Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 40
Brot af því besta 25. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ
Fyrir rúmlega ári fóru þeir bræð-ur Þórir Már og Ármann Ingi Ingvasynir í rekstur á flutninga-
fyrirtækinu Ingvasynir. „Við byrjuðum
í raun bara á tveimur jafnsterkum, en
svo vatt þetta fljótt upp á sig. Næst
fjárfestum við í vörubíl og svo „pickup“.
Við höfum aldrei farið fram úr okkur
enda erum við varkárir í eðli okkar. En
á rúmu ári höfum við stækkað ótrú-
lega mikið vegna þess að menn hafa
hent reiður á hvað við erum traustir og
snöggir að leysa verkefni,“ segir Þórir.
Flytja allt milli himins og jarðar
Ingvasynir eru þekktir fyrir fagleg og
vönduð vinnubrögð og gefa fast verð
í alla flutninga. Þeir taka að sér hvers
kyns flutninga, hvort heldur er á bílum
eða öðrum hlutum, hvert á land sem
er. Þeir bræður búa enn fremur yfir
margra ára reynslu í akstri úti á landi.
„Okkar aðalstofnæð eða grunn-
rekstur er í bílaflutningum, en við
getum í raun flutt næstum hvað sem
er. Við höfum yfir að ráða vörubíl með
úrvali af vögnum og tvo „pickupa“
með vagna. Þannig að við höfum líka
verið í malarflutningum, flutningi á
ýmiss konar vinnuvélum og mörgu
fleiru,“ segir Þórir.
Lítið en lipurt flutningafyrirtæki
Ingvasynir er ekki stórt fyrirtæki, en
samt sem áður er ekkert verkefni
of stórt fyrir þá. „Við erum í sam-
starfi við fjöldann allan af öðrum
fyrirtækjum og erum alltaf tilbúnir í
samstarf við ný fyrirtæki. Ef svo fer
að viðskiptavinur kemur með verk-
efni til okkar sem við sjáum okkur ekki
fært að framkvæma vegna tíma eða
annars, þá veitum við þeim verkefn-
um í öruggan farveg til réttra aðila.
Okkar mottó er að leysa öll verkefni
eins hratt, lipurlega og vel og unnt er,
með öllum nauðsynlegum leiðum,“
segir Þórir.
Nánari upplýsingar má nálgast
á Facebook-síðunni Ingvasynir ehf.
Bílaflutninga og Verktakaþjónusta
Sími: 866-7739 n
INGVASYNIR:
Flytja hvað sem er
hvert á land sem er