Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Qupperneq 44
44 FÓKUS 15. feb 2019
Óvissuför
Brands
n Framtíðarfræðingur lamaðist vegna bakteríu n Ætlar í óhefð-
bundna endurhæfingu í Nepal n Fjarlækningar eru framtíðin
B
randur Karlsson er metn-
aðarfullur frumkvöðull sem
ætlar sér stóra hluti. Hann
kallar sig framtíðarfræðing,
þar sem hann er stöðugt að horfa til
framtíðar og leita lausna til að gera
framtíðina betri. Fyrir um áratug
lamaðist hann frá hálsi og niður en
hann lætur þær takmarkanir sem
lömuninni fylgja ekki stöðva sig.
Þann 7. mars heldur hann af
stað í för sem gæti breytt lífi hans.
Áfangastaðurinn er Nepal en þar
ætlar hann að leggja stund á og
kynna sér óhefðbundna endurhæf-
ingu og kanna hvort grundvöllur sé
til staðar fyrir Ísland og Nepal að
læra hvort af öðru.
Blaðamaður hitti Brand og föru-
neyti, á köldum mánudagsmorgni
á Kjarvalsstöðum.
Væri líklega í öndunarvél í dag“
Fyrir um áratug breyttist Brandur
úr heilbrigðum, ungum manni í
lamaðan mann sem þurfti að not-
ast við hjólastól. „Það gerðist mjög
hægt. Ég fékk líklega einhverja
bakteríu sem hefur komist inn í
heilastofninn minn og valdið ein-
hverjum skaða. Svo er þetta svona
í bland, skaðinn og rýrnunin sem
kemur af því að vera hreyfingar-
laus í svona langan tíma, sem gerir
mig lamaðan.“
Læknar vita þó ekki alveg
hver ástæða veikindanna var,
en hreyfistöðvar heilans eru
óskemmdar, skaðinn er bund-
inn við heilastofninn. „Í segul-
ómun þá sést smá upplýsing, grátt
svæði á heilastofninum sem pass-
ar við einkenni mín. Ég er í raun-
inni heppinn og óheppinn því ef
þetta hefði verið aðeins stærra þá
hefði þetta farið inn í öndunar-
stýringuna. Þá væri ég líklega í
öndunarvél í dag. En maður lærir
að meta það sem maður fær í líf-
inu.“
Fullkomin hetjusaga
Með Brandi í för verða kvikmynda-
gerðarmennirnir Logi Hilmarsson
og Christian Elgaard, sem reka
saman fyrirtækið Vanaheim. Þeim
kynntist Brandur í gegnum samfé-
lagstengd verkefni. „Brandur var
löngu búinn að áætla að fara til
Nepal eða einhvers annars lands í
Asíu og var alltaf að tala um að við
kæmum með honum til að taka
hann upp,“ sagði Logi. Skyndilega
gerði Logi sér grein fyrir að þarna
væri á ferðinni einstök saga.
„Þarna höfum við fullkomna
hetjusögu þar sem hetjan stígur út
í óvissuna og þar er einhvers konar
kennari úti sem tekur á móti hon-
um. Hann er að fara að reyna að
gera góða hluti, breyta til og breyta
sjálfum sér í leiðinni. Þá vorum við
komnir með sögu, þótt við vitum
ekki enn hvernig hún endar, við
vitum bara að þarna er hann að
fara að gera mjög spennandi og
óvenjulega hluti og verður í kjöl-
farið breyttur, ef ekki bara and-
lega. Þá vissum við að þarna væri
gott efni í mynd og við settum allt
annað sem við vorum að vinna við
til hliðar til að einbeita okkur að
þessu.“
Í aðalhlutverki myndarinn-
ar verða Brandur og kærasta
hans, Alma Ösp Árnadóttir, sem
hann kynntist fyrir fjórum árum
á Reykjalundi, en hún skapar, að
sögn Loga, mikið af skemmtileg-
um augnablikum.
Raðfrumkvöðull
Brandur er kallaður framtíðar-
fræðingur eða raðfrumkvöðull.
En hvað felst í því? „Í því felst
að leita stöðugt að lausnum á
óleystum vandamálum, svona
í stuttu máli, og reyna að beita
fyrir tækjastrúktúr á þessar
lausnir,“ sagði Brandur. Hann
hefur mikinn áhuga á ýmsum
samfélagslegum álitaefnum og
hefur til dæmis sérstakan áhuga
á sjálfbærni. Í þessari ferð verð-
ur fókusinn á lausnir fyrir fatlaða
og aldraða, en þeir hópar eiga
margt sameiginlegt. „Draumur-
inn var alltaf að stofna vettvang
þar sem fatlaðir gætu skap-
að sín eigin tækifæri. Það var
svona hugmyndin, frekar en
hefðbundnu lausnirnar þar sem
skapaður er vettvangur þar sem
er bara unnið út frá einhverju
ákveðnu, eins og að plasta blöð
eða búa til samlokur. Frum-
kvöðla- eða startup-heimurinn
er nokkuð sem ég hef mikla trú á
og tel að sé líklegastur til að skila
okkur lausnum á þeim vanda-
málum sem kerfið okkar er ekki
að standa sig í.“
Erla Dóra
erladora@dv.is
Brandur er spenntur að stíga út
fyrir þægindarammann.
MYNDIR: HANNA/DV
Ráin er alhliða veitingahús
í hjarta Reykjanesbæjar
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTEFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR