Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Blaðsíða 38
KYNNING
Við tökum þátt í Lífshlaupinu
L ífshlaupið fór af stað 6. febrúar síðastliðinn og stendur yfir til 26.
febrúar. Lífshlaupið er
heilsu- og hvatningarver-
kefni Íþrótta- og Ólympíu-
sambands Íslands sem
höfðar til allra aldurshópa.
Markmið þess er að hvetja
landsmenn til að huga að
sinni daglegu hreyfingu og
auka hana eins og kostur
er.
Í ráðleggingum Embættis
landlæknis um hreyfingu
er börnum og ungling-
um ráðlagt að hreyfa sig í
minnst 60 mínútur á dag
og fullorðnum í minnst 30
mínútur á dag. Allt telur og
er betra en ekkert.
Lífshlaupið var stofnað
árið 2005 og síðan þá hafa
um 200 þúsund manns
tekið þátt. Árlega taka í
kringum 15–20 þúsund
starfsmenn vinnustaða og
nemenda í grunn- og fram-
haldsskólum þátt.
Hvernig tek ég þátt?
Það er afar einfalt að taka
þátt í Lífshlaupinu. Til þess
að skrá sig og sinn vinnu-
stað eða skóla og svo lið, er
farið inn á www.lifshlaupid.
is og þar í Mínar síður.
Auðvelt er að nota sama
aðgang ár frá ári og eins
ef maður hefur tekið þátt
í Hjólað í vinnuna má nota
sama aðgang og notaður
er þar. Það má geta þess
að til þess að auðvelda
þeim skráningu sem halda
utan um daglegu hreyf-
inguna sína í smáforritun-
um Strava og Runkeeper er
auðvelt að lesa inn hreyf-
ingu dagsins úr þeim.
Skemmtilegur keppnisandi
á vinnustöðum
„Við heyrum alltaf reglulega
af fólki sem hefur náð að
finna sér hreyfingu við hæfi
eða hefur fundið sinn takt
í hreyfingu með þátttöku í
Lífshlaupinu og með því að
skrá og halda utan um sína
hreyfingu á vefnum okkar.
Okkur þykir afar vænt um
að heyra árangurssögur
fólks. Þær gefa okkur byr
undir báða vængi og hvetja
okkur líka áfram til að halda
verkefninu á lofti og breiða
út boðskap þess,“ segir
Kristín Birna, verkefnastjóri
Lífshlaupsins.
„En annars er ávinning-
ur Lífshlaupsins klárlega
sá að starfsfólk keppist
við að hreyfa sig við hvert
tækifæri og dæmi eru um
að það myndist skemmti-
legur keppnisandi á vinnu-
stöðum og verið sé t.d. að
nýta hádegið til brjóta upp
daginn og keppa í hinum
og þessum greinum eins
og tröppuhlaupi, reiptogi,
armbeygjum eða öðru
skemmtilegu.“
Mynda- og skráningarleikur
Allir geta tekið átt í
myndaleik Lífshlaups-
ins með því að senda
skemmtilegar myndir í
gegnum heimasíðuna,
Facebook-síðu Lífshlaups-
ins, Instagram með því að
merkja þær #lifshlaupid
eða með því að senda
tölvupóst á lifshlaupið@isi.
is. Einnig er í gangi skrán-
ingarleikur meðan á keppni
stendur og geta þeir sem
eru skráðir til leiks og með
skráða hreyfingu unnið
glæsilega vinninga frá
Skautahöllinni, Klifurhúsinu,
Rush Iceland, Lemon, World
Class og MS. n