Morgunblaðið - 16.11.2018, Síða 23

Morgunblaðið - 16.11.2018, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2018 Mjúk lending Stelkur í vel heppnaðri lendingu í morgunskímu nálægt flugvellinum á Tungubökkum í Mosfellsbæ. Bogi Þór Arason Fyrsta skýrsla þjóð- aröryggisráðs um framkvæmd þjóðarör- yggisstefnu Íslands var birt 1. nóvember sl. Þar er á 44 bls. og í 10 köflum farið yfir þá þætti sem eru ráðandi við mótun þjóðarör- yggisstefnunnar. Efni þeirra er lýst og hvað við blasir. Þessir tíu þættir eru: Al- þjóðalög og friðsamleg lausn deilu- mála; umhverfis- og öryggishags- munir á norðurslóðum; Atlants- hafsbandalagið; varnarsamningur- inn; norræn samvinna; almanna- varna- og öryggismál; netöryggi; aðrar ógnir og friðlýsing fyrir kjarnavopnum. Hver kafli þessarar skýrslu skiptir miklu og án þess að litið sé til þessara þátta allra er ekki unnt að fá heildarmynd af stöðunni. Í skýrslunni er fjallað um hvernig unnið er að markmiðum þjóðarör- yggisstefnunnar. Hún endurspeglar „breiða sýn á þjóðaröryggi“. Með öðrum orðum, öryggi tekur til fleiri og flóknari þátta en áður hefur ver- ið talið. Undir hugtakið falla innri og ytri ógnir, af mannavöldum eða vegna náttúruhamfara. Skýrslan er um framkvæmd einstakra þátta þjóðaröryggisstefnunnar en í henni felst ekki hættu- eða ógnarmat. Lykilhlutverk land- helgisgæslunnar Hér á landi er öll öryggisgæsla á vegum ríkisins borgaraleg. Lög- regla og landhelgisgæsla gegna þar lykilhlutverki. Við blasir af skýrslunni að Land- helgisgæsla Íslands hefur þróast á annan veg en menn sáu endilega fyrir en þó er heimilað í lögum um hana frá árinu 2006. Sérfræðingar frá sprengjudeild land- helgisgæslunnar fara til þjálfunarverkefna í Jórdaníu og nú nýlega í Írak í samstarfi við vinaþjóðir. Sprengju- deildin sinnir reglu- lega sprengjueyðingu, friðargæslu og kennslu á vegum Atlants- hafsbandalagsins víðs vegar í heiminum. Deildin gengst árlega fyrir NATO-æfingu hér á landi og vex þátttaka í henni stöðugt, kom- ast nú færri að en vilja. Landhelgisgæslan kemur að framkvæmd loftrýmiseftirlits NATO hér á landi. Verkefnið er unnið af starfsmönnum gæslunnar undir stjórn stjórnstöðvar banda- lagsins í Uedem í Þýskalandi. Sam- tals hafa níu aðildarþjóðir Atlants- hafsbandalagsins lagt til orrustu- þotur og liðsafla vegna loft- rýmisgæslu frá Keflavíkurflugvelli. Í skýrslunni segir: „Starfsmenn varnarmálasviðs Landhelgisgæslu Íslands búa yfir víðtækri sérfræðiþekkingu sem einnig hefur komið Atlantshafs- bandalaginu og aðildarþjóðunum að gagni. Varnarmálasvið Landhelg- isgæslunnar tekur virkan þátt í störfum stofnana og undirnefnda Atlantshafsbandalagsins.“ Það er rétt niðurstaða í skýrsl- unni að auka beri áherslu á málefni þar sem sérþekking Íslands getur nýst Atlantshafsbandalaginu. Í þátttökunni felst virðisauki fyrir ís- lenska sérfræðinga, einkum á sviði almannavarna, netvarna og við- námsgetu. Í kaflanum um varnarmannvirki segir að mikilvægt sé að tryggja viðveru og rekstur löggæslu- og eft- irlitsflugvélarinnar TF-SIF. Er vél- inni lýst sem öflugasta eftirlitstæk- inu á stórum hluta norðurskauts- og Norður-Atlantshafssvæðisins. Enn fremur þurfi að fjölga varð- skipum sem sinna eftirliti á haf- svæðum umhverfis Ísland úr einu í tvö. Þannig sé unnt að fjölga út- haldsdögum og stórauka eftirlit á hafinu. Minnt er á að stjórnvöld hafi samþykkt kaup á þremur nýjum björgunarþyrlum fyrir