Morgunblaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 44
*Verð miðast við WOW Basic aðra leið með sköttum
ef greitt er með Netgíró og flug bókað fram og til baka.
FREISTANDI
FERÐIR
Evrópa eða Ameríka? Þitt er valið! Brunaðu
til Boston,njóttu þín í NewYork eða drífðu
þig til Pittsburgh.Þú getur líka slappað af í
Amsterdam,flýtt þér til Frankfurt eða drifið
þig til Dublin.Gerðu vel við þig og bókaðu
freistandi borgarferðmeðWOWair.
DUBLIN FRÁ
6.499kr.*
Tímabil: nóv.–mars
FRANKFURT FRÁ
6.499kr.*
Tímabil: des.–mars
NEW YORK FRÁ
12.999kr.*
Tímabil: des.–mars
PITTSBURGH FRÁ
12.999kr.*
Tímabil: nóv.–mars
BOSTON FRÁ
12.999kr.*
Tímabil: nóv.–mars
AMSTERDAM FRÁ
7.499kr.*
Tímabil: nóv.–mars
Ljótu hálfvitarnir halda upp á dag ís-
lenskrar tungu með heiðurs-
tónleikum á Hard Rock Café í kvöld
kl. 22. Á þeim verður farið með fleip-
ur og staðlausa stafi að sögn hálfvit-
anna en að langmestu leyti á frum-
máli hálfvitans í tilefni dagsins.
Annar í íslenskri tungu verður
síðan haldinn hátíðlegur á
morgun með sama hætti.
Fara með fleipur
og staðlausa stafi
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 320. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Íslandsmeistarar Fram komu sér af
fullum þunga aftur í baráttuna um
efsta sæti Olís-deildar kvenna í
handbolta í gærkvöld með fimm
marka sigri á Val, 27:22. Valskonur
eru eftir sem áður á toppi deild-
arinnar en nú aðeins stigi á undan
Fram. Valskonur skoruðu ekki mark
á síðustu tíu mínútum leiksins en
Fram skoraði fimm. » 2
Meistararnir með afar
mikilvægan sigur
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin GusGus heldur tón-
leika í Eldborg í Hörpu annað
kvöld kl. 20 en þar sem uppselt
er á þá var aukatónleikum bætt
við kl. 22.30. Eru þetta fyrstu
tónleikar sveitarinnar í Eldborg
og verða fyrri hljómsveitarmeð-
limir gestir og flytja með
GusGus mörg af
vinsælustu lögum
sveitarinnar en
aðalsöngvarar
kvöldsins
verða
Urður
Há-
kon-
ardóttir,
Högni Eg-
ilsson og Daníel
Ágúst Haraldsson.
GusGus heldur tvenna
tónleika í Eldborg
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Þriðja þáttaröðin af Heimilislífi fór
í loftið í morgun á Smartlandi á
mbl.is og er Egill Ólafsson söngv-
ari gestur fyrsta þáttarins. Eftir að
hafa búið í gömlu bárujárnshúsi við
Grettisgötu í Reykjavík í 37 ár
fluttu þau; Egill
og eiginkona
hans, Tinna
Gunnlaugsdóttir,
leikkona og fyrr-
verandi þjóðleik-
hússtjóri, í nýrri
og minni íbúð
við Skúlagötu.
Það þætti
kannski ekki
fréttnæmt nema
fyrir þær sakir
að Egill var ósáttur á sínum tíma
þegar blokkin var byggð og kvart-
aði yfir því að hún skyggði á útsýn-
ið úr húsinu hans við Grettisgötu.
Útsýni yfir sundin blá
„Svona étur byltingin börnin
sín,“ segir Egill í þættinum. Hann
segist sáttur á nýja staðnum, íbúð-
in sé góð og í kaupbæti hafi þau
framúrskarandi útsýni til Esjunnar
og yfir Sundin blá. Annars dveljast
þau Egill og Tinna mikið þessi
misserin í Stokkhólmi hvar þau
eiga íbúð. Einnig eiga þau skútu og
eru mikið í siglingum erlendis og
halda þá til í fleyinu.
Marta María Jónasdóttir sem
sér um Smartland á mbl.is er um-
sjónarmaður Heimilislífs ásamt
Arnari Steini Einarssyni pródú-
sent. Þættirnir hófu göngu sína í
júní á síðasta ári og hafa fengið
framúrskarandi viðtökur. Um
30.000 notendur hafa séð fyrri
þætti.
Tíu þættir
„Hugmyndin að þessum þáttum
var búin að vera lengi í mótun en
við bjuggumst kannski ekki við
þessum óskaplegu vinsældum. Það
er því við hæfi að byrja nýja þátta-
röð heima hjá Agli því stjarna hans
skín alltaf jafnskært og honum
liggur alltaf eitthvað á hjarta. Ég
hef fylgst með þessu flutningsferli
hans af miklum áhuga,“ segir
Marta María um tilurð þáttanna
sem verða alls tíu talsins. Þeir fara
jafnan í loftið á föstudögum og
meðal þeirra sem tekið verður hús
á eru Hallgrímur Helgason rithöf-
undur, Friðrik Ómar Hjörleifsson
söngvari, Fríða Friðriksdóttir
snyrtivörudrottning og Björg Inga-
dóttir í Spaksmannsspjörum.
Morgunblaðið/Eggert
Stórsöngvari „Svona étur byltingin börnin sín,“ segir Egill Ólafsson í þætt-
inum Heimilislíf – hvar honum er ekki orða vant frekar en fyrri daginn.
Heimilislífið hjá Agli
Ný þáttaröð af Heimilislífi á Smartlandi fer í loftið í dag
Hús tekið á áhugaverðu fólki Bjó í sama húsinu í 37 ár
Marta María
Jónasdóttir