Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2019, Qupperneq 52
52 FÓKUS - VIÐTAL 8. febrúar 2019
Límd við píanóið
Elín Sif er tvítug en hefur samið tónlist frá
því hún var barn. Hún á ekki langt að sækja
það enda er móðir hennar prófessor í tón-
listarmenntun og kennir í háskólanum.
„Tónlist var stór hluti af mínu uppeldi. Ég
fékk að prófa mig áfram á öllum þeim hljóð-
færum sem ég vildi. En ég fann mig ekki í
hefðbundnu tónlistarnámi. Það var ekki
fyrr en að mamma kenndi mér að hljóma á
píanói að nýr heimur opnaðist fyrir mér. Ég
var límd við píanóið eftir það.“
Elín sá ekki fyrir sér að verða tónlistarkona.
Hún æfði klassískan listdans og fjórtán ára
var hún komin í ballettskóla í útlöndum.
Hún ætlaði að starfa við dans í framtíðinni
en þurfti síðan að hætta við það.
„Ég var með mikla sköpunarþörf sem ég
fann ekki farveg fyrir fyrr en ég uppgötvaði
lagasmíðar. Þegar ég var busi í MH tók ég
skjálfandi þátt í lagasmíðakeppni skólans.
Mér til mikillar furðu á þeim tíma vann ég
keppnina. Það gerði mikið fyrir sjálfs-
traustið.“
Losnuðu undan samningi
Elín tók mjög ung þátt í Söngvakeppni
sjónvarpsins árið 2015. Hún segir það hafa
verið mikla óvissuferð.
„Upplifunin var mjög klikkuð. Ég lærði
ótrúlega mikið og fékk þarna smá stökkpall
til að prófa mig áfram. Ég var alltaf mjög
spennt fyrir þessari keppni þegar ég var
yngri, svo þetta var ákveðinn draumur á
þeim tíma. Ég hef samt ekki fundið löngun
til þess að taka þátt aftur.“
Í MH stofnaði Elín hljómsveitina Náttsól
með bestu vinkonum sínum, Guðrúnu
Ólafsdóttur og Hrafnhildi Magneu Ing-
ólfsdóttur. Þær sigruðu í Söngvakeppni
framhaldsskólanna árið 2016 með flutningi
á Hyperballad eftir Björk.
„Söngvakeppnin opnaði dyr fyrir okkur sem
band og við tókum meðal annars þátt í
alþjóðlegri tónlistarkeppni í Tyrklandi. Við
höfum upplifað allan pakkann af frábærum
tækifærum og algjörri vitleysu. Það er ekki
langt síðan við eyddum mörgum mánuðum
í að koma okkur út úr samningi við þýskt
fyrirtæki sem við vorum í samstarfi við.“
Sami tilgangur í öllum listformum
Á síðasta ári sló Elín í gegn í aðalhlutverki
í kvikmyndinni Lof mér að falla sem fjallar
um harðan heim fíkniefnaneyslunnar. Hún
segir leiklistina hafa hjálpað sér í tónlistinni
og öfugt.
„Að koma fram krefst alltaf þess
að setja upp lítið leikrit og koma sér í
karakter. Það er í raun sama hvað þú gerir ef
þú ert að gera það fyrir framan annað fólk í
þeim tilgangi að vekja upp tilfinningar eða
segja sögu. Það getur verið sama mótíf og
sami tilgangurinn í öllum listformum, en
mismunandi leiðir til að koma því til skila.“
Elín gaf út lag sem sólólistamaður
á síðasta ári og er nú að vinna í sinni
fyrstu sólóplötu. Þá mun hún koma fram á
hátíðinni Iceland Airwaves í nóvember. Hún
vill lítið gefa upp um leiklistarplönin. „Það
er leyndó,“ segir hún dulúðleg, en hún er að
hefja leiklistarnám hjá Listaháskólanum í
haust.
Ný leiklistarverkefni Elínar leyndarmál
Leiklistin
hjálpaði við
tónlistina
og öfugt
Hin unga Elín Sif Halldórsdóttir skaust upp á
stjörnuhimininn í kvikmyndinni Lof mér að falla.
Áður hafði hún tekið þátt í Söngvakeppni sjónvarps-
ins og sigrað í Söngvakeppni framhalds-
skólanna. DV ræddi við Elínu um ferilinn
og hvað sé handan við hornið.
„Við höfum
upplifað allan
pakkann af frábærum
tækifærum og algjörri
vitleysu
Guðni Einarsson
gudnieinarsson@dv.is
NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR
KVÍSLARTUNGA, 270 MOSFELLSBÆR
88.500.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Parhús
286 M2
7
KÖGURSEL 20, 109 REYKJAVÍK
77.700.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Einbýli
199 M2
6
DALPRÝÐI, 210 GARÐARBÆR
89.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Parhús
201 M2
4
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT
Dragháls 14-16 Sími 412 1200
110 Reykjavík www.isleifur.is
Straumhvörf
í neysluvatnsdælum
Grundfos Scala 3-45
Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýsting og
hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra
Innbyggð þurrkeyrsluvörn
Afkastar 8 aftöppunar stöðvum