Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 39
Brot af því besta 25. janúar 2019 KYNNINGARBLAÐ Húðin Skin Clinic er húðmeðferðar-stöð að Hátúni 6b í Reykjavík þar sem veittar eru fjölbreyttar húðmeðferðir og afar fagleg þjónusta. Þar starfa Lára G. Sigurðardóttir, sem er læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, Sigríður Arna Sigurðardóttir, hjúkrun- ar- og förðunarfræðingur, Drífa Ísabella Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur og Esther Helga Ólafsdóttir, móttökuritari og snyrtifræðingur. Viðskiptavinir Húðarinnar Skin Clinic geta verið vissir um að fá góða þjónustu sem veitt er af menntuðu og þrautþjálf- uðu fagfólki. Áhersla er lögð á að halda náttúrulegu útliti og húðinni heilbrigðri og fallegri. Auk fjölda húðmeðferða er boðið upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf. Sársaukalaus háreyðing með laser Háreyðing með laser er ein vinsælasta meðferðin hjá Húðinni bæði hjá körl- um og konum. Rakstur og vax valda oft inngrónum hárum og hverfur það vandamál gjarnan eftir lasermeðferð. Lasermeðferðin eyðir hvimleiðum hárum varanlega eða í langan tíma. Í janúar erum við með 20% afslátt af laser háreyðingu og því um að gera að stökkva á tilboðið ef þig langar að prófa. Lára G. Sigurðardóttir hjá Húðinni bendir á að margir óttist lasermeðferðir þar sem þær hafa haft orð á sér fyrir að vera sársaukafullar. „Við notum hins vegar lasertæki sem byggir á annarri tækni en þeirri hefðbundnu og hjá okkur er meðferðin ekki sársaukafull heldur beinlínis notaleg. Vissulega eru sum svæði viðkvæmari, til dæmis þar sem eru margir taugaendar.“ Frábært tilboð á andlitslyftingu með laser Önnur vinsæl meðferð er andlitslyft- ing með laser, sem gengur oftast undir nafninu laserlyfting. „Þetta er andlitslyft- ing án skurðaðgerðar þar sem laser er notaður til að byggja upp húðina innan frá. Línur minnka og húðin verður þéttari, sléttari, hraustlegri og unglegri. Okkur langar að gera vel við viðskipta- vini okkar og bjóðum því þessa eftirsóttu meðferð með 20% afslætti í febrúar og því ættu vonandi fleiri að geta nýtt sér hana, en verðið hjá okkur er nú þegar í lágmarki. Fyllt upp í djúpar línur með áhrifarík- um hætti Notkun á Restylane fylliefni til að fylla í djúpar línur í húðinni er önnur vin- sæl og áhrifarík meðferð hjá Húðinni. Restylane, sem er gert úr náttúrulegu rakaefni húðarinnar, er sett rétt undir húðina og henni lyft. Þannig hverfa línurnar eða verða minna sýnilegar. Varir minnka oft með aldrinum og einnig er hægt að nota Restylane til að gefa meiri fyllingu í þær. Eftir meðferð með fylliefnum er ekki óalgengt að heyra hve úthvíldur maður er eða líti vel út. Húðslípun til að fríska upp á húðina Húðslípun (microdermabrasion) er vinsæl meðferð hjá ungu fólki enda vinnur hún gegn bólum og fílapenslum. Notað er demantshúðslípunartæki sem fjarlægir dauðar húðfrumur og örvar endurnýjun ysta lags húðarinnar. Meðferðin gerir húðina sléttari og jafn- ar litaáferð auk þess sem hún virkar á þurra húð og gefur aukinn ljóma. Lára segir jafnframt að auk með- ferðanna leggi stofan áherslu á hvað fólk geti gert sjálft til að hlúa vel að húðinni enda hefur lífsstíll mikið að segja um hvernig húðin stenst tímans tönn. Gjafabréf að eigin vali Gjafabréf í húðmeðferð hefur notið mikilla vinsælda á þeim tímum sem við lifum þegar fólk hefur sankað að sér mörgum hlutum og vill kannski frekar fá upplifun eða vellíðan í gjöf. Á vandaðri heimasíðu Húðarinnar, hudin.is, eru ítarlegar upplýsingar um allar meðferðir. Einnig eru veittar upp- lýsingar í síma 783-2233. HÚÐIN skin clinic er í Hátúni 6b, 105 Reykjavík. n HÚÐIN SKIN CLINIC: Heilbrigðari húð og aukin vellíðan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.