Morgunblaðið - 16.11.2018, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 6. N Ó V E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 270. tölublað 106. árgangur
POTTUR
INN STE
FNIR Í
25
MILLJÓN
ir
LEIKURINNOKKAR
ÞAGNIRNAR
SKIPTA LÍKA
MIKLU MÁLI
ÁHORFANDINN
TEKUR ÞÁTT
Í VERKINU
BÆKURNAR
ERU EKKI
AÐALATRIÐIÐ
MARGRÉT HELGA 39 BÓKASÖFN 12JACKY TERRASSON 38
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Sonur Hörpu Hildiberg Böðvars-
dóttur hefur verið sprautufíkill í
mörg ár en erfiðlega hefur gengið að
komast í meðferðarúrræði. Vakti
Harpa athygli á þessu úrræðaleysi
sem foreldrar fíkla glíma við í um-
ræðuhópnum Góða systir. Hún
neyddist til að skilja fársjúkan son
sinn eftir í sjoppu niðri í bæ vegna
þess hann komst ekki að neins stað-
ar. „Ég grét og grét og grét en ég
get ekki tekið hann heim í svona
ástandi,“ skrifar Harpa.
Sprautaði sig á heimilinu
Hún hleypti syni sínum inn á
heimilið í september á þessu ári þeg-
ar hann sat fyrir utan hjá þeim í ann-
arlegu ástandi, illa til reika og grát-
andi. „Ég gaf honum að borða og
skipaði honum í sturtu en svo á með-
an ég var að elda kvöldmatinn
sprautaði hann sig inni á klósetti og
var næstum dáinn á mínu heimili fyr-
ir framan mig og bræður sína.“
Í samtali við Morgunblaðið segir
Harpa nauðsynlegt að ráðist verði í
aðgerðir vegna biðlista fyrir með-
ferðarúrræði hérlendis en biðlistar
eru langir á langflestum stöðum.
„Maður veit aldrei þegar maður sér
hann hvort það sé í síðasta skipti,“
segir Harpa en undirskriftasöfnun
stendur yfir til að þrýsta á frekari
fjármögnun til að útrýma biðlistum.
Úrræðaleysið algjört
Móðir sprautufíkils kallar eftir aðgerðum af hálfu stjórnvalda til að grynnka á
biðlistum eftir meðferð Neyddist til að skilja fársjúkan son sinn eftir í bænum
MKallar eftir aðgerðum … »10
Sorpa sér ekki rökin fyrir banni við
notkun einnota haldapoka úr plasti.
Bannið sé ekki sjálfbært í neinu til-
liti, skapi kostnað fyrir samfélagið,
hafi neikvæð umhverfisáhrif og
flæki úrgangsmál að óþörfu. Eng-
inn hafi sýnt fram á að slíkt bann
ætti að vera í forgangi miðað við
vistferilsgreiningu hinna ýmsu að-
gerða eða að slíkt bann hafi einhver
áhrif á viðhorf eða hegðan fólks við
innkaup eða úrgangsmál.
Kemur þetta sjónarmið fram í
umsögn Sorpu um tillögur sam-
ráðsvettvangs um aðgerðaáætlun í
plastmálefnum sem skilað var til
umhverfisráðherra.
Sorpa vitnar til nýlegrar danskr-
ar rannsóknar á ýmsum gerðum
innkaupapoka. Þar komi fram að
venjulegir haldapokar úr plasti hafi
minnst áhrif á umhverfið.
T.d. þurfi að nota margnota
innkaupapoka 52 sinnum til að
jafna plastpoka og tvöfalt oftar ef
pokinn er notaður tvisvar. »22
Pokarnir
eru ekki
svo slæmir
Verslun Plastpokarnir eru gjarnan
endurnýttir fyrir heimilissorp.
