Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 34
Heimili og viðhald 15. febrúar 2019KYNNINGARBLAÐ LITLI KLETTUR: Engin vandamál, bara verkefni sem þarf að vinna Litli klettur er öflugt iðnaðarfyr-irtæki sem sinnir margs konar erfiðum verkefnum sem snúa að steinslípun, múrbroti, kjarnaborun og fleiru. „Við erum með öflug verfkæri og bora sem komast í gegnum hvaða vegg eða klöpp sem er. Við vinnum fjölbreytt verk sem fólk leitar til okkar með, enda er mottóið okkar að það séu engin vandamál, bara verkefni sem þarf að vinna. Við erum vanir að bretta upp ermarnar og erum síður en svo hræddir við að verða skítugir á höndunum,“ segir Guðbjartur Jónsson. Nei, það er ekki kviknað í … Stærsti hluti steinslípunar er slípun á nýbyggingum, bæði á lofti og veggj- um. Einnig þarf oft að slípa yfirborð í eldri húsum vegna breytinga eða annars. „Við höfum meðal annars slípað hraunaða, steinaða og málaða veggi. Enn fremur höfum við verið að slípa niður flísalím og ýmislegt annað eins og myglusvepp. Það getur komið töluvert af ryki við steinslípun og hér áður fyrr var stundum kallað í slökkvi- liðið út af öllu rykinu. Fólk hélt að það væri kviknað í húsunum. Í dag hefur tækninni fleygt fram og eru öflugar ryksugur nú orðnar staðalbúnaður hjá öllum okkar starfsmönnum. Slökkvi- liðsheimsóknum hefur snarfækkað í kjölfarið,“ segir Guðbjartur og hlær. Fjölbreytt verkefni „Við hjá Litla kletti erum vel tækjum búnir fyrir kjarnaborun. Við getum borað í loft, veggi og gólf alger- lega óháð steypugerð og þykkt. Einnig erum við með margar gerðir af steypusögum. Gildir einu hvort þú þarft að taka fyrir nýjum glugga eða hurðargati, breikka glugga eða hurðargat – eða fjarlægja veggi, gólf eða svalir. Við sögum fyrir þig óháð steypugerð og þykkt. Að auki fræsum við fyrir hita- og rafmagnsrörum og tökum að okkur rifverkefni á léttum veggjum, loftum, gólfum úr timbri, gifsi og vikri.“ Lítil en kröftug „Við búum yfir margra ára reynslu af afar fjölbreytilegum verkefnum og til að geta verið í fremstu röð í okkar fagi þá höfum við fjárfest mikið í nýjum og góðum tækjum. Við erum meðal annars með sérlega öfluga rafmagns- gröfu sem er nógu lítil til þess að fara inn um venjulegar dyr, en nógu öflug til þess að brjóta upp þrjóskustu klappir sem venjulegar brotvélar bíta ekkert á. Við notuðum hana t.d. í Smáralind til þess að brjóta niður í klöpp fyrir rafmagnsstiga.“ Hjá okkur starfa reyndir starfsmenn sem vinna verkin fljótt og vel. Eitt símtal og við mætum á staðinn og gefum góð ráð eða gott tilboð. Nánari upplýsingar má nálgast á litliklettur.is Járnháls 5F, 110 Reykjavík Sími: 699-0355 Netpóstur: lk@litliklettur.is Opið er alla virka daga frá 8.00– 17.00. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.