Morgunblaðið - 16.11.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2018
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
„Þetta tókst alveg frábærlega, eins og fyrir var lagt,“
sagði Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í Hafnarfjarð-
arhöfn, í gær eftir að flutningaskipið Fjordvik, sem
strandaði í Helguvík, hafði verið sett í flotkví í höfn-
inni.
Um mikið nákvæmnisverk var að ræða, því hvorki
vél né stýribúnaður er í skipinu. Þrír dráttarbátar
stýrðu skipinu inn og voru skipabjörgunarsérfræð-
ingar frá Hollandi á staðnum. Töluverð olía var um
borð og til stóð að dæla henni út og koma upp tvöfaldri
girðingu í kringum flotkvína til að hindra smit.
freyr@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
„Þetta tókst alveg frábærlega vel“
Flutningaskipið Fjordvik er komið í flotkví í Hafnarfjarðarhöfn
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Minjar, sem talið er að séu
hreyfðar kistuleifar frá fyrri öld-
um, komu í ljós í lagnaskurði í
Víkurgarði, hinum forna kirkju-
garði í miðbæ Reykjavíkur, á mið-
vikudaginn. Í kjölfarið ákvað
Minjastofnun að stöðva fram-
kvæmdir á þeim hluta fram-
kvæmdasvæðis Lindarvatns ehf.
sem snýr að Víkurgarði. Lindar-
vatn er að byggja hótel á staðnum
og hafa þær framkvæmdir verið
afar umdeildar.
Minjastofnun sagði í frétta-
tilkynningu síðdegis í gær að
framkvæmdir hefðu ekki verið
stöðvaðar á öllum byggingar-
reitnum. En þær framkvæmdir
sem voru stöðvaðar á svæðinu
verði það á meðan stofnunin kanni
málsatvik og skoði og meti minj-
arnar sem fundust. „Að þeirri
vinnu lokinni verður tekin ákvörð-
un um framhaldið,“ segir í til-
kynningunni.
Fram kom á mbl.is að ekki voru
mannabein við minjarnar. Hafa
menn getið sér til um að líkkistur
sem þarna kunna að hafa verið
hafi raskast við framkvæmdir á
svæðinu þegar viðbygging Lands-
símahússins var reist árið 1967.
RÚV hafði í gær eftir Kristínu
Huld Sigurðardóttur, forstöðu-
manni Minjastofnunar, að hana
grunaði að fleiri minjar væri að
finna þar sem lagnagröfturinn
stæði yfir. Hún sagði að athuga
þyrfti hvað væri að finna austan
við skurðinn þar sem minjarnar
fundust.
Í Víkurgarði, sem er á horni
Aðalstrætis og Kirkjustrætis, var
að líkindum jarðsett frá upphafi
kristni á Íslandi og fram undir
miðja 19. öld þegar kirkjugarð-
urinn var aflagður og nýr garður
við Suðurgötu tekinn í notkun.
Minjastofnun hefur uppi áform
um sérstaka friðlýsingu Víkur-
garðs. Hefur hún sent öllum hags-
munaaðilum bréf þar að lútandi.
Reykjavíkurborg hefur þegar
svarað erindinu neikvætt. Leggst
hún gegn friðun garðsins.
Rákust á minjar í lagnaskurði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Víkurgarður Minjar komu í ljós í lagnaskurði á miðvikudaginn. Hluti framkvæmda hefur verið stöðvaður.
Hluti fram-
kvæmda í Víkur-
garði stöðvaður
Héraðsdómur Reykjaness hefur
hafnað kröfu fimm sakborninga af
sjö í gagnaversmálinu um að máli
þeirra verði vísað frá. Verjendur
mannanna töldu að réttindi þeirra
hefðu ekki verið virt og að rannsak-
endur hefðu beitt ólögmætum að-
ferðum til að afla sér upplýsinga við
rannsóknina.
Greint var frá því á vef RÚV að
enginn sakborninganna hefði verið
viðstaddur þegar úrskurður var
kveðinn upp í gær. Aðalmeðferð í
málinu hefst 3. desember nk.
Í greinargerð verjenda sagði að
lögreglan á Suðurnesjum hefði svif-
ist einskis við að afla sér upplýsinga
um samskipti verjenda og sakborn-
inga í málinu. M.a. hefði fv. eigin-
kona annars verjandans verið spurð
ítarlega út í samskipti verjandans og
skjólstæðings hans. Einnig er bent á
það í greinargerðinni að lögreglu-
stjórinn á Suðurnesjum hafi lagt
hald á farsíma Þorgils Þorgilssonar,
verjanda Sindra Þórs Stefánssonar,
við skýrslutöku 17. apríl sl. eftir að
Sindri Þór fór úr landi.
Kröfu um
frávísun
hafnað
Segja lögreglu
hafa svifist einskis
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, vonast
til að geta lagt frumvarp til laga um
sviðslistir fram í desember eða jan-
úar næstkomandi. Það ræðst af því
hvernig gengur að ljúka vinnu við
frumvarpið.
