Morgunblaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2018
Mjúk lending Stelkur í vel heppnaðri lendingu í morgunskímu nálægt flugvellinum á Tungubökkum í Mosfellsbæ.
Bogi Þór Arason
Fyrsta skýrsla þjóð-
aröryggisráðs um
framkvæmd þjóðarör-
yggisstefnu Íslands
var birt 1. nóvember
sl.
Þar er á 44 bls. og í
10 köflum farið yfir þá
þætti sem eru ráðandi
við mótun þjóðarör-
yggisstefnunnar. Efni
þeirra er lýst og hvað
við blasir. Þessir tíu þættir eru: Al-
þjóðalög og friðsamleg lausn deilu-
mála; umhverfis- og öryggishags-
munir á norðurslóðum; Atlants-
hafsbandalagið; varnarsamningur-
inn; norræn samvinna; almanna-
varna- og öryggismál; netöryggi;
aðrar ógnir og friðlýsing fyrir
kjarnavopnum.
Hver kafli þessarar skýrslu
skiptir miklu og án þess að litið sé
til þessara þátta allra er ekki unnt
að fá heildarmynd af stöðunni. Í
skýrslunni er fjallað um hvernig
unnið er að markmiðum þjóðarör-
yggisstefnunnar. Hún endurspeglar
„breiða sýn á þjóðaröryggi“. Með
öðrum orðum, öryggi tekur til fleiri
og flóknari þátta en áður hefur ver-
ið talið. Undir hugtakið falla innri
og ytri ógnir, af mannavöldum eða
vegna náttúruhamfara. Skýrslan er
um framkvæmd einstakra þátta
þjóðaröryggisstefnunnar en í henni
felst ekki hættu- eða ógnarmat.
Lykilhlutverk land-
helgisgæslunnar
Hér á landi er öll öryggisgæsla á
vegum ríkisins borgaraleg. Lög-
regla og landhelgisgæsla gegna þar
lykilhlutverki.
Við blasir af skýrslunni að Land-
helgisgæsla Íslands hefur þróast á
annan veg en menn sáu endilega
fyrir en þó er heimilað í lögum um
hana frá árinu 2006.
Sérfræðingar frá
sprengjudeild land-
helgisgæslunnar fara
til þjálfunarverkefna í
Jórdaníu og nú nýlega
í Írak í samstarfi við
vinaþjóðir. Sprengju-
deildin sinnir reglu-
lega sprengjueyðingu,
friðargæslu og kennslu
á vegum Atlants-
hafsbandalagsins víðs
vegar í heiminum.
Deildin gengst árlega
fyrir NATO-æfingu hér á landi og
vex þátttaka í henni stöðugt, kom-
ast nú færri að en vilja.
Landhelgisgæslan kemur að
framkvæmd loftrýmiseftirlits
NATO hér á landi. Verkefnið er
unnið af starfsmönnum gæslunnar
undir stjórn stjórnstöðvar banda-
lagsins í Uedem í Þýskalandi. Sam-
tals hafa níu aðildarþjóðir Atlants-
hafsbandalagsins lagt til orrustu-
þotur og liðsafla vegna loft-
rýmisgæslu frá Keflavíkurflugvelli.
Í skýrslunni segir:
„Starfsmenn varnarmálasviðs
Landhelgisgæslu Íslands búa yfir
víðtækri sérfræðiþekkingu sem
einnig hefur komið Atlantshafs-
bandalaginu og aðildarþjóðunum að
gagni. Varnarmálasvið Landhelg-
isgæslunnar tekur virkan þátt í
störfum stofnana og undirnefnda
Atlantshafsbandalagsins.“
Það er rétt niðurstaða í skýrsl-
unni að auka beri áherslu á málefni
þar sem sérþekking Íslands getur
nýst Atlantshafsbandalaginu. Í
þátttökunni felst virðisauki fyrir ís-
lenska sérfræðinga, einkum á sviði
almannavarna, netvarna og við-
námsgetu.
Í kaflanum um varnarmannvirki
segir að mikilvægt sé að tryggja
viðveru og rekstur löggæslu- og eft-
irlitsflugvélarinnar TF-SIF. Er vél-
inni lýst sem öflugasta eftirlitstæk-
inu á stórum hluta norðurskauts-
og Norður-Atlantshafssvæðisins.
Enn fremur þurfi að fjölga varð-
skipum sem sinna eftirliti á haf-
svæðum umhverfis Ísland úr einu í
tvö. Þannig sé unnt að fjölga út-
haldsdögum og stórauka eftirlit á
hafinu.