landhelg- isgæsluna. Reiknað er með að þær verði teknar í notkun á árunum 2021-2023. „Trygg viðvera björg- unarþyrlna sem þola aðstæður á norðurhveli jarðar er undir- stöðuatriði allra öryggis- og varn- artengdra verkefna í lofti og á sjó,“ segir í skýrslunni. Þjóðaröryggisstefnan leggur skyldur á herðar stjórnvalda. Þeim verður ekki sinnt án fjárveitinga, mannafla og tækja sem duga til þess sem gera skal. Netöryggi Í kaflanum um netöryggi segir: „Vitundarvakning hefur orðið undanfarin ár. Flestir átta sig nú á að netnotkun geti fylgt hættur, en mörgum reynist erfitt að átta sig á hvar þær leynast og hvað er til ráða. Umfjöllun fjölmiðla um árásir, veilur og aðra misnotkun á netinu hefur aukist verulega. Stefnt er að því að auka samvinnu um upplýsingamiðlun og vitundarvakn- ingu á þessu sviði á vettvangi net- öryggisráðs með ýmsum hags- munaaðilum í þjóðfélaginu og á vettvangi samstarfshóps um net- og upplýsingaöryggi.“ Allt er þetta skynsamlegt en þeg- ar netöryggiskaflinn er lesinn er erfitt að fikra sig til niðurstöðu um hlutverk ráðuneyta, stofnana, nefnda og ráða. Umræðurnar eru á fræðilegum grunni. Netöryggis- málin eru enn í of flóknum stjórn- sýslulegum farvegi. Óhjákvæmilegt er að slípa og skerpa ábyrgðarkeðj- una. Þetta snertir að sjálfsögðu það sem fellur undir aðrar ógnir en í þeim kafla er sérstaklega vikið að því að á árinu 2016 hafi ríkislög- reglustjóri lagt mat á hættuna af völdum netglæpa og sagt meðal annars brýnt að auka menntun og fræðslu fyrir lögreglumenn varð- andi tölvu- og netglæpi, svo og að auðvelda aðgengi lögreglu að sérfræðiþekkingu og samvinnu við fagaðila í málum sem varða þennan flokk afbrota. Þá hafi Europol, Evr- ópulögreglan í Haag í Hollandi, lagt mat á þróun skipulagðrar brota- starfsemi á komandi árum, hún taki nú stakkaskiptum, ekki síst vegna þess að brotastarfsemi færist í vax- andi mæli yfir á netið. Landamæravarsla Brýnt er að huga að landamæra- vörslu. Í skýrslunni segir að stjórn- völd bregðist nú „við alvarlegum at- hugasemdum um að styrkja landa- mæravörslu sem fram komu í kjölfar Schengen-úttektar á árinu 2017“ eins og það er orðað. Unnið sé að aðgerðum sem snúi m.a. að stjórnskipulagi, fjölda starfsmanna, menntun og þjálfun, greiningar- starfi og tækjabúnaði á landamæra- stöðvum. Og ennfremur þetta: „Skipulögð glæpastarfsemi er ein mesta ógnin sem steðjar að landamæravörslu og reyndar að öryggi samfélagsins í heild. Líta má á landamæravörslu sem fyrstu varnir gegn skipulagðri glæpastarfsemi en hér ber þó einn- ig að nefna alþjóðlegt samstarf lög- reglu og tollgæslu við erlendar systurstofnanir. Mikilvægi þeirrar samvinnu hefur sannað sig á undanförnum árum.“ Þetta eru alvarleg viðvörunarorð. Stundum er því haldið fram að að- ild að Schengen-samstarfinu sé veiki hlekkurinn þegar að þessum þætti öryggis okkar kemur. Þar er um hættulegan misskilning að ræða. Þvert á móti mætti halda því fram að stæðu Íslendingar utan Schengen væri hér á landi skjól fyrir afbrotamenn eða glæpahópa. Stjórnvöld hefðu enga heimild til að nýta þá öflugu gagnarunna sem samstarfinu fylgja. Nýta verður nýjustu tækni og fjölga fólki við greiningarstarf á Keflavíkurflugvelli. Það er skilvirk- asta leiðin til að efla landamæra- vörsluna. Forvirkar aðgerðir Hryðjuverkaógnar er getið í skýrslunni. Til að sporna við henni skipta mestu aðrar aðferðir en ís- lenskum yfirvöldum er heimilt að