Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Side 33
Heilsa8. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ Jógasetrið var stofnað af eigandanum Auði Bjarna-dóttur. Tilurð Jógasetursins kom til vegna mikils áhuga á jóga. Það byrjaði með meðgöngujóga og löng- um biðlistum og svo vatt þetta upp á sig. Nú er setrið orðið mjög fjölbreytt til að þjóna öllum aldurshópum. „Áhugi á jóga hefur stóraukist með hverju ári og jógastöðvar spretta upp um allan bæ. Við teljum að jóga sé algjörlega fyrir alla því í jóga lærum við fyrst og fremst að stjórna öndun- inni okkar, því að hún er leiðin til að hægja á huganum og finna kyrrðina. Við þurfum öll að hægja á okkur og hlusta á líkamann. Það er mikil- vægt að við nærum og sinnum okkar innra lífi eins og því ytra. Við bjóðum einnig upp á ýmsa viðburði eins og hugleiðslu, tónheilun, gongslökun og möntrukvöld með reglulegu millibili.“ Ævintýralegar jógaferðir Auður er þessa dagana að undir- búa fjölda ferðalaga fyrir þetta árið. „Ég hef kennt undanfarin ár á Krít og Corfu. Í maí verð ég að kenna á gyðjunámskeiði á grísku eyjunni Amorgos. Ég verð svo í kundalini- -kennaranámi á Balí í júlí, og á mön- trunámskeiði í Himalæjafjöllunum í ágúst. Í samstarfi við Heimsferðir fer ég svo með hóp af jógaiðkendum til Spánar. Við verðum í viku í fjöllunum í Andalúsíu, förum í stuttar fjallgöngur og stundum jóga. Það er um að gera að fylgjast með á facebook. Þar mun ég setja fleiri upplýsingar um ferðirn- ar og hvenær hægt sé að skrá sig til þess að fara með,“ segir Auður. Auður heldur utan um ýmiss konar kennaranám í jóga á vegum Jógaset- ursins sem hefur reynst vel, því mikið samfélag hefur myndast í kringum Jógasetrið í gegnum árin. „Þetta er fallegt samfélag og það er gaman að fylgjast með vinskapnum og kær- leiknum sem hefur þróast. Nýjustu tímarnir sem við bjóðum uppá er Vinyasa flæði. Það er tilvalið að byrja morgunninn á góðu Jóga. Einnig erum við með Parajóga þar sem allir geta komið sem hafa með sér félaga. Systkini, frænkur, frændur, mæðgur, feðgar og makar. Þar er áherslan lögð á að anda og hreyfa sig sem eitt, að veita félaga sínum rými og virðingu og mæta honum þar sem hann er. Við notum þar öndunaræf- ingar, jógastöður og hugleiðslu til þess að samstilla okkur.“ Jóga er fyrir alla „Við stöndum fyrir hugmyndina JÓGA FYRIR ALLA og fjölbreytni. Að þjóna vel ólíku fólki og opna fyrir víðsýni gagnvart jógategundum og stílum. Við bjóðum upp á margar tegund- ir jóga og námskeiða svo allir geta fundið eitthvað við hæfi,“ segir Auður. Jógatímarnir og námskeiðin sem boðið er upp á í Jógasetrinu eru fjölmörg: n Grunnnámskeið í Kundalini Jóga n Grunnnámskeið í Hatha Jóga n Kundalini Jóga n Hatha Jóga n Jóga Nidra n Mjúkt Jóga n Jóga fyrir 60+ n Krakkajóganámskeið frá aldrinum 3–14 ára n Meðgöngujóga n Mömmujóga n Karlajóga n Parajóga n Núvitund gegn streitu n 12 spor til vellíðunar n Vinyasa flæði Jógasetrið var opnað árið 2012 í Borgartúni en færðist síðan 2015 í sérhannað húsnæði í Skipholti 50c. „Það er ávallt eitthvað á döfinni hjá okkur og við látum vita af námskeið- um og viðburðum sem eru á döfinni bæði á Facebook-síðu okkar Jóga- setrið og heimasíðunni jogasetrid.is,“ segir Auður. Næsta námskeið er grunnnám- skeið í Kundalini jóga þar sem farið er í undirstöðuatriði jógastaða, jóga- fræði og öndunartækni. Námskeiðið hefst 11. febrúar. „Við bjóðum alla velkomna að kíkja í Jógasetrið Skipholti 50c.“ Nánari upplýsingar má nálgast á jogasetrid.is Sími: 778-1000 Netpóstur: jogasetrid@jogasetrid.is n JÓGASETRIÐ: Þar sem jóga er fyrir alla 60+ hópurinn alltaf hress. Jógagyðjan hún Auður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.