Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 40
40 28. desember 2018Völvuspáin 2019 Dagur að kveldi kominn Hún segir að allt annað and- rúmsloft ríki meðal Samfylk- ingarfólks innan borgarstjórn- ar. Þar ríkir ótti og tortryggni. „Braggamálið hefur skaðað Dag B. Eggertsson verulega. Í draumum mínum sé ég hann helsærðan. Hann vonast eftir því að vera sloppinn en handan við sjóndeildarhringinn brýna óvinirnir vopnin, blóðþyrst stríðsgyðja þar fremst í flokki. Varnirnar í kringum borgar- stjóra munu halda enn um sinn en á fyrstu mánuðum hins nýja árs þá munu koma fram nýj- ar upplýsingar í málinu sem valda usla. Boðberinn verður illvígur minkur. Dagar borgar- stjóra eru raun og veru taldir,“ segir völvan. Hún segir að nýr leiðtogi muni taka við taumun- um í borgarstjórnarflokki Sam- fylkingarinnar. „Það verður ljós- hærð kona en hún staldrar stutt við. Augu hennar eru á lands- málunum,“ segir völvan. Leyndarhyggja leggst illa í Pírata Hjá Pírötum logar allt í óreiðu, nú sem endranær. „Það eru mikil átök innan flokksins, á öll- um vígstöðvum. Þar er eins og flokksmenn fagni unnum sigr- um með því að hella í sig rommi og halda villtar veislur. Síðan sest einhver í vitlaust sæti og þá er kutum brugðið á loft. Undan- farin ár hefur eins konar leyniklíka verið starfrækt innan flokksins. Uppgjör fór fram undir lok síðasta árs án þess að mikið bæri á en sá ófriður mun halda áfram inn á nýtt ár. Mestu átökin verða inn- an borgarstjórnararms flokks- ins en þar á bæ verða menn ekki á eitt sáttir við starfshætti Dóru Bjartar Guðjónsdóttur og hennar fylgismanna. Ósættið mun varða þá leyndarhyggju sem ríkir varðandi ýmis störf meirihlutans sem Dóra Björt tekur þátt í að viðhalda. Það er þvert gegn vilja flokks- manna og það leiðir af sér áflog,“ segir völvan. Björn Leví vekur aðdáun Þá sér völvan fyrir sér að árið verði gott fyrir Björn Leví Gunnarsson, þingmann Pírata. „Hann mun veita stjórn- völdum gott aðhald og vekja aðdáun fyrir. Þá mun hann vinna sigur í baráttu sinni gegn óhóflegum kostnaðargreiðsl- um til þingmanna, sérstaklega þegar þeir eru í kosningabar- áttu. Björn beið tímabundinn ósigur á árinu sem er að líða en þetta er þrjóskur maður með eindæmum og barátta hans mun skila árangri. Þá verður hann einnig í fylkingarbrjósti í baráttunni gegn veggjöldum og mun vekja verðskuldaða athygli fyrir,“ segir völvan. Sigmundur telur sig órétti beittan Þegar völvan segist hugsa til Sigmunds Davíðs Gunnlaugs- sonar, formanns Miðflokks- ins, þá komi ein tilfinning sterk upp í huga hennar, einmana- leiki. „Sigmundur er reiður yfir Klaustursfárinu og telur sig hafa verið beittan órétti. Þjóðfélags- umræðan hefur engin áhrif á á skoðun hans. Hann hefur aldrei getað hegðað sér í takt við það sem almenningur vill. Sigmund- ur Davíð er orðinn pólitískt eyland en góðu fréttirnar fyrir hann eru að meirihluti kjós- enda Miðflokksins mun glaður búa á þeirri eyði- eyju með honum. Hann mun því geta setið óá- reittur áfram á þingi en hann er verulega laskaður. Málaferlin gegn Báru Hall- dórsdóttur munu aðeins auka skaðann, það hefði verið farsælla að reyna að láta málið gleymast. Ég sleit krossbönd og fór í fimm liðþófaaðgerðir. Samt hljóp ég hálft maraþon í sumar verkjalaust. Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.