beita. Nýlega var skýrt frá því að danska leyniþjónustan PET hefði lagt fram upplýsingar sem leiddu til þess að lögreglan handtók mann frá Noregi af írönskum ættum. Talið var að hann væri útsendur laun- morðingi Íransstjórnar, sendur til að granda írönskum andófsmönnum búsettum í Danmörku. Í fréttum var sagt að PET hefði fengið upp- lýsingar frá ísraelsku leyniþjónust- unni Mossad um hættuna á þessum launmorðum. Íslensk stjórnvöld verða ekki hluti af slíkri atburðarás. Hér getur hún ekki orðið vegna skorts á heim- ildum lögreglu til forvirkra rann- sókna og athugana. Þessa brotalöm verður að taka til meðferðar á fund- um þjóðaröryggisráðs. Eftir Björn Bjarnason » Skyldum stjórnvalda verður ekki sinnt án fjárveitinga, mannafla og tækja sem duga til þess sem gera skal. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. Þjóðaröryggi leggur skyldur á stjórnvöld Hægt er að skapa atvinnu og líf með því að feta nýjar slóðir. Gera betur í dag en í gær og sýna heiminn í nýju ljósi, finna snjallar lausnir á við- fangsefnum daglegs lífs. Bringusund mör- gæsa er ekki mikið til umfjöllunar en Jónas Hallgrímsson, sem var umfangsmikill nýyrða- smiður, á orðin tvö og reyndar mörg fleiri sem lífga upp á tungu- mál þjóðarinnar og gera það lit- ríkara. Dagur íslenskrar tungu er hald- inn hátíðlegur ár hvert 16. nóv- ember á fæðingardegi skáldsins. Það er ekki sjálfgefið að lítil þjóð eigi sitt eigið lifandi tungumál. Því ber að fagna en ýmsar hættur steðja að íslenskunni um þessar mundir vegna hraðra tæknibreyt- inga og yfirburða enskunnar. Fólk mun nota röddina í aukn- um mæli til að stýra hvers kyns tækjum og tólum en vandinn er sá að tækin skilja ekki íslensku í dag. Sem betur fer er til áætlun um að forða tungumálinu okkar frá stafrænum dauða. Hópur fólks og fyrirtækja úr ólíkum áttum vinnur að því að á íslensku megi alltaf finna svar. Almannarómur er sjálfseignarstofnun þar sem koma saman hagsmunaaðilar úr atvinnulífinu og fræðasamfélaginu með myndarlegum stuðningi stjórnvalda. Stofnuninni er ætlað að leysa málið og tryggja framtíð íslenskunnar í tæknivæddum heimi samkvæmt markmiðum máltækniáætlunar. Stefnt er að því að íslensku verði að finna í öllum tækja- og hugbúnaði stærstu tæknifyrir- tækja heims innan fárra ára en tíminn til stefnu er naumur þar sem gervigreind og máltækni í heiminum þróast á ógnarhraða og mikilvægt að Ís- land sitji ekki eftir. Samkeppnishæfni atvinnulífsins byggist á tungumálinu. Lykla- borðið og músin gætu verið á út- leið og rafrænar málfarslöggur mögulega beðið okkar handan við hornið. Fjölbreyttar mál- tæknilausnir geta einnig aukið framleiðni í atvinnulífinu því sjálf- virkar þýðingar munu nýtast í öll- um viðskiptum. Ýmis forrit munu einnig auðvelda fólki lífið við að leiðrétta málfar, stafsetningu og beygingar. Atvinnulífið gegnir mikilvægu hlutverki þegar kemur að nýsköp- un og þróun á máltækni og mun leggja sitt af mörkum til að mark- mið máltækniáætlunar 2018-2022 náist í nánu samstarfi við stjórn- völd, fyrirtæki, stofnanir og há- skóla. Íslenska er mál atvinnulífsins – höldum því lifandi. Bringusund mörgæsa Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson Halldór Benjamín Þorbergsson » Lyklaborðið og músin gætu verið á útleið og rafrænar málfarslöggur mögu- lega beðið okkar handan við hornið. Höfundur er framkvæmdastjóri SA.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.