Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Síða 33
Heilsa8. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ
Jógasetrið var stofnað af eigandanum Auði Bjarna-dóttur. Tilurð Jógasetursins
kom til vegna mikils áhuga á jóga. Það
byrjaði með meðgöngujóga og löng-
um biðlistum og svo vatt þetta upp á
sig. Nú er setrið orðið mjög fjölbreytt
til að þjóna öllum aldurshópum.
„Áhugi á jóga hefur stóraukist með
hverju ári og jógastöðvar spretta upp
um allan bæ. Við teljum að jóga sé
algjörlega fyrir alla því í jóga lærum
við fyrst og fremst að stjórna öndun-
inni okkar, því að hún er leiðin til að
hægja á huganum og finna kyrrðina.
Við þurfum öll að hægja á okkur
og hlusta á líkamann. Það er mikil-
vægt að við nærum og sinnum okkar
innra lífi eins og því ytra. Við bjóðum
einnig upp á ýmsa viðburði eins og
hugleiðslu, tónheilun, gongslökun og
möntrukvöld með reglulegu millibili.“
Ævintýralegar jógaferðir
Auður er þessa dagana að undir-
búa fjölda ferðalaga fyrir þetta árið.
„Ég hef kennt undanfarin ár á Krít
og Corfu. Í maí verð ég að kenna
á gyðjunámskeiði á grísku eyjunni
Amorgos. Ég verð svo í kundalini-
-kennaranámi á Balí í júlí, og á mön-
trunámskeiði í Himalæjafjöllunum í
ágúst. Í samstarfi við Heimsferðir fer
ég svo með hóp af jógaiðkendum til
Spánar. Við verðum í viku í fjöllunum í
Andalúsíu, förum í stuttar fjallgöngur
og stundum jóga. Það er um að gera
að fylgjast með á facebook. Þar mun
ég setja fleiri upplýsingar um ferðirn-
ar og hvenær hægt sé að skrá sig til
þess að fara með,“ segir Auður.
Auður heldur utan um ýmiss konar
kennaranám í jóga á vegum Jógaset-
ursins sem hefur reynst vel, því mikið
samfélag hefur myndast í kringum
Jógasetrið í gegnum árin. „Þetta er
fallegt samfélag og það er gaman að
fylgjast með vinskapnum og kær-
leiknum sem hefur þróast. Nýjustu
tímarnir sem við bjóðum uppá er
Vinyasa flæði. Það er tilvalið að byrja
morgunninn á góðu Jóga. Einnig
erum við með Parajóga þar sem allir
geta komið sem hafa með sér félaga.
Systkini, frænkur, frændur, mæðgur,
feðgar og makar. Þar er áherslan
lögð á að anda og hreyfa sig sem
eitt, að veita félaga sínum rými og
virðingu og mæta honum þar sem
hann er. Við notum þar öndunaræf-
ingar, jógastöður og hugleiðslu til
þess að samstilla okkur.“
Jóga er fyrir alla
„Við stöndum fyrir hugmyndina JÓGA
FYRIR ALLA og fjölbreytni. Að þjóna
vel ólíku fólki og opna fyrir víðsýni
gagnvart jógategundum og stílum.
Við bjóðum upp á margar tegund-
ir jóga og námskeiða svo allir geta
fundið eitthvað við hæfi,“ segir Auður.
Jógatímarnir og námskeiðin sem
boðið er upp á í Jógasetrinu eru
fjölmörg:
n Grunnnámskeið í Kundalini Jóga
n Grunnnámskeið í Hatha Jóga
n Kundalini Jóga
n Hatha Jóga
n Jóga Nidra
n Mjúkt Jóga
n Jóga fyrir 60+
n Krakkajóganámskeið frá aldrinum
3–14 ára
n Meðgöngujóga
n Mömmujóga
n Karlajóga
n Parajóga
n Núvitund gegn streitu
n 12 spor til vellíðunar
n Vinyasa flæði
Jógasetrið var opnað árið 2012
í Borgartúni en færðist síðan 2015 í
sérhannað húsnæði í Skipholti 50c.
„Það er ávallt eitthvað á döfinni hjá
okkur og við látum vita af námskeið-
um og viðburðum sem eru á döfinni
bæði á Facebook-síðu okkar Jóga-
setrið og heimasíðunni jogasetrid.is,“
segir Auður.
Næsta námskeið er grunnnám-
skeið í Kundalini jóga þar sem farið er
í undirstöðuatriði jógastaða, jóga-
fræði og öndunartækni. Námskeiðið
hefst 11. febrúar.
„Við bjóðum alla velkomna að kíkja í
Jógasetrið Skipholti 50c.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
jogasetrid.is
Sími: 778-1000
Netpóstur: jogasetrid@jogasetrid.is n
JÓGASETRIÐ:
Þar sem jóga er fyrir alla
60+ hópurinn
alltaf hress.
Jógagyðjan hún Auður