Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 48
48 Tímavélin Gamla auglýsinginSiglfirðingur 18. október 1930 25. janúar 2019 T ímavél DV hefur undan- farið fjallað um beinafund- inn við Faxaskjól árið 1975. DV hefur nú undir höndum skjöl rannsóknarlögreglunnar og réttarmeinafræðinga sem gefa sterklega til kynna að beinin hafi ekki alltaf legið í byrginu sem þau fundust í. Einnig hvernig rann- sóknin beindist að hvarfi Svein- bjarnar Jakobssonar frá árinu 1930. Ekkert hár og engar neglur Beinin fundust í Faxaskjóli fyrir til- viljun þann 7. júlí árið 1975 þegar krakkar úr hverfinu voru að grafa göng. Lögreglan kom á svæðið, gerði tveggja tíma frumrannsókn og safnaði beinum og munum. Í skýrslum lögreglunnar kemur fram að aftur var farið á vettvang þann 12. júlí til að leita að frekari vísbendingum. Með í för var Brian Desmont Holt, sem hafði starfað í lögreglunni á Keflavíkurvelli, og sonur hans Anton. Anton var sagnfræðinemi og hafði komið að fornleifauppgreftri áður. Hann kunni því að fara með jarðveg. Að þessu sinni var grafið mun meira og moldin fínkembd. Engin föt fundust í þessum uppgreftri, en annað var merkilegra. Í skýrslunni segir: „Hvergi var að finna neitt sem benti til þess að það væri hár af manni, eða neglur, en að áliti Ant- ons hefði slíkt átt að finnast, ef beinagrindin væri af manni, sem legið hefði í jörðu „á sama stað“, í sem næst 20 ár.“ Einnig fundust engir fitublettir á steyptu gólfinu sem hefði mátt ætla að væru til staðar ef líkið hefði legið þar. DV ræddi við Anton um þennan gröft en hann man ekki allt í smáatriðum, enda nærri hálf öld liðin. Hann mundi þó eftir því að rætt hefði verið um að beinin hefðu hugsanlega verið færð til á þennan stað. Sérstak- lega í ljósi þess að beinin voru til- tölulega dreifð og ekki aðeins þau sem börnin höfðu fundið. Benti það til þess að lík hefði ekki verið sett þarna niður til að rotna heldur bein sem áður hefðu legið annars staðar. Fram að þessu hafði rannsókn lögreglunnar beinst að manns- hvörfum frá fyrri hluta sjötta áratugarins. Eftir þennan gröft beindist rannsóknin hins vegar að eldra máli, hvarfi Sveinbjarnar Jakobssonar frá árinu 1930. Þekkt svallhús Hvarf Sveinbjarnar Jakobssonar þann 9. október árið 1930 er með þeim dularfyllri í Íslandssögunni og lögreglan rannsakaði það sem sakamál. Sveinbjörn, sem var 45 ára gamall sjómaður frá Ólafsvík, var í heimsókn í Reykjavík eftir vel heppnaðan síldartúr. Um tíma lék grunur á að ábúendur á bæn- um Sauðagerði tengdust málinu. Þangað var hann keyrður af leigu- bílstjóra daginn sem hann hvarf. Þegar leigubílstjórinn hafði sam- band við lögregluna til þess að fá aðstoð við að innheimta túrinn fannst Sveinbjörn hvergi og fólkið í Sauðagerði sagðist ekki kannast við að Sveinbjörn hefði komið þangað. Sveinbjörn dvaldi hjá Sigríði, dóttur sinni, og tengdasyni á Meistaravöllum í vesturbæ Reykja- víkur í fimm daga. Ætlaði hann aftur heim til Ólafsvíkur kvöldið 10. október með strandferðaskip- inu Esju en um borð skilaði hann sér aldrei. Tengdasonurinn, Hjalti Einarsson, tilkynnti hvarfið. Sveinbjörn var drykkfelldur maður og mikið ölvaður á öðrum tímanum þann 9. október, þegar hann fór frá Meistaravöllum. Sagði Hjalti lögreglunni að Sveinbjörn hefði pantað sér leigubíl og farið að bænum Sauðagerði til þekktrar spákonu er hét Jósefína Eyjólfs- dóttir. Í Sauðagerði, sem er nú við Reynimel, var oft glatt á hjalla á þessum árum og oftar en ekki vín haft um hönd. Klukkan þrjú hafi aftur verið hringt á leigubíl fyrir Sveinbjörn. Var honum þá ekið á Laugaveg 33B. Þar hafi Svein- björn skroppið inn og síðan farið að Sauðagerði að nýju. Fékk ekki greitt Leigubílstjórinn sem ók Sveinbirni hét Skúli Eggertsson, 25 ára gam- all og starfaði fyrir stöðina Bifröst. Í yfir heyrslu sagði Skúli að eiginmað- ur Jósefínu, Halldór Sigurðsson á Sauðagerði eða „Halldór rukkari“, hefði hringt og beðið um bíl. Þang- að fór hann og beið fyrir utan í fimm mínútur þangað til Jósefína og mað- ur, sem reyndist vera Sveinbjörn, komu út. Í skýrslunni segir: við göm lu höfnina Eilíf ham ingja Kæ st stórskata og tindabykkja m eð öllu tilheyrandi. Steingrím ur í eftirrétt á aðeins 2.350 kr. Skatan er í boði 1. des m illi 11.30 og 14.00, og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn. Siginn fiskur og selspik m eð tilheyrandi. Steingrím ur í eftirrétt á aðeins 1.950 kr. Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá 4.des.–23. des. í hádeginu m illi 11.30–14.00. Sæ greifinn við Geirsgötu Tekið er á m óti pöntunum fyrir Þorláksm essu í 553-1500 TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KÆRU BÆNDUR! við gömlu höfnina 2FYRIR1 3.440 KR GRILLAÐ ÞORSKSPJÓT, HUMARSÚPA & BRAUÐ n Lögregluskýrslur varpa ljósi á rannsókn beinanna við Faxaskjól n Beinin ekki alltaf hvílt í gryfjunni?„Ég get ekki gefið mikl- ar upplýsingar af föður mínum, meiri en við gáf- um þá. Ég hafði lítið af honum að segja. SJÓMAÐUR HVARF VIÐ ÞEKKT SVALLHÚS Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.