Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Síða 8
8 25. jan 2019FRÉTTIR - ERLENT
S
kömmu fyrir jól tilkynnti
Donald Trump Banda-
ríkjaforseti að bandarískar
hersveitir yrðu kallaðar
heim frá hinu stríðshrjáða Sýr-
landi. Heiko Maas, jafnaðarmaður
og utanríkisráðherra Þýskalands,
var ekki sáttur við þetta og lét
óánægju sína í ljós á sama hátt og
Trump, hann nöldraði á Twitter.
„IS (Íslamska ríkið) hefur verið
hrakið aftur á bak en hættan er
enn fyrir hendi. Það er hætta á að
þessi ákvörðun geti skaðað bar-
áttuna gegn IS og þann árangur
sem náðst hefur. Baráttan gegn IS
veltur á langtímaaðgerðum. Til að
koma á jafnvægi er þörf á öryggi og
pólitískum stöðugleika. Af þeim
sökum vinnum við með banda-
mönnum okkar að pólitískum að-
gerðum.“
Þetta tíst hans var harðlega
gagnrýnt. Þjóðverjar taka þátt í
baráttunni gegn IS í Sýrlandi und-
ir forystu Bandaríkjanna en þetta
stærsta og valdamesta ríki Evrópu
er ekki með neina hermenn
sem taka þátt í beinum átökum í
landinu.
„Ef manni finnst þessi
ákvörðun röng verður maður að
gera það sjálfur (senda hermenn
til orrustu, innsk. blm.). En það
viljum við auðvitað ekki. Við sitj-
um eins og áhorfendur í leikhúsi
– eins og þetta snerti okkur ekki,“
sagði Christoph von Marschall,
blaðamaður hjá þýska dagblaðinu
Tagesspiegel og höfundur margra
rita um utanríkispólitík.
Hann er ekki einn um að blanda
sér í umræðuna um utanríkis-
stefnu Þýskalands en hún er meira
uppi á borðinu núna en venju-
lega þar sem Þýskaland á nú sæti
í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
sem tekur einmitt ákvarðanir um
hvort aðildarríkin eigi að senda
hermenn í stríð. Það er auðvitað
ekki auðvelt fyrir ríki, sem situr
tímabundið í ráðinu, að hafa mikil
áhrif á störf þess en sumir telja
þó að það þurfi að reyna að hafa
áhrif. Sérstaklega í ljósi margra
breytinga á alþjóðavettvangi á
undanförnum misserum. Þar má
nefna að Bandaríkin, undir forystu
Trump, vilja ekki lengur ábyrgjast
öryggi og frið í Evrópu. Brexit get-
ur einnig aukið óöryggi í Evrópu.
Þá hefur framganga Rússa á Krím-
skaga og í austurhluta Úkraínu
ekki verið til þess fallin að bæta
nætursvefn þeirra sem aðhyllast
frjálslynda heimsskipan.
Fjögur svið sem á að beina
athygli að
Heiko Maas hefur bent á fjögur
svið sem Þýskaland á að beina
mestri athygli að á meðan landið
á sæti í öryggisráðinu. Þetta eru
loftslagsmál, málefni kvenna, af-
vopnun og vernd starfsmanna
hjálparsamtaka. Þetta eru allt
verk efni sem eru verðug við-
fangsefni en margir telja að ekki sé
gengið nógu langt og að hræðslan
við að senda þýska hermenn til
stríðsátaka sé svo mikil að Þjóð-
verjar séu átakafælnir og reyni því
að komast hjá málum sem gætu
kallað á hernaðaraðgerðir.
Stóru stjórnarflokkarnir hafa
ekki gert neina viðbragðsáætlun
eða markað stefnu vegna næstu
stóru krísu sem skella mun á
heimsbyggðinni. Þegar atkvæði
voru greidd í öryggisráðinu 2011
um hernaðaraðgerðir í Líbíu sátu
Þjóðverjar hjá þrátt fyrir að óttast
væri að þjóðarmorð væri í upp-
siglingu. Þýsk stjórnvöld geta þó
varpað öndinni léttar yfir þessari
ákvörðun því í framhaldinu varð
algjört öngþveiti í Líbíu og hefur
hernaðaríhlutun Sameinuðu
þjóðanna fyrir vikið verið harðlega
gagnrýnd. Allt þetta hefur valdið
því að mál sem þessi eru ekki
rædd meðal þýskra ráðamanna
og utanríkis- og öryggismál fá litla
umræðu innan ríkisstjórnarinnar.
Þá hafa gagnrýnendur bent á
að bæði Angela Merkel kansl-
ari og Maas hafi skapað ákveðnar
væntingar hjá öðrum Evrópuríkj-
um um að Þýskaland yrði
fulltrúi evrópskra sjónar-
miða í öryggisráðinu
en muni ekki bara taka
þýskar hugmyndir og
halda því fram að
þær séu evrópskar.
Það hefur einmitt
gerst og má í því
sambandi nefna
flóttamannakrís-
una sem skall á
Evrópu 2015. Þá
lýstu Þjóðverjar
eftir samstöðu
Evrópuríkja um
aðgerðir eftir
að hafa árum
saman skellt
skollaeyrum við
beiðni Ítala og
Grikkja um það
sama. Þetta þykir
mörgum draga
úr trúverðugleika
Þjóðverja á alþjóða-
vettvangi.
Aðrir hafa bent á
að Þjóðverjar hafi tek-
ið á sig meiri ábyrgð á
alþjóðavettvangi á undan-
förnum árum, sérstaklega í
samningaviðræðum í alþjóða-
deilum. Til dæmis hafi Merkel
borið þungann af samningavið-
ræðum í málefnum Úkraínu og
Rússlands. En öðrum finnst að
Þýskaland eigi einmitt að sýna
sömu ábyrgðartilfinningu í ör-
yggisráðinu þar sem landið geti
gegnt stóru hlutverki í lausn mála,
hvort sem það er í Sýrlandi, Úkra-
ínu eða annars staðar. Þýskaland
megi ekki bara standa aðgerða-
laust á hliðarlínunni, Þýskalandi
verði að koma að lausn mála. n
Hörð gagnrýni
á utanríkisstefnu Þýskalands
Getur landið stigið út úr skugga síðari heimsstyrjaldarinnar? „Þá hefur framganga Rússa á
Krímskaga og í austurhluta
Úkraínu ekki verið til þess fallin að
bæta nætursvefn þeirra sem að-
hyllast frjálslynda heimsskipan
Faxafen 12
108 Reykjavík
Sími 534 2727
alparnir.is
MIKIÐ ÚRVAL AF
VETRARFATNAÐI
HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA
Faxafen 12
108 Reykjavík
Sími 534 2727
alparnir.is
SKÍÐASENDING KOMIN
Cloud
dömu skíði
Atomic
Redster X7
Skíðabuxur
verð frá
9.995 kr.-
Heiko Maas Utanríkisráðherra
Þýskalands.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Þýskir og bandarískir hermenn
Samstarf í Sýrlandi.