Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 10
10 SPORT 25. jan 2019 Ráin er alhliða veitingahús í hjarta Reykjanesbæjar MATSÖLUSTAÐUR SKEMMTISTAÐUR RÁÐSTEFNUR ÁRSHÁTÍÐIR VEISLUR Tekst Val að stíga hið stóra skref inn í Evrópu? n Ótrúlegur leikmannahópur Vals n Einn besti leikmaður landsliðsins líklega á leið til liðsins V alur er stórhuga fyrir Pepsi- deild karla í sumar. Liðið hefur unnið deildina á tveimur síðustu tímabilum og miðað við hvernig félagið hefur farið að hlutunum í vetur, er allt kapp lagt á að liðið vinni deildina þriðja árið í röð. Valsmenn eru búnir að styrkja liðið hressilega í vetur; hefur misst nokkra góða leikmenn en bætt við sig. Líklegt er að félagið muni styrkja sig enn frekar og allt stefnir í að Hannes Þór Halldórsson, markvörður ís- lenska A-landsliðsins, sé að koma í Val. Þá hafði Ari Freyr Skúla- son, bakvörður Lokeren og lands- liðsins, verið orðaður við liðið. Umboðsmaður hans, Magnús Agnar Magnússon, útilokaði að hann væri á heimleið. Hvalreki að fá Hannes Hannes Þór Halldórsson hefur verið besti markvörður Íslands á síðustu árum, hann er 34 ára gamall og leik- ur í dag með Qarabag í Aserbaídsjan. Þar hefur hann hins vegar fá tæki- færi fengið og íhugar því heimkomu. Hannes á nóg eftir eins og hann sannaði síðasta sumar þegar hann varði vítaspyrnu frá Lionel Messi á heimsmeistaramótinu. Fyrir er Val- ur með Anton Ara Einarsson, sem var í íslenska landsliðinu sem fór í verkefni í Katar. Ef Val tekst að kló- festa Hannes er ljóst að sá efni- legi markvörður gæti leitað annað. Koma Hannesar segir allt um hversu stórhuga Valsmenn eru. Heldur sigurganga Óla Jó áfram? Ólafur Jóhannesson er að hefja sitt fimmta tímabil sem þjálfari Vals. Honum til aðstoðar hefur verið Sigurbjörn Hreiðarsson, en í vetur bættist Kristófer Sigur- geirsson í hópinn. Á fyrstu fjórum tímabilunum hefur Ólafur alltaf unnið titla, fyrstu tvö árin hans í starfi varð liðið bikarmeistari. Tveir Íslandsmeistaratitlar hafa svo fylgt í kjölfarið. Ansi líklegt er að félagið vinni titil í ár og alls ekki ólíklegt að liðið vinni tvöfalt, eitthvað sem hefur reynst erfitt á síðustu árum. Þjálfaferill Ólafs er magnaður, hann vann fjölda titla með FH áður en hann varð lands- liðsþjálfari. Hann stýrði svo Hauk- um áður en hann tók við Val. Fyrsta alvöru Evrópuævintýrið? FH og nú Valur hafa sett sér það markmið að komast í riðlakeppni í Evrópu, um ótrúlegt skref yrði að ræða ef það gengi eftir. FH og Stjarnan hafa komist nálægt því og Valur var ekki langt frá því síð- asta sumar. Miðað við leikmanna- hóp Vals á pappírum í dag ætti liðið að eiga góðan möguleika á að ná þeim áfanga. Aldrei hefur ís- lenskt félag haft jafn mikla breidd í hópi sínum og Valur hefur í dag og árangur liðsins í Evrópu skil- aði félaginu 150 milljónum síð- asta sumar. Takist liðinu til dæmis að komast í riðlakeppni Evrópu- deildarinnar, sem er raunhæfari möguleiki en í Meistaradeildina, myndi sú upphæð verða mun hærri. Erfitt að komast í liðið Það er ljóst að það verður tals- verður höfuðverkur fyrir Ólaf Jóhannes son að velja aðeins ellefu leikmenn í byrjunarlið sitt í sumar. Margir verða ósáttir enda þurfa stór nöfn að setjast á tréverkið eða jafnvel að vera utan hóps. Bjarni Ólafur Eiríksson, sem verið hefur vinstri bakvörður liðsins, er í pásu frá fótbolta. Hann íhugar samt að leika með liðinu í sumar og telja leikmenn Vals að hann muni snúa aftur. Bjarni hefur verið einn besti leikmaður Vals á síðustu árum. Ef Hannes Halldórsson kemur svo á Hlíðarenda, eins og allt stefnir í, þá getur Valur stillt upp tveimur ellefu manna byrjunarliðum sem geta barist á toppi deildarinnar. Þannig gætu menn sem teljast at- vinnumenn, líkt og Emil Lyng og Orri Sigurður Ómarsson, þurft að verma varamannabekkinn. Valur gæti einnig leikið sér með leikkerfi og spilað með þrjá í hjarta varnar- innar, þar er liðið með ótrúlegt magn af gæðum. n Komnir: Birnir Snær Ingason Kaj Leó í Bartalsstovu Garðar Bergmann Gunnlaugsson Emil Lyng Gary Martin Lasse Petry Orri Sigurður Ómarsson Farnir: Patrick Pedersen Guðjón Pétur Lýðsson Andri Fannar Stefánsson Dion Acoff Tobias Thomsen Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Tvö sterk byrjunarlið Vals:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.