Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 47
Góður biti25. janúar 2019 KYNNINGARBLAÐ
Cafe Adesso í Smáralind hefur um árabil verið geysilega vinsælt kaffihús og veitingastaður en
staðurinn var opnaður 7. apríl 2002.
Cafe Adesso er vel sóttur af viðskipta-
vinum Smáralindar en auk þess venur
stór hópur fastagesta komur sínar á
staðinn, meðal annars fólk sem vinnur í
nágrenninu.
Cafe Adesso býður upp á hið rómaða
og bragðmikla Piazza doro-kaffi. Piazza
doro inniheldur Arabica kaffibaunir frá
Ástralíu og er leiðandi kaffiframleiðandi
þar í landi.
Með kaffinu er gott að snæða franska
súkkulaðiköku með rjóma. Mikið úrval er
af alls konar gómsætum kökum. Einnig
eru smurbrauð með roastbeef, laxi,
hangikjöti og fleiru gerð alla daga.
Fjölbreytt úrval af gómsætum mat og
hádegistilboð alla daga
Sem fyrr segir er Cafe Adesso
í senn kaffihús og
veitingastaður.
Geysilegt úrval af tertum og smástykkj-
um er í boði alla daga en matseðla má
skoða á heimasíðu staðarins, adesso.is.
Meðal annars eru crepes hádegistilboð
alla virka daga milli kl. 11.30 og 14.00 á
1.890 krónur, súpa dagsins með brauði
á 1.190 krónur, svo má ekki gleyma Mex-
ikókjúklingasalatinu okkar á 1.890 krónur
alla daga.
Börnin geta valið sér crepes eða þá
panini, já eða bara kleinuhring.
Megináherslan er lögð á fjölbreytni í
starfsemi Cafe Adesso þannig að allir
geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að
ógleymdu kaffinu sem nýtur ómældra
vinsælda.
Nánari upplýsingar má nálgast á
adesso.is
Cafe Adesso er opið mánudaga–mið-
vikudaga frá kl. 11.00 til 19.00, fimmtu-
daga frá 11.00 til 21.00, föstudaga og
laugardaga frá kl. 11.00 til 19.00 og
sunnudaga frá kl. 12.00 til
18.00. n
CAFÉ ADESSO:
Eitt vinsælasta kaffihús landsins