Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Page 18
18 MATUR 15. feb 2019 LOKAÐIR STURTUKLEFAR MEÐ TOPPI, SPORNA GEGN RAKA OG MYGLU Kíktu á sturta.is og skoðaðu úrvalið S. 856 5566 Elli Grill borðaði ekkert í þrjá mánuði n Tekur þátt í Söngvakeppninni n Borðaði frosk í skógi með skottulækni Eitt athyglisverðasta atriði í seinni undankeppni Söngvakeppninnar á laugardaginn er án efa lagið Jeijó, keyrum alla leið, sem flutt er af Ella Grill, Skaða og Glym. Rapphund­ urinn Elli Grill hefur vakið mikla athygli í viðtölum fyrir keppnina, en færri vita að hann hefur afar sterkar og undarlega skoðanir á mat. Ertu mikill matgæðingur? „Já, ég hef alltaf verið það, alveg frá því að ég var gutti að grilla samlokur með tómatsósu á Ingólfstorgi fyrir allar hjólabrettasköturnar. Talandi um skötur þá borðaði ég skötu með honum Edda alla laugardaga úti á sjó, lengst úti á hafi.“ Hvaða þýðingu hefur matur fyrir þér? „Eitt sinn borðaði ég ekkert í þrjá mánuði og drakk bara vatn. Talandi um vatn, hann Róbert vinur minn breytti vatni í vín sem mér fannst alltaf mjög merkilegt.“ Hver er þinn huggunarmatur? „Fiskur sem talar íslensku er alltaf skemmtilegur.“ Hvað er það besta sem þú hefur nokkurn tímann smakkað? „Kóreskt taco í Mathöll Granda er andleg upplifun.“ En það skrýtnasta? „Hollenskur froskur úti í skógi með skottu- lækni. Mjög hress og skemmtilegur kall.“ Hvað með það ógeðslegasta? „Úldið gúllas frá frönskum tónlistarmanni sem heitir Lafontaine. Ég var samt mjög kurteis og kláraði af diskinum og ég er líka mjög stundvís.“ Er einhver matur sem þú getur alls ekki borðað? „Ég get ekki borðað morgunmat því ég er svo stundvís.“ Ferðu eftir einhverju sérstöku mataræði, fylgirðu til dæmis sér­ stökum matarkúrum? „Matarkúrum? Ég leik mér ekki að matn- um.“ Áttu einhverja sérstaklega eftir­ minnilega matarminningu? „Hot spicy chicken sem hann Slick gerði í hverfinu í Tennessee. Hress náungi, kannski aðeins of hress.“ Ertu fíkill í einhvern mat eða drykk? „Ég er með svolitla fíkn í mér, alltaf til í að prófa eitthvað nýtt. Svo er ég líka svo skrýtinn.“ Ef þú þyrftir að velja einn rétt til að borða það sem eftir væri, hvaða réttur væri það? „Ég væri til í að Jói Fel myndi alltaf gera kótelettu handa mér, alla daga og öll kvöld.“ Ertu mikill sætindagrís? „Ég er voða lítið fyrir svín og nammi, en naan-brauð er skemmtilegt fyrir veisluna.“ Ef þú þyrftir að túlka persónuleika þinn í einhverjum rétti, hvaða réttur væri það? „Spiritual kótelettukall.“ Hvernig er að keppa í Söngvakeppninni? „Virkilega skemmtilegt. Ég þekki báða sviðskarlana og hljóðmennina á „showinu“ og ég þekki Friðrik Ómar mjög vel. Að sjálfsögðu eru Hera og Hatari alveg brillj- ant. Ég vil að sjálfsögðu senda stórsveit Reykjavíkur fallegar kveðjur því djassinn er í fjölskyldu minni og ég er fæddur tónlistar- maður. Við erum með skemmtilegt popplag fyrir börnin og krakkanir vita alltaf hvað nýtur sín best“ n „Ég væri til í að Jói Fel myndi alltaf gera kótelettu handa mér, alla daga og öll kvöld. Froskur. Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Hægt að nota úti og inni festist á flísar og í baðkör HREIÐUR.IS K ÍK TU V IÐ Á SMELLTU H ÉR FÆ ST Í A UÐB REKKU 6. KÓPAVOGI AÐLAGAR SIG AÐ UMHV ER FIN UBílabrautin HREIÐUR.IS VEgakort án hindrana fyrir Leyfðu hugmyndafluginu að ráða brautin festist á flísar og í baðkör

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.