Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐA
Sandkorn
8. febrúar 2019
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Verndum börnin
F
átt vekur jafn mikla reiði og
þegar brotið er kynferðis-
lega á barni. Það er eitthvað
í frumeðli manneskjunnar,
að vernda börnin. Það hefur verið
okkar hlutverk og okkar ábyrgð
síðan á steinöld og sennilega fyrr.
Samt gerist þetta aftur og aftur.
Upp kemst um mál. Barnaníðing-
ur hlýtur dóm. Afplánar hann. Fer
aftur út í samfélagið. Brýtur á öðru
barni.
Og þetta eru aðeins þau mál
sem upp um kemst. Sum, ef ekki
flest, komast aldrei upp á yfir-
borðið. Sönnunarbyrðin er erfið.
Skömmin liggur þungt á þoland-
anum. Fólk efast um trúverð-
ugleikann. Ekki má splundra fjöl-
skyldunni. Brotin eru fyrnd.
Í hvert sinn sem frétt birtist af
dómi barnaníðings reiðist fólk.
Því finnst dómurinn ekki nægi-
lega þungur fyrir slíkt sálarmorð.
Morðingjar fá mun þyngri dóma og
sumir eiturlyfjasalar líka. Ástæða
reiðinnar er ekki síst fólgin í því að
við vitum að viðkomandi verður
kominn á götuna aftur eftir að af-
plánun lýkur, og hann mun brjóta
af sér aftur. Það er þess vegna sem
borgararnir taka sig saman á sam-
félagsmiðlum og víðar og vakta
þá. Hvar eru þeir núna? Búa þeir í
grennd við börn?
Í grein DV í vikunni um þekkta
barnaníðinga er vísað í grein Kára
Stefánssonar frá árinu 2017. Hann
sagði: „Rannsóknir sýna líka að
þeir sem þjást af fíkn í börn lækn-
ast ekki, aldrei. Börnum stafar því
alltaf hætta af þeim sem hafa leit-
að á börn.“ Þetta kemur ekki frá Jóa
Jóns úti í bæ, heldur læknismennt-
uðum og virtum fræðimanni.
Brotasaga þeirra manna sem um
er rætt í greininni segir sína sögu.
Það er ekki hægt að lækna þetta
og tímabundin afplánun í fang-
elsi eða á geðsjúkrahúsi gerir ekk-
ert nema að fresta vandamálinu og
setja aðra í hættu.
Hvað er þá hægt að gera? Efna-
vönun virðist engu skila því barna-
níðingar hafa haldið áfram eftir að
hafa undirgengist slíka aðgerð. Lít-
ill vilji er til þess að taka aftur upp
dauðarefsingar í landinu, hvorki
við barnaníði, morðum né öðrum
glæpum. Á réttargeðdeildum er
unnið að því að lækna ósakhæfa
einstaklinga til að koma þeim aftur
út í samfélagið.
Okkur skortir úrræði til að tak-
ast á við þetta vandamál sem er
stórt, brýnt og aðkallandi. Taka
þarf á þessum málum með laga-
breytingum og nýju húsnæði. Sér-
stakri öryggisstofnun sem tæki við
þessum brotamönnum og þaðan
kæmu þeir ekki út, aldrei. Eins og
Kári sagði svo réttilega:
„Það verður því að hafa í huga
að þegar níðingunum er sleppt
úr haldi er verið að taka áhættu á
kostnað barna og við verðum að
gera allt sem í okkar valdi stend-
ur til þess að sú hætta verði ekki
að lífstíðarlemstrun á saklausri
barnssál.“ n
Leiðari
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Spurning vikunnar Ætlar þú að horfa á Söngvakeppnina?
Þórhildur fitusmánuð
Í vikunni hefur verið gert
óspart grín að tveimur þing-
mönnum Pírata fyrir að hafa
stillt sér upp við hlið pontu Al-
þingis á meðan Bergþór Ólason
hélt þar ávarp. Þau Björn Leví
Gunnarsson og Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir báru húfur sem á
stóð FO, eða Fokk ofbeldi, aug-
ljóslega í tengslum við þátt
Bergþórs í Klaustursmálinu.
Þórhildur Sunna hefur sérstak-
lega fengið að kenna á því frá
hægrimönnum og dár dregið af
vaxtarlagi hennar. Einn þing-
maður Miðflokksins birti mynd
af henni á samfélagsmiðlum
með húfuna en tók hana síð-
an út þegar umræðurnar voru
orðnar svæsnar og rætnar.
Páll Vilhjálmsson steig einnig
fram á ritvöllinn og skrifaði:
„Lítil húfa á stórum skrokki.“
Hægri krati í heimsókn
hjá VG
Vinstri græn halda málþing á
laugardaginn
í tilefni af tutt-
ugu ára af-
mæli flokksins.
Umræðuefnin
verða loftslags-
breytingar og
staða vinstris-
ins. Ýmsir innlendir og erlendir
gestir ávarpa samkomuna.
Langstærsta nafnið, stjarna
hátíðarinnar, verður
sjálfur Ed Milliband, fyrrver-
andi formaður og ráðherra
breska Verkamannaflokksins.
Milliband var einn af arkitekt-
unum á bak við stórsigur Tonys
Blair í þingkosningunum árið
1997, hinni miklu hægrikrata-
bylgju. Sögðu margir flokkinn
hafa svikið rætur sínar á vinstri
vængnum.
Vekur boð Milliband óneitan-
lega upp spurningar um hvort
Vinstri græn skilgreini sig nú
sem krataflokk, í ljósi þess að
þau eigi erfitt með að keppa við
Sósíalista á vinstri vængnum,
verandi í samstarfi með Sjálf-
stæðisflokknum.
„Nei Ég horfi stundum, en ekki núna.“
Kristján Haraldsson
„Örugglega ekki. Ég
horfi reglulega á þetta, en finnst
lögin ekkert skemmtileg þetta árið.“
Edda Sóley Kristjánsdóttir
„Ég veit það ekki. Hef heyrt
eitt lagið og það var ekki gott.“
Edda Egilsdóttir
„Já, en ég á samt ekki
uppáhaldslag í ár.“
Fannar Pétursson
„Upp kemst um mál.
Barnaníðingur hlýtur
dóm. Afplánar hann. Fer
aftur út í samfélagið. Brýtur
á öðru barni.