Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Page 52
52 FÓKUS - VIÐTAL 8. febrúar 2019 Límd við píanóið Elín Sif er tvítug en hefur samið tónlist frá því hún var barn. Hún á ekki langt að sækja það enda er móðir hennar prófessor í tón- listarmenntun og kennir í háskólanum. „Tónlist var stór hluti af mínu uppeldi. Ég fékk að prófa mig áfram á öllum þeim hljóð- færum sem ég vildi. En ég fann mig ekki í hefðbundnu tónlistarnámi. Það var ekki fyrr en að mamma kenndi mér að hljóma á píanói að nýr heimur opnaðist fyrir mér. Ég var límd við píanóið eftir það.“ Elín sá ekki fyrir sér að verða tónlistarkona. Hún æfði klassískan listdans og fjórtán ára var hún komin í ballettskóla í útlöndum. Hún ætlaði að starfa við dans í framtíðinni en þurfti síðan að hætta við það. „Ég var með mikla sköpunarþörf sem ég fann ekki farveg fyrir fyrr en ég uppgötvaði lagasmíðar. Þegar ég var busi í MH tók ég skjálfandi þátt í lagasmíðakeppni skólans. Mér til mikillar furðu á þeim tíma vann ég keppnina. Það gerði mikið fyrir sjálfs- traustið.“ Losnuðu undan samningi Elín tók mjög ung þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2015. Hún segir það hafa verið mikla óvissuferð. „Upplifunin var mjög klikkuð. Ég lærði ótrúlega mikið og fékk þarna smá stökkpall til að prófa mig áfram. Ég var alltaf mjög spennt fyrir þessari keppni þegar ég var yngri, svo þetta var ákveðinn draumur á þeim tíma. Ég hef samt ekki fundið löngun til þess að taka þátt aftur.“ Í MH stofnaði Elín hljómsveitina Náttsól með bestu vinkonum sínum, Guðrúnu Ólafsdóttur og Hrafnhildi Magneu Ing- ólfsdóttur. Þær sigruðu í Söngvakeppni framhaldsskólanna árið 2016 með flutningi á Hyperballad eftir Björk. „Söngvakeppnin opnaði dyr fyrir okkur sem band og við tókum meðal annars þátt í alþjóðlegri tónlistarkeppni í Tyrklandi. Við höfum upplifað allan pakkann af frábærum tækifærum og algjörri vitleysu. Það er ekki langt síðan við eyddum mörgum mánuðum í að koma okkur út úr samningi við þýskt fyrirtæki sem við vorum í samstarfi við.“ Sami tilgangur í öllum listformum Á síðasta ári sló Elín í gegn í aðalhlutverki í kvikmyndinni Lof mér að falla sem fjallar um harðan heim fíkniefnaneyslunnar. Hún segir leiklistina hafa hjálpað sér í tónlistinni og öfugt. „Að koma fram krefst alltaf þess að setja upp lítið leikrit og koma sér í karakter. Það er í raun sama hvað þú gerir ef þú ert að gera það fyrir framan annað fólk í þeim tilgangi að vekja upp tilfinningar eða segja sögu. Það getur verið sama mótíf og sami tilgangurinn í öllum listformum, en mismunandi leiðir til að koma því til skila.“ Elín gaf út lag sem sólólistamaður á síðasta ári og er nú að vinna í sinni fyrstu sólóplötu. Þá mun hún koma fram á hátíðinni Iceland Airwaves í nóvember. Hún vill lítið gefa upp um leiklistarplönin. „Það er leyndó,“ segir hún dulúðleg, en hún er að hefja leiklistarnám hjá Listaháskólanum í haust. Ný leiklistarverkefni Elínar leyndarmál Leiklistin hjálpaði við tónlistina og öfugt Hin unga Elín Sif Halldórsdóttir skaust upp á stjörnuhimininn í kvikmyndinni Lof mér að falla. Áður hafði hún tekið þátt í Söngvakeppni sjónvarps- ins og sigrað í Söngvakeppni framhalds- skólanna. DV ræddi við Elínu um ferilinn og hvað sé handan við hornið. „Við höfum upplifað allan pakkann af frábærum tækifærum og algjörri vitleysu Guðni Einarsson gudnieinarsson@dv.is NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR KVÍSLARTUNGA, 270 MOSFELLSBÆR 88.500.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Parhús 286 M2 7 KÖGURSEL 20, 109 REYKJAVÍK 77.700.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Einbýli 199 M2 6 DALPRÝÐI, 210 GARÐARBÆR 89.900.000 kr. Tegund Stærð Herbergi Parhús 201 M2 4 Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT Dragháls 14-16 Sími 412 1200 110 Reykjavík www.isleifur.is Straumhvörf í neysluvatnsdælum Grundfos Scala 3-45 Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýsting og hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra Innbyggð þurrkeyrsluvörn Afkastar 8 aftöppunar stöðvum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.