Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 36
Brot af því besta 25. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ
ET Verslun, Klettagörðum 11, er á meðal leiðandi aðila í sölu á ljósabúnaði fyrir ökutæki
og vinnuvélar, þar á meðal eru
ljóskastarar, vinnuljós og afturljós.
Eigendur breyttra jeppa, vinnuvéla
og vörubíla eru á meðal helstu við-
skiptavina verslunarinnar sem sér
þeim fyrir öllum þeim ljósum sem
þá vanhagar um og kappkostar
að selja gæðaljós undir þekktum
merkjum á sanngjörnu verði.
ET Verslun selur framljós, aft-
urljós, hliðarljós, vinnuljós og
ljóskastara. Meðal merkja eru
bandarísku Rigid-ljósin sem slegið
hafa í gegn á Íslandi fyrir frábæra
endingu. Einnig má nefna sænska
merkið LEDSON sem sérhæfir sig
í framleiðslu á díóðuljósum, meðal
annars díóðuljóskösturum, vinnu-
ljósum og perum. Vinsælasti kast-
arinn í dag kallast Pollox og kemur
einmitt frá LEDSON, um er að
ræða 9“ díóðu(LED)-kastara sem
lýsir upp endurskinið á vegstikum í
850 metra fjarlægð.
Nær allir breyttir jeppar eru
með aukaljós og eigendur slíkra
ökutækja ganga að góðu úrvali og
framúrskarandi gæðum í ET Versl-
un, hvort sem um ræðir kastara,
vinnuljós, bakkljós eða inniljós. ET
Verslun er þekkt fyrir góða þjón-
ustu við jeppaeigendur og var
nýlega með bás á jeppasýningu
Ferðaklúbbsins 4X4.
Jafnframt er ljósaúrvalið hjá ET
Verslun ekki síðra þegar kemur að
hliðarljósum og afturljósum sem
eru fáanleg í mörgum stærðum og
gerðum.
ET Verslun hefur verið starf-
andi í yfir 26 ár og hefur því mikla
reynslu af þjónustu við bíleigendur
og eigendur annarra ökutækja, til
dæmis vinnuvéla. Fyrir utan ljósa-
úrvalið er verslunin framarlega
í framboði á vagnavarahlutum,
vökvabúnaði og mörgu öðru. Ávallt
kappkostar ET Verslun að koma
fram með nýjungar sem gagnast
eigendum ökutækja vel.
Sem fyrr segir er verslunin til
húsa að Klettagörðum 11. Opið
er virka daga frá kl. 8 til 18 og
laugardaga frá 10 til 14. Sjá nánar
á et.is undir Verslun og á Face-
book-síðunni ET Verslun. n
ET VERSLUN:
Vinnuljós og öll ljós á bíla