Minnt er á að stjórnvöld hafi
samþykkt kaup á þremur nýjum
björgunarþyrlum fyrir landhelg-
isgæsluna. Reiknað er með að þær
verði teknar í notkun á árunum
2021-2023. „Trygg viðvera björg-
unarþyrlna sem þola aðstæður á
norðurhveli jarðar er undir-
stöðuatriði allra öryggis- og varn-
artengdra verkefna í lofti og á sjó,“
segir í skýrslunni.
Þjóðaröryggisstefnan leggur
skyldur á herðar stjórnvalda. Þeim
verður ekki sinnt án fjárveitinga,
mannafla og tækja sem duga til
þess sem gera skal.
Netöryggi
Í kaflanum um netöryggi segir:
„Vitundarvakning hefur orðið
undanfarin ár. Flestir átta sig nú á
að netnotkun geti fylgt hættur, en
mörgum reynist erfitt að átta sig á
hvar þær leynast og hvað er til
ráða. Umfjöllun fjölmiðla um árásir,
veilur og aðra misnotkun á netinu
hefur aukist verulega. Stefnt er að
því að auka samvinnu um
upplýsingamiðlun og vitundarvakn-
ingu á þessu sviði á vettvangi net-
öryggisráðs með ýmsum hags-
munaaðilum í þjóðfélaginu og á
vettvangi samstarfshóps um net- og
upplýsingaöryggi.“
Allt er þetta skynsamlegt en þeg-
ar netöryggiskaflinn er lesinn er
erfitt að fikra sig til niðurstöðu um
hlutverk ráðuneyta, stofnana,
nefnda og ráða. Umræðurnar eru á
fræðilegum grunni. Netöryggis-
málin eru enn í of flóknum stjórn-
sýslulegum farvegi. Óhjákvæmilegt
er að slípa og skerpa ábyrgðarkeðj-
una.
Þetta snertir að sjálfsögðu það
sem fellur undir aðrar ógnir en í
þeim kafla er sérstaklega vikið að
því að á árinu 2016 hafi ríkislög-
reglustjóri lagt mat á hættuna af
völdum netglæpa og sagt meðal
annars brýnt að auka menntun og
fræðslu fyrir lögreglumenn varð-
andi tölvu- og netglæpi, svo og að
auðvelda aðgengi lögreglu að
sérfræðiþekkingu og samvinnu við
fagaðila í málum sem varða þennan
flokk afbrota. Þá hafi Europol, Evr-
ópulögreglan í Haag í Hollandi, lagt
mat á þróun skipulagðrar brota-
starfsemi á komandi árum, hún taki
nú stakkaskiptum, ekki síst vegna
þess að brotastarfsemi færist í vax-
andi mæli yfir á netið.
Landamæravarsla
Brýnt er að huga að landamæra-
vörslu. Í skýrslunni segir að stjórn-
völd bregðist nú „við alvarlegum at-
hugasemdum um að styrkja landa-
mæravörslu sem fram komu í
kjölfar Schengen-úttektar á árinu
2017“ eins og það er orðað. Unnið
sé að aðgerðum sem snúi m.a. að
stjórnskipulagi, fjölda starfsmanna,
menntun og þjálfun, greiningar-
starfi og tækjabúnaði á landamæra-
stöðvum.
Og ennfremur þetta: „Skipulögð
glæpastarfsemi er ein mesta ógnin
sem steðjar að landamæravörslu og
reyndar að öryggi samfélagsins í
heild. Líta má á landamæravörslu
sem fyrstu varnir gegn skipulagðri
glæpastarfsemi en hér ber þó einn-
ig að nefna alþjóðlegt samstarf lög-
reglu og tollgæslu við erlendar
systurstofnanir. Mikilvægi þeirrar
samvinnu hefur sannað sig á
undanförnum árum.“
Þetta eru alvarleg viðvörunarorð.
Stundum er því haldið fram að að-
ild að Schengen-samstarfinu sé
veiki hlekkurinn þegar að þessum
þætti öryggis okkar kemur. Þar er
um hættulegan misskilning að
ræða. Þvert á móti mætti halda því
fram að stæðu Íslendingar utan
Schengen væri hér á landi skjól
fyrir afbrotamenn eða glæpahópa.
Stjórnvöld hefðu enga heimild til að
nýta þá öflugu gagnarunna sem
samstarfinu fylgja.
Nýta verður nýjustu tækni og
fjölga fólki við greiningarstarf á
Keflavíkurflugvelli. Það er skilvirk-
asta leiðin til að efla landamæra-
vörsluna.
Forvirkar aðgerðir
Hryðjuverkaógnar er getið í
skýrslunni. Til að sporna við henni
skipta mestu aðrar aðferðir en ís-
lenskum yfirvöldum er heimilt að
beita.
