Morgunblaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 35
undur við Morgunblaðið, tímaritið
Mannlíf og Viðskiptablaðið. Hann
starfaði hjá Íslandspósti 2005-2010.
Ólafur gekk ungur til liðs við Sam-
tök hernámsandstæðinga og síðar
Æskulýðsfylkinguna og sat þar í
stjórn 1965-69. Þar kynntist hann
traustum vinum, þeim Þorsteini
Marelssyni og Vernharði Linnet, og
hélst vinátta þeirra æ síðan, en Þor-
steinn lést árið 2007. Djasspáfinn
Vernharður leiddi vin sinn inn í
undraheim djassins, þar sem Ólafur
hefur átt margar góðar stundir.
Útivist og gönguferðir hafa verið
stór þáttur í lífi Ólafs á undan-
förnum árum. Hann unir sér vel í
sumarbústaðarlandi fjölskyldunnar
á Sjónarhóli í Mjóadal, þar sem hann
situr oft við skriftir.
Á seinni árum hefur áhugi Ólafs í
auknum mæli beinst að andlegum og
trúarlegum málefnum: „Þar gætir
áhrifa frá fóstru minni, Guðrúnu
Ólafsdóttur, og þeim mæta manni
Sigurbirni Einarssyni biskup.“
Þá hefur áhugi hans í seinni tíð
beinst að ævisögum merkra Íslend-
inga og er hann hafsjór af fróðleik í
þeim efnum að sögn vina hans.
Ritstörf
Ólafur hóf ungur ritstörf, sat í rit-
stjórn Æskulýðssíðu Þjóðviljans
1967-69 og naut þar velvildar og til-
sagnar Magnúsar Kjartanssonar rit-
stjóra, var í hópi útgefenda og höf-
unda að „Lystræningjanum“ og
„Tónlistartímaritinu“ og stóð að
bókaútgáfu á árunum 1977-83.
Rit Ólafs: Fáfniskver, ljóðabók,
útg. 1973; Skóhljóð aldanna, ljóða-
bók, 1976; Stútungspungar, skáld-
saga, 1979; Boðið upp í dans, skáld-
saga, 1982; Skringilegt mannlíf,
smásagnasafn, 1983; Skekkja í bók-
haldinu, smásagnasafn,1989; Ævin-
týraþorpið, fyrsta bindi skáld-
ævisögu, 2007; Byltingarmenn og
bóhemar, annað bindi skáldævisögu,
2009, og Skáldaspegill, þriðja bindi
skáldævisögu, 2013. Eftir Ólaf liggja
ennfremur nokkur útvarpsleikrit og
smásögur eftir hann hafa verið lesn-
ar í Ríkisútvarpinu.
Hálfbróðir Ólafs er Ágúst Þór
Ormsson, f. 23.8. 1951, bifreiðasmið-
ur, kvæntur Ingibjörgu Kristins-
dóttur og eiga þau fjögur börn.
Foreldrar Ólafs voru Jóna Kristín
Arnfinnsdóttir, f. 20.10. 1917, d. 10.6.
1948, húsfreyja, og Ormur Ólafsson,
f. 10.4. 1918, d. 22.8. 2012, vélstjóri,
starfsmaður Flugleiða og formaður
Kvæðamannafélagsins Iðunnar.
Úr frændgarði Ólafs Ormssonar
Ólafur Ormsson
Guðmunda Margrét Kristjánsdóttir
húsfr. í Lambadal
Sigurlíni Kristjánsson
b. í Lambadal ytri og
í Botni
Ingibjörg Jóna Sigurlínadóttir
húsfr. í Lambadal
Jóna Kristín Arnfinnsdóttir
húsfr. í Rvík
Arnfinnur K.M. Jónsson
b. á Dröngum og í Lambadal í Dýrafirði
Margrét Kjartansdóttir
húsfr. á Kirkjubóli
Jón Arnfinnsson
b. á Kirkjubóli í Bjarnardal
Ormur Ormsson rafveitustj. í Borgarnesi
Fjóla Eiríksdóttir
húsfr. í Keflavík
Hreinn Líndal óperusöngvari
Haraldur Líndal Haraldsson
fv. bæjarstj. í Hafnarfirði
Sveinbjörg
Ormsdóttir húsfr. í
Norðurkoti á Miðnesi
eynir Eiríksson
ugstj. í Keflavík
R
fl
Egill Vignir Reynisson
flugrekstrarstj. Wow air
Rannveig Hrönn
Kristinsdóttir
v. fulltrúi í Rvík
Sigurveig Margrét
Eiríksdóttir
húsfreyja í Rvík
Eiríkur Ormsson
stofnandi Bræðranna
Ormssonf
Hilmar Örn
Hilmarsson
allsherjargoði
og tónskáld
Jón Ormsson rafvirkjam. í Rvík
og stofnandi Bræðranna Ormsson
Jón Aðalsteinn Jónsson
forstöðum. Orðabókar
Háskóla Íslands
Jón Viðar
Jónsson leik-
listargagn-
rýnandi
Guð
finna
Arn-
finns
dóttir
húsfr.
