Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2019, Blaðsíða 60
60 FÓKUS 25. jan 2019 q 20% afsláttur! www.igf.isFlokkaðu HÉR af flokkunarílátum út febrúar Skiptir máli hver þú ert og hvað þú ert að gera R appararnir og tónlistar- mennirnir Elvar Heimis- son og Joseph Muscat, bet- ur þekktir sem Elli Grill og SEINT, koma fram á tónlistarhá- tíðinni S.A.D Festival sem fram fer þann 1. febrúar næstkomandi. S.A.D. Festival stendur fyrir „hátíð skammdegisþunglyndis“ en allir listamenn sem koma fram á há- tíðinni eiga það sameiginlegt að fást við sorg eða þunglyndi í tón- list sinni. DV settist niður í kaffi með Ella og Joseph og forvitnað- ist um tónlistina og ferilinn. Pappi í pönki og mamma í rappi Joseph fæddist í Brighton á Englandi og fluttist ungur til Ís- lands með foreldrum sínum. Bæði hann og Elli ólust upp í Breiðholti. Joseph segir að móðir hans, Ósk Óskarsdóttir, hafi kynnt tónlist fyrir honum. Hann segir: „Hún er tónlistarkona sjálf, en hefur verið lítt áberandi vegna þess að hún var einstæð þriggja barna móðir. Ég held að hún sé fyrsti Íslendingurinn sem kom sér upp heimastúdíói. Hún bjó í Bandaríkjunum með föður mín- um og þar kynnist hún rappinu.“ Þannig að segja má að það sé mömmu þinna að þakka að þú ert í rappinu í dag? „Já, algjörlega. Hún var alltaf að hlusta á rapp. Þetta var „early nineties“ rappið og svo auðvitað svona önnur tónlist líka, eins og David Bowie, Killing Joe og Lou Reed. Faðir minn, Laurie Muscat, sem er Breti, var trommuleikari í The Adverts. Það var pönkband frá áttunda áratugnum, sama tíma og Sex Pistols og allt það var í gangi. Þeir gáfu út plötu sem komst á Billboard-listann fræga. Hann þekkti mikið af þessu liði, Danny Motörhead og Sex Pistols- -gæjana. Tónlistarferill hans hafði mikil áhrif á mig líka.“ Á sjóinn til að hreinsa hugann Tónlistin er einnig í fjölskyldu Ella. Afi hans var djasstónlistar- maður sem lék meðal annars með stórsveit BBC í Bretlandi. Á heim- ili Ella var tónlistin alltaf mikil- vægur þáttur. Faðir hans kynnti þungarokkssveitina Black Sabb- ath fyrir honum og bróðir hans kynnti rappsveitina Cypress Hill fyrir honum. Þessar tvær sveitir hafa mótað Ella allar götur síðan. „Ég hafði aldrei ímyndað mér að ég yrði tónlistarmað- ur, það gerðist alveg óvart. Eitt af stærstu áhugamálum mínum var að hlusta á og pæla í tónlist. Ég stofnaði rappsveitina Shades of Reykjavik og byrjaði að gera myndbönd. Þetta byrjaði á því að ég var alltaf að segja strákunum til hvernig ætti að gera þetta, tón- listina það er að segja. Svo sögðu þeir mér bara að gera þetta“ segir Elli og hlær. Shades of Reykjavik var með hljóðver við Laugaveginn ásamt mörgum öðrum röppurum. Elli segir það hafa verið mjög trufl- andi fyrir hann. „Ég fór á sjóinn og við það rann allt viskíið af mér. Þá fór heilinn loksins að virka og ég byrjaði að rappa úti á sjó. Þetta voru þrjátíu daga túrar og nægur tími til þess að einbeita sér að þessu.“ Samstarfið við Leoncie Elli vakti mikla athygli árið 2015 þegar upp dúkkaði myndband við lagið Engan þríkant hér. Ind- verska prinsessan Leoncie samdi lagið árið 2008 og fluttu þau Elli það saman í myndbandinu. Hvernig kom þetta til? „Hún var mega til í þetta. Hún var í raun hissa á að einhver vildi gera tónlist með henni. Þetta gerðist þannig að ég var nýbúinn að spila á tónleikum með Shades of Reykjavik og eftir tónleikana vorum við í svo miklu stuði að við fórum heim að gera vöfflur. Þá datt mér þetta í hug og sendi henni skilaboð. Ég hafði svo gleymt því vegna þess að ég var í svo miklu stuði. Viku seinna þá var ég á Ing- ólfstorgi að hanga, þá sendi hún skilaboð um að hún væri alveg til í þetta. Hún vildi gera allt strax, sem gerði það að verkum að þetta gerðist allt saman mjög hratt.“ Síðastliðið haust slettist hins vegar upp á vinskapinn. Leoncie krafðist þess meðal annars að myndbandið yrði fjarlægt af Youtube. Frumkvöðull á Íslandi Joseph segir Ella vera frumkvöðul í íslensku rappsenunni. „Það skiptir máli hver þú ert og hvað þú ert að gera. Elli Grill er frumkvöðull og átti stóran þátt í að uppgötva þetta sánd og koma með það hingað. Enginn á sjálfkrafa rétt á að fá að taka þátt í senunni. Þetta líka spurning um hvort þú sért að búa til efni sem flestir hlusta á eða eitthvað meira neðanjarðar. Mín tónlist held ég að sé þannig að það þarf að smakka réttinn í nokkur skipti þangað til þú kemst á bragðið.“ Er þetta spurning um að búa til og gefa út nógu mikið af tónlist til þess að vekja athygli? „Fyrir mitt leyti, já,“ segir Joseph. „Ég hef gefið út þrjár plötur á tíu árum og sú fjórða er í burðarliðnum. Ég held að nú fyrst sé fólk farið að taka eftir mér og fíla stílinn hjá mér. Ég tók bara þá ákvörðun í upphafi að vera trúr minni eigin hugsjón í gegnum súrt og sætt.“ Elli segir: „Sá sem er duglegur, hefur metnað og hæfileika, mun vera á toppnum. Auðvitað skiptir það máli að þekkja fólk, það á við um allt í öllum þessum brönsum. En það þarf líka að huga að kynn- ingu á samfélagsmiðlum, mynd- bandagerð og markaðssetningu. Þetta er hvort sín listin, að skapa og að koma þér á framfæri. Ef þú ert með báða hluti í lagi ertu í góðum málum.“ Þið eruð báðir að fara að spila á S.A.D Festival sem fram fer 1. febrúar á skemmtistaðnum Pal- oma. Hvernig er stemningin fyrir því hjá ykkur? „Ég hef spilað með öllu þessu fólki áður og elska það,“ segir Elli. „Það myndast einhvern veg- inn allt önnur orka þegar svona margir eru að spila með mismun- andi stíla. Verður líka miklu meira spennandi hjá listamönnunum sjálfum, held ég. Þetta er eitt af þessum giggum sem maður bíður bara eftir, þetta á eftir að vera raf- magnað!“ n Guðni Einarsson gudnieinarsson@dv.is Óvænt samstarf Elli Grill og Leoncie. Koma fram á S.A.D. Elli Grill, SEINT og lukkudýrið LaFontaine.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.