Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 37
FÓKUS 3715. feb 2019
Dalvegi 2, 201 Kópavogi Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
eldbakaðar eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
12 ára afmæli Castello
17. - 21. febrúar
Allar stórar pizzur
á matseðli á 1890 kr.
*gildir bara ef sótt
fyrstu 200 fá fría 2 l af kók
12
ÁRA
12
ÁRA
12
ÁRA
PIZZERIA
eldbakaðar
eðal pizzyur
www.castello.is
Ruslminni lífsstíll
Amanda lifir í sátt við dýr og umhverfi
A
manda da Silva Cortes er
íslenskur bloggari, græn-
keri og umhverfissinni, og
starfar sem lyfjafræðing-
ur. Amanda heldur úti vinsælum
Instagram-aðgangi, @amandas-
ophy, þar sem hún deilir með
fylgjendum sínum ýmsum ráðum
um hvernig hægt sé að lifa í sátt og
samlyndi við dýrin og umhverfið
og valda sem minnstum skaða.
DV ræddi við Amöndu um um-
hverfisvæna lífsstíllinn. Hún gefur
lesendum sjö einföld og góð ráð til
að byrja að minnka við sig ruslið.
Bæði á veraldarvefnum og er-
lendis er þessi lífsstíll þekktur sem
„zero waste,“ en Amanda segist
ekki nota það hugtak því það sé
nær ómögulegt að skilja eftir sig
ekkert rusl.
„Ég kalla þetta ruslminni lífs-
stíl sem er ekki alveg „zero waste,“
en margir telja ekki hægt að kalla
þetta „zero waste“ því samfélag-
ið hreinlega býður ekki upp á það.
Þetta heiti býr til óraunhæfar kröf-
ur og leiðir til þess að fólk þorir ekki
að prófa sig áfram því það verður
aldrei fullkomið. Ruslminni lífs-
stíll snýst um að skapa minna rusl.
Við lifum í einnota samfélagi þar
sem allt þarf að gerast svo hratt,
fólk hendir hlutunum strax og það
kaupir nýja. Þau sem aðhyllast
ruslminni lífsstíl vilja breyta því,“
segir Amanda.
Að flokka er ekki lausn
Hvenær byrjaðir þú að aðhyllast
þennan lífsstíl?
„Ætli ég hafi ekki gert það
fyrir alvöru fyrir um einu ári. Ég
var byrjuð að spá í þetta fyrr og
taka þessi fyrstu skref, eins og að
fara með fjölnota poka í búðir og
nota fjölnota kaffimál. Ég byrjaði
að flokka rusl almennilega, en
að flokka er ekki lausn, einung-
is plástur á sárið. Við þurfum að
minnka sorpið sem fer í endur-
vinnslu,“ segir Amanda.
Af hverju ákvaðst þú að fylgja
ruslminni lífsstíl?
„Þetta gerðist frekar hægt og
rólega. En ég held þetta hafi gerst
meðfram grænkeralífsstílnum,“
segir Amanda, en hún hefur ver-
ið grænkeri í um eitt og hálft ár.
„Ég var að fræðast umhverfisáhrif
dýraafurðaiðnaðarins og í leiðinni
datt ég inn á hvað allt er í raun
fjöldaframleitt. Samhliða því að
fara að spá í allt plastið og ruslið
sem endar í hafinu, fór ég að spá í
allan fatnaðinn sem lendir í urðun
og er ekkert pláss fyrir úti í heimi.“
Hvaða ástæðu gefur fólk þér
fyrir því að það lifi ekki ruslminni
lífsstíl?
„Fólk á erfitt með að brjóta
vana og hefðir. Fólk á erfitt með
að trúa að einn einstaklingur geti
haft áhrif og leitt til einhverra
breytinga. Einn einstaklingur
framleiðir svo ótrúlega mikið af
rusli, eins og fatnaði sem er hent
og tíðavörur. Ein manneskja hefur
áhrif,“ segir Amanda. „Um leið og
einstaklingur er opinskár varð-
andi þetta, tekur hann oftar eftir
því sem hægt er að gera betur.
Fólk getur verið feimið við að vera
öðruvísi. Ég legg mig fram um að
mæta með mitt eigið ílát á skyndi-
bitastaði eða bakarí og sýna það
öðrum til að sýna að það er ekkert
mál,“ segir Amanda
Þörf á fræðslu
Líður þér aldrei eins og þú sért ein
í ómögulegri baráttu?
