Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 41
Brot af því besta 25. janúar 2019 KYNNINGARBLAÐ WÜRTH: Gæðin oft ódýrari þegar upp er staðið Þegar allt kemur til alls eru það gæðin sem gilda, og við berjumst ekki á lágvöruverðs- grundvelli. Við leggjum alla áherslu á gæðin,“ segir Haraldur Leifsson, framkvæmdastjóri Würth. Würth á Íslandi var stofnað árið 1988 og hefur þar af leiðandi þjónu- stað viðskiptavini sína í 31 ár. Fyr- irtækið er hluti af hinni alþjóðlegu Würth-samsteypu en hún sam- anstendur af 413 fyrirtækjum í 84 löndum, með um það bil 77 þúsund starfsmenn. Viðskiptamódel Würth er nokkuð sérstætt, eins og Haraldur Leifsson segir frá. Á þessum bæ er algert grundvallaratriði að eiga fyrir hlutunum. Arðsemiskrafan er hófstillt frá hendi samsteypunnar og ekki er leyfilegt að taka einhverja sénsa í rekstrinum, eins og Haraldur segir. Það er mikill agi og náið fylgst með rekstrinum. Allt sem þarf til að koma hlutunum saman „Würth á Íslandi er dæmigerð starfseining fyrir samsteypuna og í raun erum við öll að gera það sama,“ segir Haraldur, spurður um fyrirtækið hér á landi í samanburði við það sem erlendis þekkist. „Við erum að selja lausnir fyrir iðnaðarmenn, verkfæri, efnavöru, festingar, bílahreinsivörur, vinnufatnað og í raun allt sem þarf til að koma hlutunum saman.“ Til marks um umfang starfseminn- ar er sú staðreynd að samsteypan er alls með um 125 þúsund vörunúmer og fyrirtækið á Íslandi er með um 9 þúsund slík. „Fjöldi, stærð og velta eru hlutir sem skipta ekki öllu máli í samhenginu. Ef það verða frávik frá væntri afkomu þarf maður að útskýra hvernig á þeim stendur, standa skil á því gagnvart samsteypunni. Það er lagt upp úr því að starfsumhverfið sé gott, starfsmenn séu ánægðir og allir séu að sinna sínu. Þá eru allir ham- ingjusamir,“ bætir Haraldur við. Fyrirtæki þjónustuð með persónu- legum hætti Haraldur bendir enn fremur á að Würth sé með mottó sem fangi í raun það sem fyrirtækið vilji standa fyrir. Það eru gæði, hraði og þjónusta. „Þetta er markmið fyrirtækisins á heimsvísu. Gæðin eru númer eitt, tvö og þrjú; hraðinn á að vera með þeim hætti að ef verktaka vantar eitthvað frá okkur þá fær hann það mjög fljótt, og loks að þjónustan sé hundrað pró- sent og með þeim hætti að viðskipta- vinir komi alltaf aftur.“ Það kemur á daginn að fyrirtækið er um margt sérstakt og rekstrar- formið án hliðstæðu hér á landi. „Starfsemin gengur út á það að helmingurinn er sölumenn og þeir fara að heiman frá sér á morgnana og sinna sínu tiltekna sölusvæði. Hver þeirra er með á bilinu 70–150 fyrirtæki á sinni könnu. Sölumennirn- ir þjónusta þessi fyrirtæki með persónulegum hætti, fara til þeirra og skoða lagerstöðuna hverju sinni hjá viðkomandi fyrirtæki. Þar fylla þeir á eftir þörfum, kynna nýjungar og eru bara í viðvarandi þjónustu. Fyrirtækin þurfa þá ekki að vera senda menn hingað og þangað um bæinn að sækja hluti. Þvert á móti þá komum við til fyrirtækjanna og sjáum til þess að staðan sá ávallt góð.“ Heimsóknir sölumanna eru þar af leiðandi snar þáttur í starfseminni, eins og Har- aldur útskýrir; reksturinn snýst í raun alfarið um það að þjónustufulltrúi selur fyrirtækjum og þjónustar þau meðfram því. Það er því lítið um það að fólk sé að koma inn af götunni til Würth, eins og Haraldur orðar það. Þverþjóðlegir samráðsfundir Þannig hljómar Würth-rekstrarmód- elið á heimsvísu, og nákvæmlega sami háttur hafður á hvort sem það er hér á landi eða í tilteknu Afríkuríki. „Það er gaman að segja frá því að ég er í grúppu af framkvæmdastjór- um hjá Würth frá átta mismunandi löndum og við erum að hittast á um það bil þriggja mánaða fresti. Þá erum við að fara yfir mál hvers lands fyrir sig, berum saman bækur okkar og skoðum hvað gengur vel og hvað síður, ef eitthvað er. Í spjallinu er svo hægt að fá hugmyndir og innblástur af öðrum markaðssvæðum, leita í reynslubanka kollega í öðrum lönd- um og miðla þekkingu milli manna og draga lærdóm af.“ Fagmennirnir koma aftur og aftur Vöruþróun er enn fremur snar þáttur í starfsemi Würth og sífellt er verið að þróa nýjar lausnir. Þúsundir nýrra vörunúmera eru kynntar á hverju ári og svo þarf að velja úr það sem hentar íslenskum markaði og að- stæðum. „Skrúfa er til dæmis ekki það sama og skrúfa,“ bendir Haraldur á. „Sumar þurfa átak og fyrirhöfn til að vera skrúfaðar í tré en aðrar geturðu skrúfað á sinn stað á augna- bliki. Þetta sparar bæði tíma og afl. Það tekur í þegar þú þarft að skrúfa hundruð eða þúsundir af skrúfum í stóru verki. Sama er með kítti. Kíttið okkar er jafnan talið með betra kítti á mark- aðnum og það heldur einstaklega vel. Það lekur ekkert sem hefur verið kíttað með Würth-kítti. Það er kannski freistandi fyrir byggingaraðila að spara og kaupa ódýrt kítti fyrir glugg- ana í heilu fjölbýlishúsi. Sá sparnaður fer hins vegar fyrir lítið þegar þú þarft svo kannski að skipta út og laga alla gluggana. Þegar allt kemur til alls eru það gæðin sem gilda, og við berju- mst ekki á lágvöruverðsgrundvelli. Við leggjum alla áherslu á gæðin,“ segir Haraldur. „Þegar upp er staðið eru gæðin því ódýrari en að þurfa að laga það sem aflaga fór. Þetta skilar sér og það er það sem er mest gefandi í þessu, að iðnaðarmaðurinn og fyrirtækin koma til okkar aftur og aftur því fagfólkið treystir vörunum okkar og kann að meta þjónustuna.“ Nánari upplýsingar má nálgast á www.wurth.is n Haraldur Leifsson sýnir Reinhold Würth lager í nýlegum höfuðstöðvum Würth á Íslandi í Norðlingaholti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.