Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Qupperneq 56
15. feb 2019 7. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Fjandans málfars- fantar! Lítt þekkt ættartengsl Rokkarinn og fréttamaðurinn Í helgarblaði DV er rætt við Aron Leví Beck sem kynntist blóðföður sínum átján ára eftir faðernispróf. Hann er Rúnar Þór Pétursson tónlistar- maður sem Íslendingum er að góðu kunnur. Rúnar hefur verið í bransanum um áratuga skeið, gefið út lager af sólóplötum og leikið með hljómsveitum eins og Trap og Klettum. Yngri bróðir Rúnars er fréttamaðurinn Heimir Már Pétursson sem Íslendingar þekkja meðal annars úr stjórn- málaþættinum Víglínunni og áramótaþættinum Kryddsíld. Heimir var áður virkur í stjórn- málum og gegndi meðal annars stöðu framkvæmdastjóra Al- þýðubandalagsins. Heimir Már hefur samið texta fyrir stóra bróður sinn og fylgdi honum út til London til að taka upp plötu í hinu virta hljóðveri Abbey Road. Kunna KR-ingar ekki íslensku? E ngum dylst að KR-ingar eru góðir í körfubolta. Þeir eru eitt sigursælasta liðið í karladeild og hafa nú unnið fimm Íslandsmeist- aratitla í röð. Hefur félagið nú til sölu bolla eða krúsir sem stuðningsmenn félagsins geta keypt til að monta sig af þess- um árangri. Athyglisvert er hins vegar að þetta fornfræga félag geti ekki auglýst krúsirnar á íslensku. Heita þær „Íslandsmeistara KR mug“ sem er undarlegur bræðingur af íslensku og ensku. Ástæðan fyrir þessu er ekki kunn enn sem komið er. Er fé- lagið að reyna að höfða til yngri kynslóðarinnar sem er orðin hálftvítyngd nú þegar? Eða kunna forsvarsmenn félagsins ekki okkar ástkæra ylhýra? Sviðin jörð eiganda Procar: Fékk milljarða í lán frá Íbúðalánasjóði M ál vikunnar var um- fangsmikið og þaul- skipulagt svindl sem bílaleigan Procar stóð fyrir og upplýst var um í frétta- skýringarþættinum Kveik á RÚV. Meirihlutaeigandi félagsins er Haraldur Sveinn Gunnars- son, gjarnan kallaður Harry, og þegar skyggnst er bak við tjöldin má sjá að viðskiptasaga hans er skrautleg í meira lagi. Haraldur Sveinn var einn af stofnendum Fasteignafélags Austurlands ehf. Félagið fékk milljarða króna lán hjá Íbúða- lánasjóði til uppbyggingar á Austurlandi. Í árslok 2007 átti Haraldur Sveinn félagið ásamt viðskiptafélaga sínum Ágústi Benediktssyni. Í skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð kom fram að á sama tíma og félagið fékk 1,5 milljarða lán frá Íbúðalánasjóði árið 2007 var eiginfjárhlut- fall þess aðeins um 2%. Reglur sjóðsins kváðu þó um að lág- markið væri 10% eiginfjárhlut- fall. Félagið sem fékk lánað frá Íbúðalánasjóði gerði svo samn- inga við félagið Byggingarverk- takar Austurlands ehf. sem var í eigu sömu aðila, um byggingu fjögurra, sex hæða fjölbýl- ishúsa á Reyðarfirði á árunum 2004–2007. Á árunum 2007 til 2009 lækkaði verð á íbúðum á Austur landi um 21% og fast- eignafélaginu blæddi út. Á sama tíma gekk verktakafyrirtækinu allt í haginn og gátu eigendurnir greitt sér út 430 milljónir króna í arð út úr því. Félögin sameinuðust svo undir nafni Fasteignafélags Austurlands ehf. í lok árs 2007. Félagið var svo úrskurðað gjald- þrota árið 2011 og sat Íbúða- lánasjóður uppi með 2,2 millj- arða króna skuld og gríðarlegan fjölda íbúða á erfiðu markaðs- svæði. Haraldur Sveinn ávaxtaði svo sitt pund með því að skella sér út í bílaleigubransann. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.