Nýlega var skýrt frá því að
danska leyniþjónustan PET hefði
lagt fram upplýsingar sem leiddu til
þess að lögreglan handtók mann frá
Noregi af írönskum ættum. Talið
var að hann væri útsendur laun-
morðingi Íransstjórnar, sendur til
að granda írönskum andófsmönnum
búsettum í Danmörku. Í fréttum
var sagt að PET hefði fengið upp-
lýsingar frá ísraelsku leyniþjónust-
unni Mossad um hættuna á þessum
launmorðum.
Íslensk stjórnvöld verða ekki
hluti af slíkri atburðarás. Hér getur
hún ekki orðið vegna skorts á heim-
ildum lögreglu til forvirkra rann-
sókna og athugana. Þessa brotalöm
verður að taka til meðferðar á fund-
um þjóðaröryggisráðs.
Eftir Björn
Bjarnason » Skyldum stjórnvalda
verður ekki sinnt án
fjárveitinga, mannafla
og tækja sem duga til
þess sem gera skal.
Björn Bjarnason
Höfundur er fyrrv. ráðherra.
Þjóðaröryggi leggur skyldur á stjórnvöld
Hægt er að skapa
atvinnu og líf með því
að feta nýjar slóðir.
Gera betur í dag en í
gær og sýna heiminn
í nýju ljósi, finna
snjallar lausnir á við-
fangsefnum daglegs
lífs. Bringusund mör-
gæsa er ekki mikið
til umfjöllunar en
Jónas Hallgrímsson,
sem var umfangsmikill nýyrða-
smiður, á orðin tvö og reyndar
mörg fleiri sem lífga upp á tungu-
mál þjóðarinnar og gera það lit-
ríkara.
Dagur íslenskrar tungu er hald-
inn hátíðlegur ár hvert 16. nóv-
ember á fæðingardegi skáldsins.
Það er ekki sjálfgefið að lítil þjóð
eigi sitt eigið lifandi tungumál.
Því ber að fagna en ýmsar hættur
steðja að íslenskunni um þessar
mundir vegna hraðra tæknibreyt-
inga og yfirburða enskunnar.
Fólk mun nota röddina í aukn-
um mæli til að stýra hvers kyns
tækjum og tólum en vandinn er sá
að tækin skilja ekki íslensku í
dag. Sem betur fer er til áætlun
um að forða tungumálinu okkar
frá stafrænum dauða. Hópur fólks
og fyrirtækja úr ólíkum áttum
vinnur að því að á íslensku megi
alltaf finna svar. Almannarómur
er sjálfseignarstofnun þar sem
koma saman hagsmunaaðilar úr
atvinnulífinu og fræðasamfélaginu
með myndarlegum stuðningi
stjórnvalda. Stofnuninni er ætlað
að leysa málið og tryggja framtíð
íslenskunnar í tæknivæddum
heimi samkvæmt markmiðum
máltækniáætlunar. Stefnt er að
því að íslensku verði
að finna í öllum
tækja- og hugbúnaði
stærstu tæknifyrir-
tækja heims innan
fárra ára en tíminn til
stefnu er naumur þar
sem gervigreind og
máltækni í heiminum
þróast á ógnarhraða
og mikilvægt að Ís-
land sitji ekki eftir.
Samkeppnishæfni
atvinnulífsins byggist
á tungumálinu. Lykla-
borðið og músin gætu verið á út-
leið og rafrænar málfarslöggur
mögulega beðið okkar handan við
hornið. Fjölbreyttar mál-
tæknilausnir geta einnig aukið
framleiðni í atvinnulífinu því sjálf-
virkar þýðingar munu nýtast í öll-
um viðskiptum. Ýmis forrit munu
einnig auðvelda fólki lífið við að
leiðrétta málfar, stafsetningu og
beygingar.
Atvinnulífið gegnir mikilvægu
hlutverki þegar kemur að nýsköp-
un og þróun á máltækni og mun
leggja sitt af mörkum til að mark-
mið máltækniáætlunar 2018-2022
náist í nánu samstarfi við stjórn-
völd, fyrirtæki, stofnanir og há-
skóla.
Íslenska er mál atvinnulífsins –
höldum því lifandi.
Bringusund mörgæsa
Eftir Halldór
Benjamín
Þorbergsson
Halldór Benjamín
Þorbergsson
» Lyklaborðið og
músin gætu verið
á útleið og rafrænar
málfarslöggur mögu-
lega beðið okkar
handan við hornið.
Höfundur er framkvæmdastjóri SA.