Morgunblaðið - 16.11.2018, Blaðsíða 8
Brunarústir Niðurrif hússins á Kirkjuvegi 18 á Selfossi hófst í gær.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Beita þurfti sérstökum aðferðum við
niðurrif á húsinu sem brann á Kirkju-
vegi á Selfossi vegna þess að asbest
var á klæðningu þess að utan og að
hluta til að innan.
Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum
Árnessýslu úðuðu vatni á húsið í gær
til að koma í veg fyrir að asbestmeng-
un bærist út í andrúmsloftið þegar
klæðningin brotnaði við niðurrifið.
Að sögn Þorsteins Þorsteinssonar,
hópstjóra eignatjóna hjá VÍS, eru
verktakar búnir að rífa húsið niður og
verður öllu pakkað saman, það sett í
gám og keyrt í Álfsnes til urðunar.
Hann reiknar með því að aðgerðum á
staðnum ljúki að fullu í dag þegar bú-
ið verður að skafa mengaðan jarðveg
með asbesti ofan af lóðinni, eða um tíu
sentimetra lagi í kringum húsið.
Húsið á Kirkjuvegi jafnað við jörðu
Slökkviliðið úðaði vatni á rústirnar
til að koma í veg fyrir asbestmengun
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2018
Fjórir af hverjum fimm lands-mönnum eru á móti því að
frekara vald yfir orkumálum hér á
landi verði fært til stofnana Evr-
ópusambandsins. Þess vegna þarf
ekki að koma á
óvart að mikil og yf-
irleitt neikvæð um-
ræða hefur farið
fram um þriðja
orkupakka ESB.
Efasemdir Íslend-
inga til aukinnar
ásælni ESB hér á
landi, ekki síst þegar kemur að
náttúruauðlindum eins og orku og
sjávarfangi, eru einfaldlega mikl-
ar.
Í þessu sambandi varumhugsunarvert að lesa grein
Michaels Manns, sendiherra ESB
hér á landi, um þriðja orkupakk-
ann. Sú grein sýnir vel yfirlætið og
hrokann sem yfirþjóðlegar stofn-
anir með ósnertanlega embættis-
menn geta sýnt almenningi og heil-
um ríkjum.
Sendiherrann skrifaði til að„leiðrétta ýkjurnar og slá á
múgæsinginn“. Hann talar um
„hræðsluáróður“ garðyrkjubænda,
sem óttast sinn hag undir hæl ESB.
Sendiherrann segir að í Brusselsé enginn að velta fyrir sér sæ-
streng til Íslands og þar séu menn
ekki meðvitaðir um umræður um
hann. Honum finnst bersýnilega
hlægilegt að svo léttvægt mál smá-
ríkisins trufli stórmennin í Brussel.
Sendiherrann talar líka um„hræðsluáróðursmeistara“ og
„skáldskap samsæriskenning-
armanna“.
Er nokkur furða að Íslendingarvilji halda sig fjarri sambandi
hinna hrokafullu embættismanna?
Michael Mann
Hroki sendiherra
ESB á Íslandi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Landað var úr Vilhelm Þorsteins-
syni EA 570 í Neskaupstað í fyrra-
dag og var það síðasta löndun skips-
ins í íslenskri höfn undir merkjum
Samherja. Skipið hefur verið selt til
Rússlands, en kom nýtt til landsins
árið 2.000.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað kemur fram að búið er
að fiska um 968 þúsund tonn á Vil-
helm og landanir eru um 820 talsins.
Meðalafli skipsins á ári er 53 þúsund
tonn og verðmæti heildaraflans á nú-
virði gæti verið um 60 milljarðar
króna, samkvæmt upplýsingum frá
Guðmundi Jónssyni skipstjóra. Alls
hefur skipið fiskað 110 þúsund tonn
af íslenskri sumargotssíld, 220 þús-
und tonn af norsk-íslenskri síld, 100
þúsund tonn af makríl, 323 þúsund
tonn af loðnu, 210 þúsund tonn af
kolmunna og um fjögur þúsund tonn
af öðrum tegundum.
„Það er erfitt að kveðja skip eins
og Vilhelm. Þetta er í einu orði sagt
frábært skip sem hefur reynst bæði
útgerð og áhöfn afar vel. En það
kemur nýr Vilhelm árið 2020 og það
verður glæsilegt skip. Það verður
hins vegar ekki vinnsluskip þannig
að breytingin verður mikil. Það hef-
ur aflast ótrúlega vel á skipið frá
upphafi. Útgerðin hefur svo sannar-
lega staðið sig hvað varðar útvegun á
kvóta og áhöfnin hefur alla tíð verið
frábær. Ég held að fimm eða sex úr
áhöfninni hafi verið á skipinu frá
upphafi,“ segir Guðmundur í samtali
á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Fyrstu skipstjórar á Vilhelm Þor-
steinssyni voru Arngrímur Brynj-
ólfsson og Sturla Einarsson. Guð-
mundur tók við af Sturlu 2001 og
hefur verið á skipinu síðan að und-
anskildum tæplega tveimur árum
þegar hann var á Baldvin Þorsteins-
syni EA. Birkir Hreinsson tók síðan
við af Arngrími árið 2006. aij@mbl.is
Aflaverðmætið ná-
lægt 60 milljörðum
Síðasta löndun
Vilhelms Þorsteins-
sonar á Íslandi
Ljósmynd/Hákon Ernuson
Erfitt að kveðja Guðmundur Jóns-
son skipstjóri í brú Vilhelms.