á Flat-
eyriHallur Stefánsson fv. kaupm. íSvalbarða við Framnesveg í Rvík
Brynhildur
Stefáns-
dóttir húsfr.
í Birkihlíð í
Reykholtsdal
Elín Magnús
dóttir hús-
tjórnarkenn-
ari á Hrísum
í Reykjadal,
S-Þing.
s
Magnús
Arason
verk-
fræð
ingur
hjá Eflu
Sólveig Brynjólfsdóttir
húsfr. í Skammadal, frá SuðurHvammi
Jakob Þorsteinsson
b. í Skammadal í Mýrdal
Guðrún Jakobsdóttir
húsfr. á Hjalla
Ólafur Ormsson
b. á Hjalla í Höfnum
Sveinn Ólafsson
húsasmiður í Rvík
Einar Ólafur Sveinsson
prófessor við HÍ og forstöðum.
Stofnunar Árna Magnússonar
Sveinn Einarsson fyrrv.
þjóðleikhússtj. og
dagskrárstj. við Sjónvarpið
Guðrún Ólafsdóttir
húsfr. á Kaldrananesi, bróðurdóttir Ingimundar, afa Jóhannesar Kjarval listmálara
Ormur Sverrisson
b. á Kaldrananesi í Mýrdal
Ormur Ólafsson
vélstj., starfsm. Flugfélags Íslands og Flugleiða
og form. Kvæðamannafélagsins Iðunnar
Göngugarpar Ólafur og Svenni
Guðjóns í Roof Tops, við Gróttu.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2018
JÓLAGJÖFIN í ár?
við kynnum arc-tic Retro
með keðju
Fyrir DÖMUR og HERRA
VERÐ AÐEINS:
34.900,-
VERÐ FRá:
29.900,-
Sigurður Elí Haraldsson fædd-ist 16.11. 1928. Foreldrar hansvoru Járngerður Jónsdóttir
og Haraldur Jónsson en þau bjuggu
á Tjörnum undir Eyjafjöllum. Sig-
urður var fjórði í röð níu systkina.
Eiginkona Sigurðar var Þorgerður
Árnadóttur Blandon sem lést 2011.
Hún var dóttir hjónanna Þorbjargar
Grímsdóttur Blandon og Árna Er-
lendssonar Blandon. Börn Sigurðar
og Þorgerðar eru Þorbjörg hjúkr-
unarfræðingur, Haraldur læknir og
Arnheiður Erla skrifstofustjóri.
Sigurður Elí ólst upp við öll al-
menn sveitastörf á Tjörnum. Hann
stundaði nám við Samvinnuskólann
og útskrifaðist frá Verslunarskóla Ís-
lands 1952.
Sigurður Elí var sölu- og fram-
kvæmdastjóri við iðnfyrirtækið
SAVA í tæpan áratug. Árið 1966
stofnaði hann fyrirtækið Elfi ehf.
Hann starfrækti verslanir í Reykja-
vik og um tíma í Vestmannaeyjum,
en lengst af rak hann, ásamt eigin-
konu sinni og dóttur, verslun við
Laugaveginn. Þau hættu verslunar-
rekstri árið 1998. Auk þess átti Sig-
urður og rak saumastofuna Skinfaxa
með Guðlaugu Snorradóttur.
Sigurður var alla tíð áhugamaður
um framtíð miðbæjarins í Reykjavík
og þá ekki síst Laugavegar sem
verslunargötu. Hann sat m.a. í
nefndum og ráðum borgarinnar er
lúta að þeim málefnum, sat lengi í
stjórn Kaupmannasamtaka Íslands
og var þar formaður 1983-87. Hann
var formaður karlakórsins Fóst-
bræðra 1958-60 og stuðlaði þá m.a.
að stofnun Gamalla Fóstbræðra.
Hann söng í kirkjukór Grensás-
sóknar í mörg ár á upphafsárum þess
safnaðar, var framkvæmdastjóri
orgelsjóðs Hallgrímskirkju 1988-92
og vann ötullega að því að stóra
Kleis-orgelið í kirkjunni varð að
veruleika.
