra en þungamiðjan í
starfsemi hans er breytingar á húsnæði
og viðgerðir vegna lekamála, ekki síst í
tilvikum þar sem staðlar og reglugerðir
hafa ekki verið uppfylltar við fram-
kvæmd.
Benedikt er sérfræðingur í stál-
smíði og með áratuga reynslu á því
sviði. Benedikt er jafnframt með
byggingastjóraréttindi og Svalir útvega
byggingastjóratryggingar þar sem við
á.
Hvort sem verkefnið er stórt eða
lítið, smíði á stálburðarvirki, húsasmíði,
svalir, stigar eða handrið er markmiðið
Svala ávallt að skila af sér óaðfinnan-
legri vinnu og gæðum.
Gamla klassíska útlitið snýr aftur í
nýrri gerð af svölum
Svalir kynna nú nýja tegund af
íbúðasvölum. Viðtekið er með upp-
hengdar svalir að stök halda þeim uppi
að innanverðu en nú verður breyting á:
„Við erum að hætta með þessa
tegund og kynnum nú útfærslu þar
sem knegti eða konsúla er undir svölun-
um við vegginn þannig að yfirborðið er
hreint ásýndar, líkt og svalirnar væru
ásteyptar við húsið. Þetta er sama
yfirbragð og einkennir svalir á gömlu
og virðulegu húsnæði í miðbænum. Ég
rissaði upp þessa hugmynd og sendi
síðan á arkitektinn minn, Harald Ingv-
arsson hjá Plús Arkitektum, og hann er
að teikna þetta inn í þrívídd núna,“ segir
Benedikt en framleiðsla er á næsta leiti.
Sjá nánar um starfsemina á vefsíð-
unni svalir.is n
Jólagjöfin í ár er svalir
Svalir hafa unnið við HR
Svalir hafa unnið við Hörpuna.