Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 42
Brot af því besta 25. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ
Verslunin Móðurást á sér merki-lega forsögu en eigandinn, Guðrún Jónasdóttir, hóf árið
1992 að kaupa brjóstadælur og leigja
þær út. „Ég eignaðist fyrirbura 1987 og
upp úr því stofnuðum við nokkur saman
stuðningshóp fyrir fyrirburaforeldra. Þá
áttaði ég mig á því að þetta vantaði hér
á Íslandi. Ég fór því að kaupa mjalta-
vélar dýrum dómum og leigja þær út,“
segir Guðrún.
Frumkvöðlastarfsemi
Þegar Guðrún stofnaði verslunina
var um sannkallaða frumkvöðlastarf-
semi að ræða sem rekin var af fallegri
hugsjón. „Svona var enginn að gera á
Íslandi og ég gerði mér fljótt grein fyrir
því að það vantaði mikið upp á þjón-
ustuna við mæður nýfæddra barna.“
Starfsemin tók smám saman að vaxa
og breikka og Guðrún fór að selja ýmsan
skyldan varning. Fyrst var hún bara
með þetta heima hjá sér en árið 2002
opnaði hún verslunina Móðurást sem í
dag er bæði verslun við Laugaveg 178
og vefverslun.
Brjóstaráðgjöf
„Ég veiti líka brjóstagjafarráðgjöf fyrir
konur sem þurfa á slíku að halda en ég
er menntaður brjóstagjafarráðgjafi.
Sérhæfing mín felst í þessu ásamt því
að ég sel allt sem snertir brjóstagjöf,
allt sem gæti þurft við mismunandi
aðstæður við brjóstagjöf,“ segir Guðrún,
sem segir starfið mjög gefandi og hún
sé lánsöm að fá að starfa við áhugamál
sitt og hugsjón, ekki séu allir svo heppnir.
Mjaltavélar, ungbarnavogir, snuð, leik-
föng, fatnaður, barnavagnar…
Fyrir mæður með börn á brjósti fæst
mikið úrval af undirfatnaði í Móðurást,
auk þess sem bæði mjaltavélar og ung-
barnavogir eru leigðar út. Í versluninni
fást ýmsar ungbarnavörur, sem henta
vel fyrir börn frá fæðingu fram á annað
ár, allt frá snuðum, leikföngum og fatn-
aði, til Silvercross-barnavagna og kerra,
svo eitthvað sé nefnt. Þroskaleikföng frá
Lamaze og Chicco eru vinsæl leikföng.
Dúkkan Lottie er einnig vinsæl fyrir eldri
börn, hún er í réttum stærðarhlutföllum
og einnig fæst fjöldi fylgihluta fyrir hana.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefversluninni modurast.is. Sumar vörur
eru eingöngu til sölu í vefversluninni en
það er engu að síður hægt að sækja
þær í verslunina. Margir viðskiptavinir
skoða vörurnar vandlega á vefnum
en koma síðan í verslunina til að skoða
betur og fá ráðgjöf.
Vefverslun: modurast.is
Móðurást er staðsett að Laugavegi
178, við hliðina á gamla útvarpshúsinu.
Sími: 564-1451
Netfang: modurast@modurast.is
Opnunartími er mánudaga–föstu-
daga frá kl. 11 til 18 og laugardaga frá
12 til 16. n
VERSLUNIN MÓÐURÁST:
Býður upp á allt
fyrir ungbarnið