„Ég er alltaf að fara að nenna
þessu. En jú, ég verð stundum óþol-
inmóð og vil að þetta gangi hrað-
ar. Ef ég tek eitt dæmi þá var ég að
hlusta á FM957 á leið í vinnuna á
mánudaginn. Strákarnir voru að
ræða um umhverfisvænan lífs-
stíl og sagðist einn þeirra ekki ætla
að fljúga í nokkra mánuði. Síðan
spurðu þeir hvað meira þeir gætu
gert til að verða umhverfisvænni
og þá kom vandræðaleg þögn. Ég
átti erfitt með mig, það er svo margt
hægt að gera! Það er klárlega þörf
á meiri fræðslu varðandi hvað fólk
getur gert til að gera betur við um-
hverfið,“ segir Amanda.
Hvað getur fólk gert?
„Breyta öllu sem er einnota
yfir í fjölnota. Nota fjölnota poka
og kaffimál, kaupa það grænmeti
sem kemur plastlaust, nota fjöl-
nota grænmetispoka en ekki litlu
glæru plastpokana, keyra minna
og taka strætó oftar, hjóla og ganga
þegar veður leyfir og borða meira
af heilnæmu plöntufæði. Dýra-
afurðaiðnaðurinn mengar meira
en allar samgöngur heimsins sam-
anlagt. Það er rosalega stórt skref að
minnka dýraafurðir,“ segir Amanda.
Í sambúð með kjötætu
Amanda og kærasti hennar, Birgir,
hafa verið saman í fjögur ár og eru
í sambúð. Birgir er hvorki græn-
keri né umhverfissinni eins og
Amanda. Aðspurð hvort það skapi
togstreitu í sambandinu segir Am-
anda að það geti verið erfitt.
„Í fullri hreinskilni þá er að
finna plastpoka heima hjá mér.
Hann reynir að muna eftir fjölnota
poka en kaupir stundum plast-
poka. Mér finnst svo mikilvægt
að fólk átti sig á því að það geti
alveg verið grænkerar og stund-
að ruslminni lífsstíl þótt hinir í
fjölskyldunni geri það ekki. Hver
manneskja sem tekur sig á skiptir
máli,“ segir Amanda og bætir við:
„Ég vil sýna fólki að þetta sé hægt.
Ég geri það sem ég get og það smit-
ar út frá sér til annarra.“
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri að lokum?
„Allir geta lagt eitthvað til mál-
anna. Allir geta gert eitthvað. Taktu
þetta í skrefum og byrjaðu á ein-
hverjum tveimur, þremur atriðum.
Þegar þú ert orðin örugg með það
getur þú byggt ofan á það. Þannig
verður þetta að rútínu. Það er
það sem ég gerði og í dag er þetta
hvernig ég hugsa,“ segir Amanda.
„Jörðin færir okkur fæði, súr-
efni og skjól. Við höfum alls ekki
langan tíma til að komast hjá því
að það fari allt í rugl.“ n
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Amanda mælir
með þessum
heimildamyndum:
(Allar á Netflix)
n A Plastic
Ocean
n The True
Cost
n Cowspiracy
Sjö einföld ráð
Amöndu til að
minnka rusl:
1. Fjölnota í stað einnota. Pokar, mál, ílát, bómullar-
skífur, hnífapör, rör, tíðavörur
og fleira er til fjölnota.
2. Eldaðu meira heima og út-búðu nesti fyrir vinnuna
eða skólann.
3. Notaðu bílinn minna, vertu samferða einhverj-
um, taktu strætó og hjólaðu
eða gakktu meira.
4. Borðaðu meira af heil-næmu plöntufæði.
5. Farðu með ílát þegar þú ert að kaupa mat til að taka
með á veitingastöðum og bak-
aríum. Amanda er alltaf með
fjölnota poka og nestisbox á
sér.
6. Kauptu meira notaðar flík-ur og vörur.
7. Skiptu plastvörum út fyr-ir náttúrulegar trefjar
þegar kostur er á. Til dæmis
bambustannbursta og viðar-
uppþvottabursta í stað plast-
bursta.
„Allir geta gert
eitthvað