Sigurður Elí var ófeiminn að koma
skoðunum sínum á framfæri og sat í
fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins um
áratuga skeið.
Sigurður lést 14.1. 2010.
Merkir Íslendingar
Sigurður Elí
Haraldsson
90 ára
Bryndís Guðmundsdóttir
Jóhannes Guðni Jónsson
85 ára
Geirþrúður Kr
Kristjánsdóttir
Halldóra Gunnarsdóttir
Hrafnkell Kjartansson
Ingibjörg Elíasdóttir
Már Sveinsson
80 ára
Auður Reykdal Ingólfsdóttir
Lilja Vestmann
Sverrir Halldórsson
75 ára
Alma Þorvarðardóttir
Kristján Karlsson
Margrét Kjartansdóttir
Ólafur Ormsson
Sigurdís Sigurðardóttir
70 ára
Ásta B. Eðvarðsdóttir
Bergljót G. Einarsdóttir
Bjarndís Harðardóttir
Gyða Brynjólfsdóttir
Ingimundur Steingrímsson
Sigurberg Gröndal
Ragnarsson
Sigurrós Guðmundsdóttir
Skarphéðinn Þórisson
Þórdís Ásgeirsdóttir
60 ára
Baldur Helgi Friðriksson
Guðrún Ásta Sigurðardóttir
Hörður Garðarsson
Ragnar Eðvarðsson
Salína Aðalbjörg
Helgadóttir
Sigríður Thorsteinsson
Sigurlaug Jónína Waage
Þorlákur Kjartansson
50 ára
Sigríður H.
Guðmundsdóttir
Sigurður Helgi Jóhannsson
40 ára
Elzbieta Sajkowska
Friðgeir Ingi Eiríksson
Guðjón Skúli Jónsson
Guðmundur Ingi Bjarnason
Gunnar Lárus Karlsson
Jóhann Þór Sigurðsson
Jón Freyr Halldórsson
Kristín Þorleifsdóttir
María Guðnadóttir
Miroslaw Rachwal
Nína Heiðrún Óskarsdóttir
Sigurþóra Hauksdóttir
Styrmir Kristjánsson
Valdimar Kristjánsson
Valtýr Kári Finnsson
Vigdís Kristjánsdóttir
30 ára
Andrei Trinca
Anita Jowita Czmut
Anna Ásthildur
Thorsteinsson
Arie Bob Villariasa
Riesenbeck
Dagný Jónsdóttir
Gabriella Unnur
Kristjánsdóttir
Jón Bragi Pálsson
Katarzyna Elzbieta Mach
Katarzyna M. Kaminska
Leonardo Grillo
Mariusz Sziming
Orri Páll Vilhjálmsson
Pavel Sergeev Velikov
Sigurbjörg S. Róbertsdóttir
Silja Jóhannesdóttir
Skúli Sigvaldason
Steinar Smári Einarsson
Telma Rut Georgsdóttir
Vilborg Ása Dýradóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Elzbieta ólst upp
í Póllandi en flutti til Ís-
lands árið 2000, er bú-
sett í sveitarfélaginu Vog-
um og starfar hjá VM,
Félagi vélstjóra og málm-
tæknimanna. Hún er
mjög fróð um Star Trek-
alheiminn.
Maki: Kristófer Ragnars-
son, f. 1976, fróður um
Star Wars-alheiminn.
Sonur: Daníel Þór
Harðarson, f. 2001, fróð-
ur um Destiny-alheiminn.
Elzbieta
Sajkowska
30 ára Silja býr á Akur-
eyri, lauk MSc-prófi í
hjúkrunarfræði og starfar
á Hlíð.
Maki: Jóhann Heiðar
Friðriksson, f. 1979, sjóm.
Börn: Halla Björg, f. 2000
(sjúpdóttir); Jóhannes
Helgi, f. 2009; Júlía Björg,
f. 2014, og Hrannar Már,
f. 2016.
Foreldrar: Lára Ágústa
Ólafsdóttir, f. 1963, og
Jóhannes Sigfússon, f.
1963.
Silja
Jóhannesdóttir
30 ára Sigurbjörg er
félagsliði og vinnur við
Hjúkrunarheimilið Foss og
Ljósheima á Selfossi.
Maki: Ármann Magnús Ár-
mannsson, f. 1989, véla-
maður hjá Borgarverki.
Börn: Viktor Snær Ár-
mannsson, f. 2008, og
Halldóra Karitas Ármanns-
dóttir, f. 2012.
Foreldrar: Hólmfríður
Stella H. Ólafsdóttir, f.
1959, og Róbert Bragi
Guðmundsson, f. 1956.
Sigurbjörg Sara
Róbertsdóttir