Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 43
Góður biti KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is ELDOFNINN: Fullkomlega eldbakaðar flatbökur Elofninn er með 12–13 pítsur sem bakað-ar eru í eldofni og er eingöngu notaður eldiviður við baksturinn. Eldiviðurinn gefur þennan ekta ítalska eldofnskeim sem fólk sæk- ist eftir þegar það fær sér eldbakaða pítsu. Botninn er stökkur, áleggið er eldbak- að og gómsætt og osturinn teygist eins og enginn sé morgundagurinn. Maður fær vatn í munninn við tilhugs- unina og eina lækningin við því er einfaldlega að verða sér úti um eina ljúffenga pítsu frá Eldofninum. Sjálfvirk alúð tryggir að hver pítsa er einstök Árið 2008, ári áður en Eldofninn var opnaður, fóru hjónin Ellert Aust- mann Ingimundarson og Eva Karlsdóttir til Ítalíu í leit að hentugum ofni. Þau komu heim með eldofn með snúningsplötu, sem tryggir í senn frábæran bakstur, ósvikið viðarofnsbragð og hraða þjónustu. „Eftir að við setjum pítsuna inn í ofninn snýst pítsan og bakast jafnt og þétt á tæpum tveim- ur mínútum,“ segir Evert Austmann Ellertsson, bakari hjá Eldofninum í Grímsbæ. Snúningsplatan í ofninum skapar næstum sjálfvirka alúð við baksturinn, hægt er að afgreiða pítsurnar mjög hratt en þær eru þó afar jafnt og vel bakaðar. „Við getum sett inn sjö til átta pítsur í einu en þegar jafn mikið er að gera eins og er núorðið þá þarf að vera með mann á ofninum til að fylgjast með.“ Allt eldað frá grunni „Við búum til allt frá grunni, sósurnar okkar eru án að- fenginna aukaefna og í hana eru notaðir sætir og safarík- ir plómutómatar. Það sama má segja um hvítlauksolíuna og eldofnsolíuna okkar sem er sterk chili-olía. Rauðlauk- inn skerum við niður hérna og kryddið sem fer í sósuna mallar í potti,“ segir Evert. En hvaða pítsur eru vinsælastar? „Vinsælustu pítsurnar eru yfirleitt þær sem eru kenndar við okkur bakarana og við höfum sett saman eftir okkar smekk, enda erum við allir miklir sæl- kerar. Sigga Spes-pítsan er til dæmis búin að vera vinsælasta pítsan hér í 6–7 ár en á henni eru sveppir, skorið pepperóní, ananas, svartar ólífur, jalapeno, hvítlaukur, rjómaostur og óreganó. Þessi pítsa slær í gegn hjá öllum og er sívinsæl. Óli Spes er svo líklega vinsælasta græn- metispítsan. Veganostur er líka nokkuð sem grænkerar vilja á pítsuna sína og að sjálfsögðu bjóðum við upp á veganost,“ segir Evert. Opin ítölsk stemning í matsalnum Veitingasalurinn á Eldofn- inum er bæði huggulegur og skemmtilegur. Allt er galopið svo viðskiptavinir skemmta sér við að horfa á bakarana þeyta pítsum upp í loftið. „Krakkarnir eru mjög spenntir fyrir þessu, til dæmis að sjá pítsurnar snúast í ofninum,“ segir Evert og honum líkar það vel að matargestir sjái fjöl- skylduna að störfum. Tíu prósenta afsláttur er veittur af mat sem er sóttur og einnig eru alltaf í gangi hádegistilboð virka daga frá 11.30 til 14.00 og þá er staðurinn yfirleitt þéttsetinn. Matseðil og upplýs- ingar um tilboð má finna á heimasíðunni, eldofninn.is Opnunartími Eldofnsins: Þri.–fim. frá 11.30–21.00 Fös. frá 11.30–22.00 Lau. frá kl. 17.00–22.00 Sun. frá kl. 17.00–21.00 Á mánudögum er lokað – þá hleður Eldofnsfjölskyld- an rafhlöðurnar fyrir hina sex daga vikunnar.n ″
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.