Opið samráð í Samráðsgátt
stjórnvalda um drög að frumvarpi til
sviðslistalaga, sem hófst 31. október,
hefur verið framlengt til 27. nóvem-
ber. Í frétt ráðuneytisins um frum-
varpið segir að í ljós hafi komið að
samráðsaðilar séu að læra á breytt
verklag sem nú sé fylgt í samráði
stjórnvalda við hagsmunaaðila og al-
menning.
„Við tókum upp ný vinnubrögð við
þetta frumvarp,“ sagði Lilja í sam-
tali við Morgunblaðið. „Fyrst kom
áformaskjal og við brugðumst við at-
hugasemdum við það. Svo óskuðum
við eftir frekara samráði um frum-
varpsdrögin í gegnum Samráðsgátt-
ina. Ég hef beðið starfsfólk ráðu-
neytisins að fara yfir allar
athugasemdir sem borist hafa. Ég
hef líka beðið fólkið mitt að tala við
þau sem hafa gert athugasemdir við
frumvarpsdrögin og komast að því
hvað fólki þykir efnislega að frum-
varpsdrögunum.“
Hún sagði að haldinn hefði verið
fundur með forystufólki á sviði
sviðslista í janúar þar sem vinnan
við frumvarpið var kynnt. „Það
komu athugasemdir eftir þann fund
sem teknar voru til greina við samn-
ingu frumvarpsins. Ég er ekki viss
um að það vanti mikið efnislega upp
á frumvarpsdrögin. Ég er nokkuð
vongóð um að við fáum mjög góð lög
um sviðslistir,“ sagði Lilja. Hún
sagði að óskir hefðu borist um að
fresturinn til að skila umsögnum í
Samráðsgáttinni yrði lengdur og
orðið hefði verið við því.
Lilja minnti á að frumvarpið væri
búið að vera lengi í smíðum og aðrir
ráðherrar hefðu komið að því á fyrri
stigum.
Bjóða fram hjálp sína
Í frétt ráðuneytisins kemur fram
að unnið hafi verið að gerð frum-
varps um sviðslistir í nær fimm ár.
Samráðsferli um frumvarpsdrögin
hafi byrjað í janúar þegar boðað var
til kynningarfundar um málið,
helstu hagsmunaaðilum kynnt frum-
varpsdrögin og þeir hvattir til að
koma skriflegum athugasemdum til
ráðuneytisins.
Sex umsagnir höfðu borist um
frumvarpsdrögin í gær, þar á meðal
ályktun frá opnum fundi í Sviðslista-
sambandi Íslands (SSÍ) 12. nóvem-
ber þar sem drögunum var einróma
hafnað. Jafnframt lýsti fundurinn
furðu sinni á því að ráðuneytið
skyldi ekki hafa átt samráð við fag-
fólk og hagsmunaaðila við gerð
frumvarpsdraganna. Undir álykt-
unina rituðu 23 einstaklingar sem
allir gegna eða hafa gegnt forystu-
hlutverkum á sviði sviðslista á Ís-
landi. Sviðslistasambandið hét áður
Leiklistarsamband Íslands.
„Hópurinn sem ályktaði á fund-
inum er í samtali. Við höfum boðið
fram krafta okkar og boðist til að
hjálpa við gerð nýrra frumvarps-
draga. Það er hugur í fólki og mikil
eining innan þessa hóps sem álykt-
aði á fundi Sviðslistasambandsins,“
sagði Birna Hafstein, forseti SSÍ.
Henni þótti vinnan við frumvarps-
drögin hafa verið sérkennileg.
„Frumvarpsdrögin endurspegla
gamaldags hugsun um uppbyggingu
stofnana. Það er tekin upp einveld-
isstefna og ég á eftir að sjá það ger-
ast að ráðherrann leggi frumvarpið
fram svona. Mér þykir það mjög
ólíklegt.“
Birna sagði að sér þætti verst að
ekki hefði verið haft samráð við fag-
aðila með sérþekkingu á sviðslistum,
við gerð frumvarps til jafn mikil-
vægra laga og þessara. Hún kvaðst
hafa verið einu sinni boðuð á kynn-
ingarfund, 17. janúar, ásamt fulltrúa
Bandalags íslenskra listamanna,
þjóðleikhússtjóra, listdansstjóra og
óperustjóra.
„Þetta var stuttur kynningarfund-
ur. Við fengum ekki drögin send fyr-
ir fundinn en var sagt hvar þau væru
stödd. Svo fengum við ekki að taka
drögin með okkur. Þetta var ekki
byrjun á samráðsferli eins og við
höfðum haldið,“ sagði Birna. Hún
sagði að síðan hefði ekki verið óskað
eftir samráði fyrr en drögin voru
birt í Samráðsgáttinni.
Styttist í sviðslistafrumvarpið
Menntamálaráðherra stefnir á að leggja frumvarpið fram í desember eða janúar Ný vinnubrögð
við frumvarpsgerðina Félagar í Sviðslistasambandinu bjóða fram aðstoð við gerð nýs frumvarps
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Birna
Hafstein