Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 29
Heilsa
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Á bak við snyrtivöru-merkið Nature Sense er ilmkjarnaolíu-
fræðingurinn Jackie Cardoso.
Jackie er brasilísk af indíána-
ættum og hefur búið á Íslandi
síðan árið 1992. Hún hefur frá
unga aldri notað og fræðst
um lækningarmátt jurta.
Árið 2002 fór Jackie af
stað með framleiðslu á nátt-
úrulegum snyrtivörum undir
nafninu Yndisseiður. Jackie
hefur einnig menntað sig í
nuddi, ilmkjarnaolíufræði, reiki
og ýmsum öðrum náttúru-
legum meðferðum ásamt því
að sækja námskeið erlendis í
tengslum við þróun og fram-
leiðslu á snyrtivörunum.
Vörurnar nutu mikilla vin-
sælda og árið 2006 opnaði
Jackie verksmiðju ásamt Spa
í Kópavogi. Verksmiðjunni
var lokað árið 2010 í kjölfar
hrunsins. Árið 2012 flutti
Jackie til Vestmannaeyja.
Upphaflega ætlaði Jackie
bara að nudda heima hjá
sér en vegna eftirspurnar frá
viðskiptavinum hófst fljótlega
framleiðsla heima í eldhúsi.
Þegar það fór að spyrjast
út reyndist eldhúsið heima
ekki nóg og smám saman fór
framleiðslan að aukast og er í
gangi af fullum krafti í dag.
Síðustu ár hefur Jackie
haldið áfram að þróa og
aðlaga vörurnar samkvæmt
niðurstöðum nýjustu rann-
sókna um hráefni og ný efni
og getur nú loksins kynnt fyrir
ykkur nýja línu.
„Vörurnar er 100% náttúru-
legar með engum aukaefnum.
Því miður höfum við ekki enn
öðlast vegan-vottun en verið
er að vinna í því, öll okkar
hráefni eru þó vegan og hafa
vottun. Því er óhætt að segja
að vörurnar okkar séu 100%
vegan. Þar sem við erum
ennþá lítið fyrirtæki höfum við
ekki efni á að nota vistvænar
umbúðir, en í stað þess bjóð-
um við upp á áfyllingu á allar
okkar vörur í verslun okkar
í Heilsueyjunni Spa í Vest-
mannaeyjum. Við erum að
vinna að því að bæta við fleiri
sölustöðum, í Reykjavík. Einnig
má senda okkur umbúðir til
áfyllingar í gegnum póst.“
Í dag er Nature Sense selt
í Heilsueyjunni Spa sem stað-
sett er í hjarta Vestmanna-
eyjabæjar. Þar er hægt að
kaupa vörur og áfyllingu eða
fá andlits- og líkamsmeðferð
þar sem notaðar eru Nature
Sense-vörur. Einnig er hægt
að kaupa vörurnar í netversl-
un sem finna má á heimasíð-
unni heilsueyjanspa.is.
Heilsueyjan Spa er að
Vestmannabraut 28, Vest-
mannaeyjum.
Sími: 481-1513
Netpóstur: heilsueyj-
anspa@gmail.com
Fylgstu með á instagram
og facebook n
NATURE SENSE:
Fyrir náttúrulega fegurð