Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 28
Heimili og viðhald 15. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ
Vínylparket – viðhaldsfrítt
og ótrúlega slitsterkt
S igurður Hansson er dúklagn-ingarmeistari og hefur unnið í því fagi í 30 ár. Undanfarin
17 ár hefur hann auk þess rekið
heildsöluverslunina Múrefni ehf. og
hefur flutt inn múrefni og flotefni.
Síðustu ár hefur fyrirtækið lagt
aukna áherslu á sölu vínylgólfefna
sem hafa mikla og einstaka kosti,
eru til dæmis afar slitsterk. En
hvað eru vínylgólfefni?
„Þetta er oftast kallað vínylpar-
ket og það nafn hæfir því best.
Þetta er plastefni með viðaráferð
eða náttúrusteinsáferð. Þetta er
mjög eðlilegt og fallegt í útliti. Fólk
trúir því varla að þetta sé ekki
parket þegar það gengur á þessu.
Þetta efni hefur margt fram yfir
önnur gólfefni, það er til dæmis
afar mjúkt að ganga á þessu. Það
er ótrúlega slitsterkt og þarf ekkert
viðhald. Gæludýr, atorkusöm börn
eða háhælaskór eru engin ógn við
vínylparketið.“
Að sögn Sigurðar fer notkun á
þessum gólfefnum vaxandi:
„Þetta er ekkert nýtt undir sól-
inni, hefur verið til í mörg ár en er
að ryðja sér meira til rúms. En í
rauninni er þetta enn mjög van-
nýtt gólfefni á Íslandi en er notað
geysilega mikið erlendis. Til dæm-
is í stórum verslunum og annars
staðar þar sem mikill umgangur er
– en einnig á heimilum.“
Vínylparket þolir líka mjög vel
raka og engin hætta er á myglu
eða öðrum slíkum vandamálum.
Múrefni ehf. selur gólfefni frá
enska framleiðandanum Design
Flooring: „Þeir bjóða upp á gríðar-
lega mikið úrval af bæði litum og
týpum. Allt frá ódýrustu týpum
sem lögð eru í heimahús hjá fólki
sem vill ekki eyða miklum pening-
um, og upp í dýrari týpur sem eru
þykkari og með þykkari slithúð. Það
er afar vítt svið í gæðum og verði
og allir geta fundið eitthvað við sitt
hæfi,“ segir Sigurður. Hann segir
jafnframt: „Fólk lætur oftast leggja
þetta fyrir sig en við erum líka með
smellta týpu af þessum efnum,
sem virka eins og smelluparket, og
það er auðvelt fyrir fólk að leggja
það sjálft. Þetta er allt frá tveggja
millimetra efni að þykkt sem er límt
á gólfið og upp í átta millimetra,
sem er lauslagt.“
Vínylparket hentar afar vel þar
sem mikill ágangur er á gólfum, t.d.
í verslunarrými og í öðrum fyrir-
tækjum, sem og á heimilum þar
sem eru börn og gæludýr.
Múrefni ehf. býður einnig upp á
hljóðdempandi gólfefni sem kem-
ur sér vel á stöðum þar sem kyrrð
þarf að ríkja, til dæmis á hótelum.
Afgreiðslutími gólfefnanna er
mjög stuttur en ekki er hægt að
vera með lager af vörunum þar
sem svo margvíslegar gerðir eru í
boði og hver velur efni við sitt hæfi.
Múrefni ehf. er staðsett að
Flugumýri 34. Þar er til staðar sýn-
ingarsalur með gólfefnum og veitt
er fagleg ráðgjöf við val á gólfefn-
um. Síminn er 517-9604. n