Sorpa gagnrýnir
bann við haldapokum
Michy Batshuayi skoraði bæði mörk Belgíu í 2:0-
sigri á Íslandi í Þjóðadeildinni í knattspyrnu í
Brussel í gærkvöld. Þar með enduðu Íslendingar
stigalausir í keppninni. Íslenska liðið var án
margra lykilleikmanna í gær en stóð sig með
sóma gegn efsta landsliði heimslistans. » Íþróttir
AFP
Án stiga eftir tap gegn
besta landsliðinu
Matvæla- og lyfjastofnun Banda-
ríkjanna lagði í gær fram tillögur
sem takmarka sölu á rafrettum. Á
breytingin að taka gildi í júní á
næsta ári og miðast við að banna
sölu á rafrettum á netinu og að þær
fáist eingöngu í verslunum.
Notkun á rafrettum í Bandaríkj-
unum hefur aukist um 78% á þessu
ári meðal ungmenna. Einnig á að
banna menthol-bragð í sígarettum.
„Í raun kemur þetta ekki á óvart,
miðað við hve búið er að þrýsta mik-
ið á stjórnvöld að taka þessa ákvörð-
un. Kannanir sýna að þetta er það
sem meirihluti almennings vill,“ seg-
ir Lára G. Sigurðardóttir, læknir og
doktor í lýðvísindum, við Morgun-
blaðið en hún býr og starfar í Banda-
ríkjunum.
Hún var meðal fyrirlesara á fjöl-
sóttu fræðslunámskeiði um raf-
rettur sem Krabbameinsfélag höf-
uðborgarsvæð-
isins stóð fyrir
ásamt fleirum.
„Menn hafa
komist að því að
bragðefnin eigi
stóran þátt í að
unglingar ánetj-
ist svo hratt raf-
sígarettum eins
og við verðum daglega vitni að.
Bæði líta unglingar svo á að rafsíga-
rettur séu ekkert óhollari en að fá
sér nammi og síðan koma bragð-
efnin í veg fyrir að börnin finni
óþægindin af sjálfum nikótínvökv-
anum,“ segir Lára.
Hún segir fyrirkomulagið í dag,
að börn og unglingar geti án eftirlits
keypt sér rafrettur á netinu, ekki
hafa reynst farsælt. „Við höfum oft
heyrt dæmi þar sem börn niður í 12
ára kaupa þetta á netinu.“ »16
Leggja til bann á rafrettum gegnum netið
Byggingarfulltrúi í Reykjavík
hefur í ár afgreitt tugi umsókna
sem tengjast veitingarekstri.
Samkvæmt athugun Morgun-
blaðsins hafa 33 verið samþykktar
en 5 bíða lokaafgreiðslu. Ein um-
sóknin varðar fjóra veitingastaði
og krá í Kringlunni. Að öðru leyti
er hér horft til miðborgarinnar.
Samantektin náði til umsókna
sem byggingarfulltrúi afgreiddi frá
áramótum. Síðan þá hafa margir
staðanna verið opnaðir.
Samkeppnin í veitingageiranum í
miðborginni hefur farið harðnandi.
Veitingageirinn á því mikið undir
að ferðamönnum fækki ekki. Helst
þyrfti ferðamönnum að fjölga til að
fjárfestingin stæði undir sér. Veik-
ing krónu gæti örvað eftirspurnina.
Aðgangur að fjármagni gæti líka
haft áhrif á hvaða staðir lifa af.
Með öllum þessum stöðum breyt-
ast margar götur í miðborginni. Til
dæmis mun Hverfisgatan festa sig í
sessi sem veitingagata. Það sama
má segja um Grandagarð.
Slíkur fjöldi veitingastaða út-
heimtir mörg hundruð manna
starfslið. Vitnar það um þá hags-
muni sem veitingageirinn hefur af
því að ekki verði bakslag í ferða-
þjónustu. baldura@mbl.is »4
Fjöldi veitingastaða í pípunum í borginni
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík Horft úr Hallgrímskirkjuturni.
Ferðaþjónustan hefur breytt miðbænum.