Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 8
8 25. jan 2019FRÉTTIR - ERLENT S kömmu fyrir jól tilkynnti Donald Trump Banda- ríkjaforseti að bandarískar hersveitir yrðu kallaðar heim frá hinu stríðshrjáða Sýr- landi. Heiko Maas, jafnaðarmaður og utanríkisráðherra Þýskalands, var ekki sáttur við þetta og lét óánægju sína í ljós á sama hátt og Trump, hann nöldraði á Twitter. „IS (Íslamska ríkið) hefur verið hrakið aftur á bak en hættan er enn fyrir hendi. Það er hætta á að þessi ákvörðun geti skaðað bar- áttuna gegn IS og þann árangur sem náðst hefur. Baráttan gegn IS veltur á langtímaaðgerðum. Til að koma á jafnvægi er þörf á öryggi og pólitískum stöðugleika. Af þeim sökum vinnum við með banda- mönnum okkar að pólitískum að- gerðum.“ Þetta tíst hans var harðlega gagnrýnt. Þjóðverjar taka þátt í baráttunni gegn IS í Sýrlandi und- ir forystu Bandaríkjanna en þetta stærsta og valdamesta ríki Evrópu er ekki með neina hermenn sem taka þátt í beinum átökum í landinu. „Ef manni finnst þessi ákvörðun röng verður maður að gera það sjálfur (senda hermenn til orrustu, innsk. blm.). En það viljum við auðvitað ekki. Við sitj- um eins og áhorfendur í leikhúsi – eins og þetta snerti okkur ekki,“ sagði Christoph von Marschall, blaðamaður hjá þýska dagblaðinu Tagesspiegel og höfundur margra rita um utanríkispólitík. Hann er ekki einn um að blanda sér í umræðuna um utanríkis- stefnu Þýskalands en hún er meira uppi á borðinu núna en venju- lega þar sem Þýskaland á nú sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sem tekur einmitt ákvarðanir um hvort aðildarríkin eigi að senda hermenn í stríð. Það er auðvitað ekki auðvelt fyrir ríki, sem situr tímabundið í ráðinu, að hafa mikil áhrif á störf þess en sumir telja þó að það þurfi að reyna að hafa áhrif. Sérstaklega í ljósi margra breytinga á alþjóðavettvangi á undanförnum misserum. Þar má nefna að Bandaríkin, undir forystu Trump, vilja ekki lengur ábyrgjast öryggi og frið í Evrópu. Brexit get- ur einnig aukið óöryggi í Evrópu. Þá hefur framganga Rússa á Krím- skaga og í austurhluta Úkraínu ekki verið til þess fallin að bæta nætursvefn þeirra sem aðhyllast frjálslynda heimsskipan. Fjögur svið sem á að beina athygli að Heiko Maas hefur bent á fjögur svið sem Þýskaland á að beina mestri athygli að á meðan landið á sæti í öryggisráðinu. Þetta eru loftslagsmál, málefni kvenna, af- vopnun og vernd starfsmanna hjálparsamtaka. Þetta eru allt verk efni sem eru verðug við- fangsefni en margir telja að ekki sé gengið nógu langt og að hræðslan við að senda þýska hermenn til stríðsátaka sé svo mikil að Þjóð- verjar séu átakafælnir og reyni því að komast hjá málum sem gætu kallað á hernaðaraðgerðir. Stóru stjórnarflokkarnir hafa ekki gert neina viðbragðsáætlun eða markað stefnu vegna næstu stóru krísu sem skella mun á heimsbyggðinni. Þegar atkvæði voru greidd í öryggisráðinu 2011 um hernaðaraðgerðir í Líbíu sátu Þjóðverjar hjá þrátt fyrir að óttast væri að þjóðarmorð væri í upp- siglingu. Þýsk stjórnvöld geta þó varpað öndinni léttar yfir þessari ákvörðun því í framhaldinu varð algjört öngþveiti í Líbíu og hefur hernaðaríhlutun Sameinuðu þjóðanna fyrir vikið verið harðlega gagnrýnd. Allt þetta hefur valdið því að mál sem þessi eru ekki rædd meðal þýskra ráðamanna og utanríkis- og öryggismál fá litla umræðu innan ríkisstjórnarinnar. Þá hafa gagnrýnendur bent á að bæði Angela Merkel kansl- ari og Maas hafi skapað ákveðnar væntingar hjá öðrum Evrópuríkj- um um að Þýskaland yrði fulltrúi evrópskra sjónar- miða í öryggisráðinu en muni ekki bara taka þýskar hugmyndir og halda því fram að þær séu evrópskar. Það hefur einmitt gerst og má í því sambandi nefna flóttamannakrís- una sem skall á Evrópu 2015. Þá lýstu Þjóðverjar eftir samstöðu Evrópuríkja um aðgerðir eftir að hafa árum saman skellt skollaeyrum við beiðni Ítala og Grikkja um það sama. Þetta þykir mörgum draga úr trúverðugleika Þjóðverja á alþjóða- vettvangi. Aðrir hafa bent á að Þjóðverjar hafi tek- ið á sig meiri ábyrgð á alþjóðavettvangi á undan- förnum árum, sérstaklega í samningaviðræðum í alþjóða- deilum. Til dæmis hafi Merkel borið þungann af samningavið- ræðum í málefnum Úkraínu og Rússlands. En öðrum finnst að Þýskaland eigi einmitt að sýna sömu ábyrgðartilfinningu í ör- yggisráðinu þar sem landið geti gegnt stóru hlutverki í lausn mála, hvort sem það er í Sýrlandi, Úkra- ínu eða annars staðar. Þýskaland megi ekki bara standa aðgerða- laust á hliðarlínunni, Þýskalandi verði að koma að lausn mála. n Hörð gagnrýni á utanríkisstefnu Þýskalands Getur landið stigið út úr skugga síðari heimsstyrjaldarinnar? „Þá hefur framganga Rússa á Krímskaga og í austurhluta Úkraínu ekki verið til þess fallin að bæta nætursvefn þeirra sem að- hyllast frjálslynda heimsskipan Faxafen 12 108 Reykjavík Sími 534 2727 alparnir.is MIKIÐ ÚRVAL AF VETRARFATNAÐI HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA Faxafen 12 108 Reykjavík Sími 534 2727 alparnir.is SKÍÐASENDING KOMIN Cloud dömu skíði Atomic Redster X7 Skíðabuxur verð frá 9.995 kr.- Heiko Maas Utanríkisráðherra Þýskalands. Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Þýskir og bandarískir hermenn Samstarf í Sýrlandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.