Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 41
Brot af því besta 25. janúar 2019 KYNNINGARBLAÐ
WÜRTH:
Gæðin oft ódýrari
þegar upp er staðið
Þegar allt kemur til alls eru það gæðin sem gilda, og við berjumst ekki á lágvöruverðs-
grundvelli. Við leggjum alla áherslu
á gæðin,“ segir Haraldur Leifsson,
framkvæmdastjóri Würth.
Würth á Íslandi var stofnað árið
1988 og hefur þar af leiðandi þjónu-
stað viðskiptavini sína í 31 ár. Fyr-
irtækið er hluti af hinni alþjóðlegu
Würth-samsteypu en hún sam-
anstendur af 413 fyrirtækjum í 84
löndum, með um það bil 77 þúsund
starfsmenn. Viðskiptamódel Würth
er nokkuð sérstætt, eins og Haraldur
Leifsson segir frá. Á þessum bæ er
algert grundvallaratriði að eiga fyrir
hlutunum. Arðsemiskrafan er hófstillt
frá hendi samsteypunnar og ekki er
leyfilegt að taka einhverja sénsa í
rekstrinum, eins og Haraldur segir.
Það er mikill agi og náið fylgst með
rekstrinum.
Allt sem þarf til að koma hlutunum
saman
„Würth á Íslandi er dæmigerð
starfseining fyrir samsteypuna og í
raun erum við öll að gera það sama,“
segir Haraldur, spurður um fyrirtækið
hér á landi í samanburði við það sem
erlendis þekkist. „Við erum að selja
lausnir fyrir iðnaðarmenn, verkfæri,
efnavöru, festingar, bílahreinsivörur,
vinnufatnað og í raun allt sem þarf til
að koma hlutunum saman.“
Til marks um umfang starfseminn-
ar er sú staðreynd að samsteypan er
alls með um 125 þúsund vörunúmer
og fyrirtækið á Íslandi er með um 9
þúsund slík. „Fjöldi, stærð og velta
eru hlutir sem skipta ekki öllu máli í
samhenginu. Ef það verða frávik frá
væntri afkomu þarf maður að útskýra
hvernig á þeim stendur, standa skil á
því gagnvart samsteypunni. Það er
lagt upp úr því að starfsumhverfið sé
gott, starfsmenn séu ánægðir og allir
séu að sinna sínu. Þá eru allir ham-
ingjusamir,“ bætir Haraldur við.
Fyrirtæki þjónustuð með persónu-
legum hætti
Haraldur bendir enn fremur á að
Würth sé með mottó sem fangi í raun
það sem fyrirtækið vilji standa fyrir.
Það eru gæði, hraði og þjónusta.
„Þetta er markmið fyrirtækisins á
heimsvísu. Gæðin eru númer eitt, tvö
og þrjú; hraðinn á að vera með þeim
hætti að ef verktaka vantar eitthvað
frá okkur þá fær hann það mjög fljótt,
og loks að þjónustan sé hundrað pró-
sent og með þeim hætti að viðskipta-
vinir komi alltaf aftur.“
Það kemur á daginn að fyrirtækið
er um margt sérstakt og rekstrar-
formið án hliðstæðu hér á landi.
„Starfsemin gengur út á það að
helmingurinn er sölumenn og þeir
fara að heiman frá sér á morgnana
og sinna sínu tiltekna sölusvæði.
Hver þeirra er með á bilinu 70–150
fyrirtæki á sinni könnu. Sölumennirn-
ir þjónusta þessi fyrirtæki með
persónulegum hætti, fara til þeirra og
skoða lagerstöðuna hverju sinni hjá
viðkomandi fyrirtæki. Þar fylla þeir á
eftir þörfum, kynna nýjungar og eru
bara í viðvarandi þjónustu. Fyrirtækin
þurfa þá ekki að vera senda menn
hingað og þangað um bæinn að
sækja hluti. Þvert á móti þá komum
við til fyrirtækjanna og sjáum til þess
að staðan sá ávallt góð.“ Heimsóknir
sölumanna eru þar af leiðandi snar
þáttur í starfseminni, eins og Har-
aldur útskýrir; reksturinn snýst í raun
alfarið um það að þjónustufulltrúi
selur fyrirtækjum og þjónustar þau
meðfram því. Það er því lítið um það
að fólk sé að koma inn af götunni til
Würth, eins og Haraldur orðar það.
Þverþjóðlegir samráðsfundir
Þannig hljómar Würth-rekstrarmód-
elið á heimsvísu, og nákvæmlega
sami háttur hafður á hvort sem það
er hér á landi eða í tilteknu Afríkuríki.
„Það er gaman að segja frá því að
ég er í grúppu af framkvæmdastjór-
um hjá Würth frá átta mismunandi
löndum og við erum að hittast á um
það bil þriggja mánaða fresti. Þá
erum við að fara yfir mál hvers lands
fyrir sig, berum saman bækur okkar
og skoðum hvað gengur vel og hvað
síður, ef eitthvað er. Í spjallinu er svo
hægt að fá hugmyndir og innblástur
af öðrum markaðssvæðum, leita í
reynslubanka kollega í öðrum lönd-
um og miðla þekkingu milli manna og
draga lærdóm af.“
Fagmennirnir koma aftur og aftur
Vöruþróun er enn fremur snar þáttur
í starfsemi Würth og sífellt er verið
að þróa nýjar lausnir. Þúsundir nýrra
vörunúmera eru kynntar á hverju
ári og svo þarf að velja úr það sem
hentar íslenskum markaði og að-
stæðum. „Skrúfa er til dæmis ekki
það sama og skrúfa,“ bendir Haraldur
á. „Sumar þurfa átak og fyrirhöfn
til að vera skrúfaðar í tré en aðrar
geturðu skrúfað á sinn stað á augna-
bliki. Þetta sparar bæði tíma og afl.
Það tekur í þegar þú þarft að skrúfa
hundruð eða þúsundir af skrúfum í
stóru verki.
Sama er með kítti. Kíttið okkar er
jafnan talið með betra kítti á mark-
aðnum og það heldur einstaklega
vel. Það lekur ekkert sem hefur verið
kíttað með Würth-kítti. Það er kannski
freistandi fyrir byggingaraðila að
spara og kaupa ódýrt kítti fyrir glugg-
ana í heilu fjölbýlishúsi. Sá sparnaður
fer hins vegar fyrir lítið þegar þú þarft
svo kannski að skipta út og laga alla
gluggana. Þegar allt kemur til alls eru
það gæðin sem gilda, og við berju-
mst ekki á lágvöruverðsgrundvelli.
Við leggjum alla áherslu á gæðin,“
segir Haraldur. „Þegar upp er staðið
eru gæðin því ódýrari en að þurfa
að laga það sem aflaga fór. Þetta
skilar sér og það er það sem er mest
gefandi í þessu, að iðnaðarmaðurinn
og fyrirtækin koma til okkar aftur og
aftur því fagfólkið treystir vörunum
okkar og kann að meta þjónustuna.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.wurth.is n
Haraldur Leifsson sýnir Reinhold
Würth lager í nýlegum höfuðstöðvum
Würth á Íslandi í Norðlingaholti.