Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Qupperneq 21
Heimili og viðhald
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Verktakafyrirtækið 250 litir ehf. sinnir öllum markaðnum þegar
kemur að innan- og utan-
hússmálun, lökkun á útidyr-
um, epoxy-gólflökkun, palla-
málun og mörgu fleira. „Ég
hef rekið fyrirtækið frá árinu
2007 og er með marga góða
starfsmenn sem hafa mikla
reynslu og menntun á bak við
sig. Fyrirtækið stækkar með
hverju árinu sem líður enda
byggjum við á góðu orðspori
frá viðskiptavinum okkar. Við
reddum öllu því sem þarf til
þess að vinna verkin, hvort
sem um er að ræða verktaka,
vinnuvélar, tilskilin leyfi eða
þess háttar,“ segir Stefán Örn
hjá 250 litum.
Enginn ófyrirséður kostn-
aður
„Við vinnum verk fyrir húsfé-
lög, einstaklinga, fyrirtæki, öll
verk sem snúa að viðhaldi.
Við erum einnig mikið í að
þjónusta íbúðir innanhúss;
gólflökkun, lögun á raka-
skemmdum og hvaðeina.
Einnig sinnum við mikið
nýbyggingum og höfum
verið viðriðnir mjög stór og
skemmtileg verkefni undan-
farið. Nú síðast vorum við að
klára stórt verk fyrir SÁÁ í Vík
á Kjalanesi.
Við fengum mikið lof fyrir
góð vinnubrögð enda er það
okkar metnaður að vinna
verkin vel ásamt því að gefa
út nákvæmar verklýsingar
og verðáætlun. Okkar kúnnar
eru ekki að lenda í ófyrirséð-
um kostnaði í enda verks.“
Sinna öllum, stórum og
smáum
250 litir ehf. er með ákveðinn
fjölda fastra starfsmanna
sem margir hverjir eru að
sinna almennum markaði
fyrir 250 liti. Einnig ræður
fyrirtækið inn verktaka eftir
því hversu stór verkefni það
tekur að sér og miðað við
þann tíma sem á að vinna
verkið á. „Þannig getum við
tekið að okkur stærri verkefni
og minni, því þó svo við séum
mikið í stærri verkefnum þá
sinnum við líka smærri verk-
efnum,“ segir Stefán.
Ánægðir fastakúnnar
„Einnig höfum við þjónustað
Ölgerðina til fjölda ára, utan-
húss sem innan, hvort heldur
er í skrifstofu- eða verk-
smiðjurýmum. Við höfum lík-
legast til nýtt allar okkar verk-
aðferðir inni í þessu húsnæði
enda eru rýmin sérstaklega
fjölbreytt og notkunarleiðir
þeirra mismunandi.
Við höfum verið afar
heppnir með samstarfsfé-
laga og kúnnahóp enda hefur
það sýnt sig að þegar fólk
hefur leitað til okkar einu sinni
þá kemur það aftur,“ segir
Stefán.
Nánari upplýsingar má
nálgast á litir.is auk þess sem
þar má leggja inn umsókn um
verðtilboð.
Facebook: 250 litir.
Miðvangur 57, 220
Hafnarfjörður
Netfang: litir@litir.is n
250 LITIR:
Gott orðspor er gulli betra