Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Qupperneq 10
10 SPORT 25. jan 2019
Ráin er alhliða veitingahús
í hjarta Reykjanesbæjar
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTEFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR
Tekst Val að stíga hið
stóra skref inn í Evrópu?
n Ótrúlegur leikmannahópur Vals n Einn besti leikmaður landsliðsins líklega á leið til liðsins
V
alur er stórhuga fyrir Pepsi-
deild karla í sumar. Liðið
hefur unnið deildina á
tveimur síðustu tímabilum
og miðað við hvernig félagið hefur
farið að hlutunum í vetur, er allt
kapp lagt á að liðið vinni deildina
þriðja árið í röð. Valsmenn eru
búnir að styrkja liðið hressilega
í vetur; hefur misst nokkra góða
leikmenn en bætt við sig. Líklegt
er að félagið muni styrkja sig enn
frekar og allt stefnir í að Hannes
Þór Halldórsson, markvörður ís-
lenska A-landsliðsins, sé að koma
í Val. Þá hafði Ari Freyr Skúla-
son, bakvörður Lokeren og lands-
liðsins, verið orðaður við liðið.
Umboðsmaður hans, Magnús
Agnar Magnússon, útilokaði að
hann væri á heimleið.
Hvalreki að fá Hannes
Hannes Þór Halldórsson hefur verið
besti markvörður Íslands á síðustu
árum, hann er 34 ára gamall og leik-
ur í dag með Qarabag í Aserbaídsjan.
Þar hefur hann hins vegar fá tæki-
færi fengið og íhugar því heimkomu.
Hannes á nóg eftir eins og hann
sannaði síðasta sumar þegar hann
varði vítaspyrnu frá Lionel Messi á
heimsmeistaramótinu. Fyrir er Val-
ur með Anton Ara Einarsson, sem
var í íslenska landsliðinu sem fór í
verkefni í Katar. Ef Val tekst að kló-
festa Hannes er ljóst að sá efni-
legi markvörður gæti leitað annað.
Koma Hannesar segir allt um hversu
stórhuga Valsmenn eru.
Heldur sigurganga Óla Jó
áfram?
Ólafur Jóhannesson er að hefja
sitt fimmta tímabil sem þjálfari
Vals. Honum til aðstoðar hefur
verið Sigurbjörn Hreiðarsson,
en í vetur bættist Kristófer Sigur-
geirsson í hópinn. Á fyrstu fjórum
tímabilunum hefur Ólafur alltaf
unnið titla, fyrstu tvö árin hans
í starfi varð liðið bikarmeistari.
Tveir Íslandsmeistaratitlar hafa
svo fylgt í kjölfarið. Ansi líklegt
er að félagið vinni titil í ár og alls
ekki ólíklegt að liðið vinni tvöfalt,
eitthvað sem hefur reynst erfitt á
síðustu árum. Þjálfaferill Ólafs er
magnaður, hann vann fjölda titla
með FH áður en hann varð lands-
liðsþjálfari. Hann stýrði svo Hauk-
um áður en hann tók við Val.
Fyrsta alvöru Evrópuævintýrið?
FH og nú Valur hafa sett sér það
markmið að komast í riðlakeppni
í Evrópu, um ótrúlegt skref yrði
að ræða ef það gengi eftir. FH og
Stjarnan hafa komist nálægt því
og Valur var ekki langt frá því síð-
asta sumar. Miðað við leikmanna-
hóp Vals á pappírum í dag ætti
liðið að eiga góðan möguleika á
að ná þeim áfanga. Aldrei hefur ís-
lenskt félag haft jafn mikla breidd
í hópi sínum og Valur hefur í dag
og árangur liðsins í Evrópu skil-
aði félaginu 150 milljónum síð-
asta sumar. Takist liðinu til dæmis
að komast í riðlakeppni Evrópu-
deildarinnar, sem er raunhæfari
möguleiki en í Meistaradeildina,
myndi sú upphæð verða mun
hærri.
Erfitt að komast í liðið
Það er ljóst að það verður tals-
verður höfuðverkur fyrir Ólaf
Jóhannes son að velja aðeins ellefu
leikmenn í byrjunarlið sitt í sumar.
Margir verða ósáttir enda þurfa
stór nöfn að setjast á tréverkið eða
jafnvel að vera utan hóps. Bjarni
Ólafur Eiríksson, sem verið hefur
vinstri bakvörður liðsins, er í pásu
frá fótbolta. Hann íhugar samt að
leika með liðinu í sumar og telja
leikmenn Vals að hann muni snúa
aftur. Bjarni hefur verið einn besti
leikmaður Vals á síðustu árum. Ef
Hannes Halldórsson kemur svo á
Hlíðarenda, eins og allt stefnir í,
þá getur Valur stillt upp tveimur
ellefu manna byrjunarliðum sem
geta barist á toppi deildarinnar.
Þannig gætu menn sem teljast at-
vinnumenn, líkt og Emil Lyng og
Orri Sigurður Ómarsson, þurft að
verma varamannabekkinn. Valur
gæti einnig leikið sér með leikkerfi
og spilað með þrjá í hjarta varnar-
innar, þar er liðið með ótrúlegt
magn af gæðum. n
Komnir:
Birnir Snær Ingason
Kaj Leó í Bartalsstovu
Garðar Bergmann Gunnlaugsson
Emil Lyng
Gary Martin
Lasse Petry
Orri Sigurður Ómarsson
Farnir:
Patrick Pedersen
Guðjón Pétur Lýðsson
Andri Fannar Stefánsson
Dion Acoff
Tobias Thomsen
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Tvö sterk byrjunarlið Vals: