Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 30
Heimili og viðhald 15. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ VEGGFÓÐUR: Skemmtileg lausn í gráma hversdagsleikans Ég er búinn að vera í vegg-fóðrun og dúkalagningu í yfir fjörtíu ár og því búinn að viða að mér töluverðri reynslu í þessum bransa. Faðir minn og afi voru líka báðir í þessum geira þannig að ég er fulltrúi þriðju kynslóðar af vegg- fóðrurum í fjölskyldunni. Því má segja að ég hafi reynslu af gömlum og nýjum vinnuaðferðum og efnum sem spanna yfir níutíu ár í sögu veggfóðrunar og dúklagningar,“ segir Einar Beinteinsson, dúklagn- ingar- og veggfóðursmeistari. Skemmtileg lausn „Við sérpöntum veggfóður fyrir viðskiptavini og erum í viðskiptum við nokkra áhugaverða og skemmti- lega aðila sem framleiða slitsterkt og fallegt veggfóður. Þessir aðilar eru mjög mismunandi og spannar úrvalið okkar allt frá hátískuvegg- fóðrum til veggfóðursframleiðenda sem hanna veggfóður með þrjú hundruð ára gömlum mynstrum. Svo erum við í viðskiptum við aðila sem býður upp á heilu myndirnar fyrir veggi. Hægt er að fá mynd af fjöllum, skógi vöxnu svæði, mynd af himninum, þotu eða hverju sem hugurinn girnist. Enn annar fram- leiðandi hjá okkur hannar veggfóður úr náttúruefnum eins og basti og striga. Sérpöntun á veggfóðri tekur yfirleitt um það bil eina viku,“ segir Einar. Ótrúlegir möguleikar með veggfóðri Veggfóðrun er afar vanmetin en sér- lega skemmtileg lausn þegar kemur að því að innrétta hús og gera íbúðir að sínum. „Ólíkt því sem margir halda þá er auðvelt að taka niður veggfóð- ur, en þegar veggfóðrið er komið á þá eru fæstir í þeim hugleiðingum að taka það af,“ segir Einar. Tískan á Íslandi í dag er afar stíl- hrein, sem er gott og blessað. En það er óneitanlega skemmtilegt að brjóta upp allt þetta svarthvíta þema með smá áferð eða mynstri á einum vegg til að koma með smá líf inn í húsið. Margir setja upp veggfóður á einn vegg kannski í stofunni eða í eldhús- inu, rétt til þess að brjóta upp rýmið. Svo eru möguleikarnir alveg óend- anlega margir. „Við settum t.d. um daginn upp veggfóður með mynd af skóglendi í sturtu hjá einum og lökk- uðum yfir. Þetta kom alveg svakalega vel út. Með því að lakka yfir þá lokast veggurinn alveg fyrir rakanum frá sturtunni, líkt og um flísar væri að ræða. Einnig settum við upp vegg- fóður hjá einum á milli efri og neðri skápa í eldhúsinnréttingu. Svo lét hann sníða gler yfir. Glerið er smellt á þannig að það er auðvelt að skipta út veggfóðrinu,“ segir Einar. Það er allt hægt og meira til með veggfóðri í dag enda afar fjölbreyti- legur kostur fyrir þá sem langar að hafa fallegt í kringum sig. Nánari upplýsingar má nálgast á veggfodur.is n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.